Gestalisti elítunnar Óðinn Freyr Baldursson skrifar 30. mars 2026 08:45 Nú á laugardaginn birtist grein í Morgunblaðinu eftir mann að nafni Halldór Benjamín, þar titlar hann sig sem hagfræðing en „gleymir“ að minnast á það að hann er einnig forstjóri fasteignafélagsins Heima. Í greininni sem er titluð „Þetta er gestalistinn“ er því haldið fram að Ísland hafi lítið að sækja í Evrópusambandið þar sem við erum ríkt land og myndum líklega greiða meira en við fengjum til baka. En þetta er ekki hlutlaus hagfræðigreining Halldórs. Þetta er bein og augljós hagsmunagæsla, dulbúin sem greining. Í greininni er Ísland borið saman við fátæk umsóknarríki. Það er þægilegt, því þannig lítum við alltaf vel út. En það er einnig villandi. Raunverulegi samanburðurinn sem við ættum að vera skoða er við önnur þróuð ríki sem hafa valið stöðugleika, lægri vexti, betri gjaldeyri og fyrirsjáanlegt efnahagsumhverfi. Það er sá veruleiki sem íslensk heimili fá ekki að búa við. Svo er einblínt á það að við myndum vera nettógreiðendur inn í Evrópusambandið. En ESB er ekki einföld bókhaldsæfing. Hagkerfi Íslands byggist á alþjóðaviðskiptum og samvinnu. Án þess myndum við líklegast ennþá búa í torfkofum og borða einungis slátur og kjamma. Spurningin er hvað við fáum fyrir inngöngu í ESB: stöðugleika, lægri vexti og meira öryggi og fyrirsjáanleika í daglegu lífi. Það skiptir máli hver talar Heimar er eitt stærsta fasteignafélag landsins og á meðal annars Smáralind, Hafnartorg, Egilshöll, Höfðatorg og fjölda annarra atvinnuhúsnæða. Eignasafn félagsins er metið á 223 milljarða króna og alls samanstendur eignasafnið af 97 fasteignum sem alls eru um 389 þúsund fermetrar. Þetta er félag sem lifir góðu lífi í kerfi þar sem verðtrygging, verðbólga, sveiflur og of hátt fasteignaverð eru ekki gallar heldur tekjulind. Fyrir slíka aðila er núverandi ástand ekki vandamál heldur viðskiptamódel. Leigusamningar stóru fasteignafélaganna eru að stærstum hluta verðtryggðir, meirihluti hlutafjár er í eigu lífeyrissjóðanna og svo lengi sem fasteignaverð heldur áfram að hækka má líkja þeim við verðtryggðar eilífðarvélar. Við stjórnvölinn eru svo menn sem hæglega þéna tíföld laun verkafólks á ári hverju og hafa líklega ekki stórar áhyggjur á húsnæðislánunum sínum um hver mánaðarmót. Það kostar að vera utan ESB Það kostar að halda úti krónunni. Hún þýðir hærri vextir, meiri óvissu og stöðugan þrýsting á heimili og fyrirtæki. Þessi kostnaður lendir ekki á þeim sem eiga eignirnar heldur þeim sem borga fyrir þær. Það gleymist líka að það að halda úti eigin gjaldmiðil er ekki ókeypis. Til að verja krónuna þarf Ísland að halda úti stórum gjaldeyrisforða sem nemur núna eitt þúsund milljörðum sem liggja bundnir í erlendum gjaldmiðlum. Þetta er fjármagn sem gæti annars farið í innviði, heilbrigðiskerfi eða lægri skuldir. En í staðinn neyðumst við til að halda uppi þessum fáránlega gjaldeyrisforða til að passa upp á gildi krónunar. Þetta er falinn kostnaður sem almenningur borgar, en sjaldan er rætt um. Það er ekki tilviljun að þeir sem hagnast mest á þessu kerfi vilja halda því óbreyttu. Þeir vilja ekki að við sjáum samninginn. Þeir vita að stöðugra kerfi myndi bæta kjör almennings, en taka af þeim sjálfvirkan og auðveldan ávinning. Þá þyrftu þeir að keppa á jafnari grundvelli á svokölluðum samkeppnismarkaði. Við stöndum ekki frammi fyrir flókinni spurningu um ESB. Við stöndum frammi fyrir einföldu vali um hagsmuni. Hagsmuni almennings eða elítunnar. Nú skora ég á þig, Halldór Benjamín að finna út hverra hagsmuna - annarra en almannahagsmuna við sem viljum láta reyna á inngöngu Íslands í ESB erum að gæta. Ég get sagt þér svarið, ekki neinna. Höfundur er nýkjörinn formaður Ungra Evrópusinna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar