Austurland má ekki sitja eftir Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar 31. mars 2026 23:00 Samgöngur eru ekki lúxus. Þær eru lífæð samfélaga. Fyrir íbúa í Múlaþingi, næst víðfeðmasta sveitarfélagi landsins þar sem langt er á milli byggðarkjarna, eru öruggar samgöngur forsenda þess að daglegt líf gangi upp, að atvinnulíf dafni og að fólk geti sótt þá þjónustu sem þarf hverju sinni. Við sem búum í Múlaþingi þekkjum þetta af eigin raun. Við vitum hvað það skiptir miklu máli að komast örugg leiðar sinnar allan ársins hring, hvort sem um er að ræða vinnu, skóla, heilbrigðisþjónustu eða tengsl við fjölskyldu og samfélag. Þess vegna eru samgöngur ekki jaðarmál hjá okkur, þær eru grundvallarmál. Loforð sem enn bíða efnda Á undanförnum árum hafa stjórnvöld gefið skýr loforð um að efla samgöngur á Austurlandi og tengja byggðarkjarna sameinaðra sveitarfélaga betur saman. Þau loforð sem gefin voru í kjölfar sameiningar Múlaþings árið 2020, hafa hins vegar ekki gengið eftir. Þrátt fyrir að mörg hundruð milljónir hafi verið lagðar í rannsóknir, hönnun og undirbúning standa lykilverkefnin enn í bið. Fjarðarheiðargöng eru tilbúin til útboðs og heilsársvegur um Öxi er fullhannaður. Þetta eru ekki hugmyndir á blaði heldur verkefni sem eru tilbúin til framkvæmda. Samt virðast þau hafa verið sett til hliðar af núverandi ríkisstjórn og ekki í þeim forgangi sem þau eiga skilið og var lofað. Það er ólíðandi. Baráttan byggir á sterkum gögnum Við höfum átt fjölmarga fundi með þingmönnum og ráðherrum og nýtt hvert tækifæri til að fara suður á Alþingi okkar Íslendinga til að flytja okkar mál. Þar höfum við lagt fram fagleg gögn, rifjað upp loforð fyrri ríkisstjórna og bent á mikilvægi þess að halda áfram þeirri vegferð sem þegar hefur kostað þjóðina gríðarlega fjármuni í undirbúningi. Þessar framkvæmdir snúast um öryggi fólks og jafnræði til búsetu. Þetta snýst um hvort íbúar í Múlaþingi og á Austurlandi búi við sambærilegt öryggi og aðrir landsmenn. Þetta snýst um að komast til læknis, sækja sér þjónustu, halda úti atvinnurekstri og lifa eðlilegu lífi í heimabyggð. Málflutningur okkar byggir á sterkum og faglegum gögnum, meðal annars á Svæðisskipulagi Austurlands og greiningu á efnahagsumsvifum landshlutans. Þar liggur skýrt fyrir að þessar samgöngubætur eru ekki aðeins mikilvægar fyrir Austurland heldur fyrir landið allt. Baráttan heldur áfram Sem kjörnir fulltrúar Múlaþings berum við ábyrgð á því að slaka ekki á í þessari baráttu. Við munum áfram af krafti, standa vörð um hagsmuni íbúanna og fylgja eftir af festu þeim mikilvægu samgöngubótum sem bíða framkvæmda, þar til árangur næst. Höfundur er Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi og formaður byggðaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Berglind Harpa Svavarsdóttir Múlaþing Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar