Segir viðræður ganga stórvel en hótar stríðsglæpum Samúel Karl Ólason skrifar 30. mars 2026 14:00 Donald Trump hótar því að sprengja hvert einasta orkuver í Íran í loft upp, auk annarra borgaralegra innviða. AP/Jose Luis Magana Bandaríkjamenn eiga í viðræðum við „nýja og skynsamari“ ríkisstjórn í Íran um að binda enda á árásir á landið. Þessar viðræður hafa skilað miklum árangri, eftir því Donald Trump Bandaríkjaforseti, segir en hann hótar þó umfangsmiklum stríðsglæpum gegn Íran, náist samningar ekki fljótt og verði Hormússund ekki opnað fyrir skipasiglingar á nýjan leik.
Þetta er meðal þess sem Trump segir í nýrri færslu á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, en hann hefur áður talað um að stjórnarskipti hafi í raun átt sér stað í Íran. Það kannast þó fáir við og liggur ekki fyrir við hvaða aðila Bandaríkjamenn eru að tala, í gegnum millilið í Pakistan. Marco Rubio, utanríkisráðherra, var spurður að því í morgun hverja Bandaríkjamenn væru að tala við en neitaði að svara spurningunni. Hann sagði að það myndi setja þá menn í hættu. Í færslunni segir Trump að verði Hormússund ekki opnað aftur muni Bandaríkjamenn ljúka dvöl sinni í Íran með því að sprengja í loft upp hvert einasta orkuver í landinu, alla olíubrunna, Kharg-eyju (þaðan flytja Íranir um níutíu prósent af olíuafurðum sínum úr landi) og mögulega einnig allar þær stöðvar í Íran þar sem sjó er breytt í drykkjarhæft vatn með eymingu. Trump sagði að þessir staðir hefðu vísvitandi ekki verið sprengdir enn en þessar árásir yrðu gerðar til að hefna fyrir þá mörgu bandarísku hermenn og aðra sem klerkastjórnin í Íran hefði banað í gegnum árin. Það að ráðast á borgaralega innviði, eins og Trump er að hóta og hefur ítrekað gert áður, er stríðsglæpur. Færsla Trumps á Truth Social. Trump hefur ítrekað farið um víðan völl þegar kemur að stríðinu gegn Íran. Hann hefur ítrekað sagt að stríðið sé unnið og að Íranir hafi verið gersigraðir. Hormússund er gífurlega mikilvægt hafsvæði en um það fer um fimmtungur af allri olíu heimsins og sömuleiðis mikið af jarðgasi. Siglingar olíu- og gasflutningaskipa um sundið hafa dregist verulega saman frá því árásirnar á Íran hófust. Lokunin hefur því leitt til mikilla verðhækkana víðsvegar um heiminn og þar á meðal í Bandaríkjunum, þó Bandaríkjamenn séu að mestu leyti sjálfu sér nægir þegar kemur að olíu og jarðgasi. Verðið þar tekur mið af heimsverði, eins og víðast hvar annarsstaðar. Íranir hafa skotið aragrúa eldflauga og dróna að olíuinnviðum og öðrum borgaralegum skotmörkum í nágrannaríkjum sínum síðan Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran. Í dag gerðu þeir árás á mikilvæga orkuinnviði í Íran og á olíuvinnslu í Ísrael. Þá hefur Trump sagt að hans draumur væri að ná stjórn á olíuauðlindum Íran. „Í hreinskilni þá væri ég helst til í að taka olíuna í Íran en heimskt fólk í Bandaríkjunum segir: Af hverju ættirðu að gera það?“ sagði Trump í samtali við Financial Times um helgina. Gaf hann til kynna að til greina kæmi að hernema Kharg-eyju. Sjá einnig: Enn fer ekki saman hljóð og mynd Trump er einnig sagður íhuga að senda hermenn inn í Íran til að ná í auðgað úran sem finna má þar. Talið er að Íranir eigi rúm fjögur hundruð kíló af töluvert auðguðu úrani sem tiltölulega auðvelt væri að auðga meira, svo það yrði hægt að nota það í kjarnorkuvopn. Talið er að þetta úran sé að finna í tveimur af þremur kjarnorkurannsóknarstöðvum sem Ísraelar og Bandaríkjamenn vörpuðu sprengjum á síðasta sumar. Það að sækja þetta úran yrði flókin og hættuleg aðgerð, samkvæmt sérfræðingum sem ræddu við blaðamenn Wall Street Journal. Hermenn yrðu væntanlega að athafna sig í nokkra daga á jörðu niðri í Íran, ef þeir kæmust þangað yfir höfuð. Hermenn þyrftu að ná stjórn á svæðinu og verjast gagnárásum Írana á meðan verið væri að leita að úraninu og þá þyrftu þeir einnig að verjast eldflaugum og drónum. Mögulega þyrfti einnig að gera flugvöll á svæðinu til að flytja búnað þangað og úranið á brott, svo eitthvað sé nefnt.
Bandaríkin Íran Donald Trump Hernaður Ísrael Bensín og olía Skipaflutningar Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Tengdar fréttir Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl næstkomandi til þess að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. 30. mars 2026 08:29 Íranir búa sig undir árásir landherliðs Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. 29. mars 2026 14:41 Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 28. mars 2026 23:41 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Norðmenn lækka álögur á eldsneyti til að létta undir með landsmönnum Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að lækka álögur og skatta á eldsneyti frá og með 1. apríl næstkomandi til þess að létta undir með landsmönnum. Olíuverð er nú í hæstu hæðum vegna stríðsins í Íran og verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna. 30. mars 2026 08:29
Íranir búa sig undir árásir landherliðs Íranir segjast tilbúnir að bregðast við árásum bandarískra landgönguliða sem þeir telja í farvatninu hjá Bandaríkjaher. Forseti íranska þingsins sakar Bandaríkjamenn um að skipuleggja slíkar árásir á sama tíma og þeir þykist opnir fyrir friðarviðræðum. 29. mars 2026 14:41
Hútar gerðu aðra árás á Ísrael Uppreisnarhópur Húta í Jemen skaut eldflaugum og drónum á nokkur skotmörk í suðurhluta Ísrael í sinni annarri loftárás á landið í dag. Talsmaður Húta segir árásirnar hafa beinst að mikilvægum hernaðarinnviðum. 28. mars 2026 23:41