Sex félög pikkföst í sínu sæti en barist um þrjú laus sæti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. mars 2026 11:33 Emil Karel Einarsson og félagar í Þórsliðinu geta ekki bara treyst á sig sjálfa í kvöld. vísir/Hulda Margrét Lokaumferð Bónusdeildar karla í körfubolta fer fram í kvöld og baráttan snýst um þrjú laus sæti. Grindavík er orðið deildarmeistari en Grindvíkingar geta haft áhrif á fallbaráttuna.
Sex félög vita í hvaða sætum þau enda sama hvernig fer í kvöld. Við vitum því líka að Grindavík og Njarðvík munu mætast í átta liða úrslitum sama hvernig fer. Við vitum líka að Valsmenn enda í fjórða sætinu og ÍR-ingar verða í sjöunda sætinu. Það er aftur á móti ekki ljóst hvaða lið munu bíða Valsmanna og ÍR-inga. Valsmenn mæta liðinu í fimmta sæti og það getur bæði orðið KR eða Keflavík sem berjast um fimmta sætið. Eins geta ÍR-ingar mætt bæði Tindastól eða Stjörnunni sem berjast um annað sætið. Keflvíkingar komast upp fyrir KR-inga á betri stöðu í innbyrðis viðureignum takist þeim að ná þeim að stigum og sömu sögu má segja af Stjörnumönnum nái þeir að vinna upp tveggja stiga forskot Stólanna. Íslandsmeistarar Stjörnunnar eru eina liðið sem gæti mögulega mætt þremur félögum í átta liða úrslitunum eða Keflavik, KR eða ÍR. Það er mikið undir hjá Ármenningum og Þórsurum sem berjast fyrir sæti sínu í deildinni. Þórsarar þurfa ekki aðeins að vinna deildarmeistara Grindavíkur á útivelli heldur einnig að treysta á það að fallið lið Skagamanna vinni Ármann. Öll önnur úrslit þýða að Þórsarar falla úr deildinni. Álftnesingar, sem eru fastir í 9. sæti, gætu bæði endað með jafnmörg stig og Njarðvíkingar, sem fara í úrslitakeppnina sem og að enda með jafnmörg stig og lið sem fellur úr deildinni. Innbyrðis viðureignir sjá hins vegar til þess að Álftanes getur hvorki hækkað sig né lækkað sig í töflunni í kvöld.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn Ármann KR Valur Tindastóll Stjarnan Grindavík ÍA ÍR UMF Álftanes UMF Njarðvík Keflavík ÍF Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Liverpool - Villarreal | Áfram á sigurbraut í Meistaradeildinni? Fótbolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Fleiri fréttir Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Valur - Haukar | Hörkuslagur á Hlíðarenda Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Sjá meira