Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér Marta Rut Ólafsdóttir skrifar 27. mars 2026 16:32 Það er best að búa í Hveragerði, segir 9 ára sonur minn reglulega - og honum er ég mjög sammála. Góð samfélög verða ekki til af tilviljun. Þau verða til með skýrum ákvörðunum, ábyrgri stjórnun og framtíðarsýn. Ég er alin upp á Hvoli í Ölfusi en gekk í leik- og grunnskóla í Hveragerði, eins og margir íbúar í dreifbýli Ölfuss. Ég þekki því vel það öfluga og hlýja samfélag sem hér hefur byggst upp. Hér liggja mínar rætur. Ég flutti til Reykjavíkur á menntaskólaárunum, flæktist aðeins um heiminn, bjó um tíma í Frakklandi og kláraði svo háskólanám frá Háskólanum í Reykjavík. Þegar von var á eldri drengnum mínum, fyrir 10 árum síðan, var það þó auðveld ákvörðun að flytja aftur heim. Hér vil ég ala upp börnin mín og ég vil að Hveragerði sé áfram sá staður þar sem fjölskyldur sjá framtíð sína. Ég er rekstrarverkfræðingur að mennt og starfa sem viðskiptaþróunarstjóri. Menntun mín snýst í grunninn um að greina flókin verkefni, forgangsraða rétt, nýta fjármagn skynsamlega og tryggja að ákvarðanir skili raunverulegum árangri. Þetta eru nákvæmlega þau verkefni sem sveitarfélög standa frammi fyrir á hverjum degi. Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífinu, bæði úr alþjóðlegum rekstri og úr nýsköpunarumhverfi þar sem hraði, ábyrgð og árangur skipta sköpum. Sú reynsla hefur kennt mér að árangur næst ekki af sjálfu sér - heldur með skýrri forgangsröðun, festu og eftirfylgni. Sem formaður Menningar-, atvinnu- og markaðsnefndar Hveragerðisbæjar síðustu tvö ár hef ég fengið góða innsýn í hvernig bæjarfélagið starfar og ekki síður hvar tækifærin liggja til að gera enn betur. Það er mikilvægt að halda áfram að þróa bæinn í takt við þarfir íbúa og vöxt bæjarfélagsins. Á þessu kjörtímabili hefur verið ráðist í aðkallandi verkefni sem skipta íbúa miklu máli. Ný viðbygging við grunnskólann hefur risið með gæsilegu mötuneyti og hátíðarsal ásamt góðri aðstöðu fyrir sérfræðinga, svo sem talmeinafræðinga, þroska-, og iðjuþjálfa og sérkennara. Leikskólinn hefur verið stækkaður og hefur öllum börnum frá 12 mánaða aldri verið tryggt leikskólapláss, auk þess sem leikskólagjöld hafa lækkað um 70%. Uppbygging íþróttamannvirkja hefur einnig verið sett í forgang. Gervigrasvöllur verður tekinn í notkun á vormánuðum og grunnur hefur verið lagður að stækkun íþróttahússins. Samhliða þessu er verið að byggja upp atvinnulíf til framtíðar. Við Árhólma er í gangi metnaðarfullt verkefni þar sem opna á baðlón á næstunni og skapa ný störf. Einnig hafa verið stigin þörf skref til stækkunar fráveitumannvirkja svo innviðir standi undir vexti. Þessi verkefni eru til marks um að þegar skýr stefna og vilji er til staðar er hægt að ná raunverulegum árangri á tiltölulega skömmum tíma. Það er mikilvægt að halda áfram á þeirri braut og nýta það góða skrið sem hefur náðst. Sem oddviti Framsóknar í Hveragerði legg ég áherslu á skýra forgangsröðun: að byggja upp sterka innviði, tryggja ábyrgan rekstur og skapa tækifæri fyrir íbúa og atvinnulíf. Það krefst áframhaldandi samvinnu og kjarks til að taka ákvarðanir og fylgja þeim eftir. Að loknum komandi kosningum kann að skapast sú staða að Framsókn hafi áhrif á ráðningu bæjarstjóra. Í slíkri stöðu teljum við mikilvægt að horfa til stöðugleika og árangurs. Pétur G. Markan, núverandi bæjarstjóri, hefur leitt mörg verkefni sem mikilvægt er að fylgja áfram af festu, þannig að sú vinna sem þegar hefur verið lögð í skili sér til íbúa. Framsókn í Hveragerði vill vinna með öllum sem vilja leggja sitt af mörkum til að efla samfélagið og tryggja að sú uppbygging sem hafin er haldi áfram með skýra stefnu og markvissa framkvæmd. Ég er stolt af því að leiða lista Framsóknar í Hveragerði. Metnaður minn er skýr: að gera gott samfélag enn betra - með ábyrgum ákvörðunum og skýrri sýn til framtíðar. Höfundur er oddviti Framsóknar í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar