Fremst í yfirbyggingu Lísbet Sigurðardóttir skrifar 30. mars 2026 08:02 Nú styttist ört í sveitarstjórnarkosningar og má vænta þess að á komandi vikum og mánuðum muni umræðan snúast í einni eða annarri mynd um ráðstöfun útsvars. Þar er lykilatriði að sem stærstur hluti af skattfé fari í þjónustu við íbúa, en ekki yfirbyggingu. Umfangsmikið stjórnsýslustig eykur flækjur, dreifir ábyrgð og hægir á ákvarðanatöku. Ef efsta lag sveitarfélaga er skipulagt með þessum hætti getur það smitast út í aðra þætti rekstrar og þjónustu og haft neikvæð áhrif á þjónustu við íbúana. Í ljósi vandans vekur furðu að í nýju frumvarpi innviðaráðherra um sveitarstjórnir, sem m.a. er ætlað að auka skilvirkni, sé ekki tekið á vandanum þar sem hann er mest aðkallandi. Norðurlandameistarar í fjölda borgarfulltrúa á fullum launum Borgarfulltrúar í fullu starfi eru þrefalt fleiri í Reykjavíkurborg en í höfuðborgum annarra Norðurlanda (mynd 1). Alls eru 23 borgarfulltrúar á fullum launum hjá Reykjavíkurborg og að auki eru 8 varaborgarfulltrúar í 70% starfi.[1] Í heildina eru því 31 borgarfulltrúi á nær fullum launum. Til samanburðar eru aðeins um 8 borgarfulltrúar að jafnaði í fullu starfi í öðrum norrænum höfuðborgum, þar sem íbúafjöldi er fimmfalt meiri að meðaltali. Miðað við höfðatölu eru borgarfulltrúar á fullum launum fimmtánfalt fleiri í Reykjavík en í höfuðborgum annarra Norðurlanda. Reykjavík sker sig úr að því leyti að allir kjörnir borgarfulltrúar eru á föstum launum sem jafngilda fullu starfi og taka beinan þátt í daglegri stjórnsýslu, auk 8 varaborgarfulltrúa í nær fullu starfi. Í höfuðborgum annarra Norðurlanda eru sjálfar borgarstjórnir höfuðborganna fjölmennari en í Reykjavík en borgarfulltrúar starfa að mestu í hlutastarfi við stefnumótun og eftirlit og sinna öðrum störfum samhliða, á meðan aðeins lítill hópur borgarráðsfulltrúa, eins konar framkvæmdastjórn, er í fullu starfi og fer með daglega stjórn. Vandi borgarinnar er tvíþættur. Það er ekki aðeins beinn kostnaður við fjölda borgarfulltrúa sem leggst á íbúa heldur smitar fyrirkomulagið í efsta lagi stjórnsýslunnar einnig út frá sér í stjórnsýslukerfi borgarinnar með tilheyrandi kostnaði fyrir íbúa og atvinnulíf. Langar boðleiðir, þungir verkferlar og marglaga og svifasein stjórnsýsla eru dæmi um það. Eflaust er eitt mest lýsandi dæmið af slíku þegar stigi í Hörpu svignaði undan fjölda nokkur hundruð millistjórnenda á stjórnendadegi Reykjavíkurborgar.[2] Stærðin ein tryggir ekki hagkvæma stjórnsýslu Stjórnsýslukostnaður Reykjavíkurborgar á íbúa er mestur meðal fimm stærstu sveitarfélaga landsins, um 50% hærri, þrátt fyrir að borgin sé fjölmennasta sveitarfélag landsins og ætti að njóta aukins stærðarhagræðis (mynd 2). Þá er stjórnsýslukostnaður misjafn milli sveitarfélaga sem hafa svipaðan íbúafjölda, t.d. er kostnaðurinn ríflega helmingi meiri í Reykjanesbæ en í Garðabæ, þrátt fyrir að bæði sveitarfélög hafi um 20.000 íbúa. Þannig tryggir stærð ein og sér ekki hagkvæma stjórnsýslu enda ber stærsta sveitarfélagið hæstan stjórnsýslukostnað á íbúa. Því má ætla að tækifæri séu til hagræðingar innan sveitarfélaga, ekki síst á meðal þeirra sem stærri eru. Svarið liggur þó ekki í stærðinni sjálfri, heldur í því hvernig stjórnsýslan er byggð upp. Ef markmiðið er að ná betri nýtingu fjármuna sveitarfélaga þarf að byrja á rót vandans, umfangi og skipulagi stjórnsýslunnar. Áskorun fyrir minni sveitarfélög að halda kostnaði í skefjum Íslensk sveitarfélög standa frammi fyrir ólíkum en skyldum áskorunum eftir stærð. Í fámennari sveitarfélögum er stjórnsýslukostnaður á íbúa hár þar sem föst útgjöld dreifast á fáa, sem þýðir að hlutfallslega stærri hluti skatttekna fer í yfirbyggingu fremur en beina þjónustu, á meðan stærri sveitarfélög, einkum Reykjavík, glíma oft við sjálfskapaðan vanda; flókið og umfangsmikið stjórnkerfi sem einnig dregur úr skilvirkni og bindur fjármagn í innri rekstur og yfirbyggingu. Gott fyrsta skref í að auka skilvirkni í stjórnsýslu Reykjavíkurborgar væri að fækka borgarfulltrúum og draga úr umfangi stjórnsýslu. Í tilfelli minni sveitarfélaga felast einkum tækifæri í sameiningum eða samvinnu um umfangsmikil verkefni. Með lagabreytingum sem stuðla að þessu mætti tryggja að skattfé nýtist fyrst og fremst í þjónustu við íbúa, frekar en flókna stjórnsýslu og yfirbyggingu. Höfundur er lögfræðingur Viðskiptaráðs. [1] Laun fyrstu varaborgarfulltrúa allra flokka sem sæti eiga í borgarstjórn, sem eru 8 talsins, eru á bilinu 893 þús. kr. – 1.471 þús.kr. [2] „Stigi í Hörpu svigaði undan hópi stjórnenda“. Vísir (2018). Slóð: https://www.visir.is/g/2018835561d/stigi-i-horpu-svignadi-undan-hopi-stjornenda Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rekstur hins opinbera Sveitarstjórnarmál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Stjórnsýsla Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar