Hvað er áminningarskylda? Hrafnhildur Kristinsdóttir skrifar 30. mars 2026 09:32 Ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi frumvarp til breytinga á starfsmannalögum í þeim tilgangi að afnema áminningarskyldu opinberra starfsmanna. Því sjónarmiði hefur ítrekað verið haldið á lofti að áminningarskyldan hafi valdið opinberum stofnunum erfiðleikum og að áminningarferlið hafi verið þungt í vöfum. Meginmarkmið frumvarpsins er því sagt vera að stuðla að skilvirkni og árangri í ríkisrekstri, að auka vernd þolenda og sveigjanleika fyrir stjórnendur ríkisstofnana auk þess að stuðla að heilbrigðara starfsumhverfi. Frumvarpið hefur hins vegar vakið upp hörð viðbrögð, sér í lagi meðal bandalaga launafólks og stéttarfélaga, og eru skiptar skoðanir á álitaefninu. Af því tilefni er vert að skoða áminningarskylduna í lagalegu tilliti, þ.e. til hverra nær hún, hvað felst í henni og hvað myndi felast í afnámi hennar. Til hverra nær áminningarskyldan? Starfsmannalögin (lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins) hafa að geyma ákvæði um áminningarskyldu gagnvart ríkisstarfsmönnum og embættismönnum. Sérstök sjónarmið eiga við um embættismenn og verður því ekki fjallað nánar um þá hér. Starfsmannalögin gilda hins vegar ekki um starfsfólk sveitarfélaga og stofnana þeirra, heldur er ákvæði um áminningarskyldu slíkra starfsmanna að finna í kjarasamningum starfsmanna sveitarfélaga. Hvað felst í reglunum um áminningarskyldu? Í reglunum um áminningarskyldu felst að ef opinber starfsmaður gerist sekur um háttsemi sem þykir ósamrýmanleg starfinu beri að veita honum skriflega áminningu. Þá má ekki segja starfsmanni upp án þess að viðkomandi hafi bæði fengið slíka áminningu og svigrúm til að bæta ráð sitt. Áminningarskyldan á einungis við þegar ástæðu uppsagnar má rekja til starfsmannsins sjálfs, en gildir hins vegar ekki um uppsagnir af ástæðum sem rekja má til atvinnurekandans, svo sem vegna skipulagsbreytinga eða hagræðingar í rekstri. Af dómaframkvæmd leiðir að ríkar kröfur eru gerðar til opinbers aðila um sönnun á því að starfsmaður hafi gerst sekur um þær ávirðingar sem áminning er byggð á, auk þess sem efni áminningar verður að vera skýrt og tilefnið ljóst. Þá verður að mega rekja ástæðu uppsagnar til sams konar tilefnis eða hegðunar og viðkomandi starfsmaður hafði áður fengið áminningu fyrir. Þar fyrir utan gilda áminningar einungis í 12-24 mánuði en eftir þann tíma þarf að hefja ferlið að nýju ef starfsmaður gerist aftur sekur um sams konar háttsemi. Af þessu leiðir að til þess að unnt sé að segja opinberum starfsmanni upp störfum þarf hann að hafa brotið af sér tvívegis með sams konar hætti og án þess að of langur tími hafi liðið á milli brotanna. Hvað myndi felast í afnámi áminningarskyldunnar? Meginbreytingin sem lögð er til í frumvarpinu felst í því að fella brott skyldu til að veita áminningu áður en kemur til uppsagnar starfsmanns. Hvaða afleiðingar hefur það fyrir starfsfólk í reynd? Ljóst er að þótt áminningarskyldan verði afnumin munu opinberir aðila áfram þurfa að gæta að málsmeðferðarreglum stjórnsýslulaga við uppsagnir opinberra starfsmanna. Í því felst að ákvarðanir um uppsagnir verða að vera málefnalegar, réttmætar og meðalhófs gætt. Mætti því færa rök fyrir því að þrátt fyrir afnám áminningarskyldunnar verði uppsagnarvernd opinberra starfsmanna áfram ríkari en starfsmanna á almennum vinnumarkaði, þar sem hömlur á uppsögnum eru mjög takmarkaðar. Loks má velta því upp hvort fyrirhuguð breyting á starfsmannalögum muni mynda gjá á milli starfsmanna ríkisins og starfsmanna sveitarfélaga þar sem uppsagnarvernd hins síðarnefnda hóps verði ríkari, að minnsta kosti þar til kjarasamningum starfsmanna sveitarfélaga verði breytt. Höfundur er Hrafnhildur Kristinsdóttir lögmaður og eigandi hjá Advel lögmönnum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vinnumarkaður Mest lesið Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson Skoðun Skoðun Skoðun Verðmæti góðrar vinnustaðamenningar Hólmfríður Jennýar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hélt fyrst að fréttin væri um Sigurð Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Dregur Útlendingastofnun úr samkeppnishæfni Háskóla Íslands? Rob Chantrey skrifar Skoðun Ég kvíði eftirköstum ESB-kosninganna - Óháð niðurstöðu Þorsteinn Magnússon skrifar Skoðun Ævisaga krónunnar Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Er Ísland með landslið í fótbolta? Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Hví ekki að velja eitthvað ódýrara en evru? Jóhann Óli Eiðsson skrifar Skoðun Ef Ísland væri gosdrykkur Geir Gígja skrifar Skoðun Af hverju fer sérsveitin í fleiri útköll? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Frá leikgleði til afreka Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Ekki éta útsæðið Jóhannes Þór Skúlason skrifar Skoðun Stefnum á svikalaust sumarfrí - það er skemmtilegra Heiðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Hin hagsýna húsmóðir ársins 2026 Alma Dóra Ríkarðsdóttir skrifar Skoðun Réttarríki fyrir lengra komna Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað er að því að vera heimsborgari? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Nei eða já? Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar sauðfé verður á vegi okkar Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Það skiptir máli að velja rétta séreign Harpa Jónsdóttir skrifar Skoðun Svartir svanir á Reykjanesi Böðvar Tómasson skrifar Skoðun „Sprúttsalar“, lög sem gilda… þegar hentar Þráinn Farestveit skrifar Skoðun Byssur bæta ekki heiminn Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Með vinnuna í vasanum? Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Saga úr heilbrigðiskerfi okkar Íslendinga Magnea Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Baldur til Eyja og við borgum Sigríður Jóhannesdóttir,Sæþór Þorbergsson skrifar Skoðun Þrír forstjórar sem margfalla á staðreyndaprófinu Jón Kaldal skrifar Skoðun Góðar fréttir af almenningssamgöngum Davíð Þorláksson skrifar Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Getur Evrópusinni af hugsjón sannfært hrædda þjóð? Sigurjón Ólafsson skrifar Skoðun Frekjukallar fyrr og nú Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Forréttindafólk sem segir nei Margrét Guðmundsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Uppgjör við víkinga öld elítunnar - Hvernig siðmenntuð þjóð rís upp úr sjálfskaparvíti spillingar Sigurður Sigurðsson skrifar