Hálfsannleikur og ósannindi Magnúsar Árna Skjaldar Magnússonar Hjörvar Sigurðsson skrifar 29. mars 2026 07:00 Með ákvörðun um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið hefur utanríkisráðherra, sem og aðrir stjórnarliðar, ítrekað lagt áherslu á mikilvægi þess að upplýst umræða eigi sér stað í aðdraganda hennar. [1] Í þágu þess úthlutaði utanríkisráðherra fjármunum til þriggja aðila, þar með talið Evrópuhreyfingarinnar sem hlaut tíu milljónir króna. [2] Í ljósi þess er miður að sjá hvernig formaður þeirra samtaka kýs að haga málflutning sínum. Þetta er þó ekki alfarið nýtt enda hefur utanríkisráðherra sjálfur sett fordæmi með ómálefnalegri og enn fremur popúlískri nálgun að þessari mikilvægu umræðu. [3] Íslendingar allir – bæði þeir sem bera ábyrgð á Íslandi á líðandi stundu sem og þeir sem koma til með að erfa þá ábyrgð á komandi árum, en einnig, og ekki síður mikilvægara, þeir sem byggðu landið upp í gegnum aldirnar - eiga betra skilið. Í aðsendri grein á Vísi 28. mars gerir Magnús Árni Skjöld Magnússon, formaður Evrópuhreyfingarinnar, það sem talsmenn aðildar (einna helst utanríkisráðherra sjálfur) hafa því miður lagt sér í vana að gera, eða að sneiða fram hjá mikilvægum staðreyndum og jafnvel endurtaka ósannindi ítrekað gegn betri vitund. [4] Með því talar þetta fólk, að mínu mati, niður til kjósenda. Magnús hefur grein sína með því að leggja áherslu á að spurning þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé einföld – restinni af greininni ver Magnús svo ómeðvitað í að afsanna þessa fullyrðingu. Í greininni – sem er í raun lítið meira en endurtekning yfirborðskenndra frasa – endurtekur Magnús ítrekað að um sé að ræða einfalt samtal við Evrópusambandið með það markmið að upplýsa íslenskan almenning: „Því viðræður eru ekki skuldbinding um niðurstöðu. Þær eru leið til að afla upplýsinga, skýra valkosti og gera þjóðinni kleift að taka upplýsta ákvörðun síðar.“ „Að hafna viðræðum er því ekki hlutlaus afstaða. Það er ákvörðun um að vilja ekki vita meira!“ „Í raun má segja að við stöndum frammi fyrir einfaldri spurningu: Viljum við klára samtalið eða slíta því áður en niðurstaða liggur fyrir?“ „En það sem ætti að sameina okkur er að vilja skilja hana [þá stöðu að Ísland taki við hluta regluverks Evrópusambandsins án þess að koma að samningu þess] til fulls áður en við tökum afstöðu til framtíðarinnar. Viðræður snúast um nákvæmlega það.“ „Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst því ekki um að segja já eða nei við Evrópusambandinu. Hún snýst um það hvort við viljum hafa allar upplýsingar á borðinu áður en við tökum þá ákvörðun.“ Þetta er auðvitað rangt. Aðildarviðræður við Evrópusambandið eru, samkvæmt Evrópusambandin sjálfu, „ferli sem felur í sér upptöku gildandi laga Evrópusambandsins, undirbúning til að geta beitt þeim og framfylgt þeim á réttan hátt, og innleiðingu dómsmála-, stjórnsýslu-, efnahags- og annarra umbóta sem nauðsynlegar eru til að landið uppfylli skilyrðin fyrir aðild, svokölluð aðildarskilyrði.“ [5] Sömuleiðis er það viðurkennt í greinargerð með þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðsluna. [6] Með öðrum orðum: Velji þjóðin að halda áfram aðildarviðræðum er ekki valið einfaldlega að „afla upplýsinga, skýra valkosti og gera þjóðinni kleift að taka upplýsta ákvörðun síðar“ heldur er valið sömuleiðis að hefja aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Velji þjóðin að hafna áframhaldandi aðildarviðræðum er valið sömuleiðis ekki að „vilja ekki vita meira“ heldur er valið að hefja ekki aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Þetta hlýtur Magnús að vita, en því virðist mér óhjákvæmilegt að komast að þeirri niðurstöðu að hér tali Magnús gegn betri vitund á sama tíma og hann stuðlar að þeirri upplýsingaóreiðu sem hefur þegar hafið að einkenna umræðuna að stórum hluta. Reyndar gerir sjálfur utanríkisráðherra það sömuleiðis og, það sem verra er, gerir það ítrekað. [3] Enn fremur nefnir Magnús að Íslandi taki, í gegnum EES-samninginn, þegar upp „stóran hluta af því regluverki sem mótar okkar efnahagslíf og samfélag“ en að við „sitjum ekki við borðið þegar þær reglur eru mótaðar“. Þetta er í besta lagi hálfsannleikur þar sem sá hluti regluverks Evrópusambandsins sem við tökum upp er aðeins einn af mörgum, en nær allt sem liggur utan innri markaðs Evrópusambandsins liggur sömuleiðis utan EES-samningsins. [7] Okkur ber engin skylda að aðlaga okkur að landbúnaðar-, sjávarútvegs-, utanríkis- eða öryggisstefnu sambandsins né öðrum málaflokkum sem varða tolla, réttarkerfið, skatta, efnahag o.s.frv. Inngöngu í Evrópusambandið fylgir þó að okkur ber að aðlaga okkur að regluverki sambandsins í öllum þessum málaflokkum. Sé kosið að halda áfram aðildarviðræðum í ágúst hefst sú aðlögun. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] Þó ber að halda því til haga að það er umdeilt hvort um sé að ræða áframhald viðræðna eða nýtt upphaf. Einnig er margt sem gefur ástæðu til að efast um heilindi þessara fullyrðinga utanríkisráðherra, til að mynda tímasetning þjóðaratkvæðagreiðslunnar. [2] https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-12-09-evropuhreyfingin-og-heimssyn-fa-hvort-um-sig-10-milljonir-fra-stjornvoldum-461121 [3] https://www.visir.is/g/20262855216d/thor-gerdur-katrin-treystir-ekki-thjodinni [4] https://www.visir.is/g/20262862209d/ad-hafna-vidraedum-er-ad-hafna-upplysingum [5] https://enlargement.ec.europa.eu/enlargement-policy/steps-towards-joining_en (Þýðing er mín eigin) [6] "Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum, eins og Ísland lagar sig að reglum innri markaðar ESB samkvæmt EES-samningnum.“ https://www.althingi.is/altext/157/s/0875.html [7] Hér er sömuleiðis mikilvægt að halda því til haga að fullyrðingar um að Ísland hafi þegar innleitt eitthvað á borð við 75-80% af því regluverki sem EES-samningurinn varðar standast ekki skoðun: https://www.stjornmalin.is/?p=48130 Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir Skoðun