Ekkert bendi til tengsla við Hamas-samtökin Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2026 12:15 Líkamsárásin var framin í bílakjallara Höfðatorgs á mótum Katrínartúns og Borgartúns. Vísir/Vilhelm Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að ekkert bendi til þess að menn, sem handteknir voru í tengslum við alvarlega líkamsárás í Túnunum í Reykjavík í síðustu viku hafi tengsl við Hamas-samtökin þvert á það sem fullyrt var í umfjöllun Morgunblaðsins í morgun.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu sem send var á fjölmiðla skömmu eftir hádegi í dag. „Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn. Rannsókn málsins er annars í fullum gangi og er í algjörum forgangi hjá embættinu. Hún er mjög viðamikil og tímafrek eftir því, en tveir sitja nú í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar,“ segir í tilkynningunni. Á þriðja tug tókust á Árásin átti sér stað aðfararnótt þriðjudagins 17. mars síðastliðinn. Á þriðja tug manna tókust þar á, meðal annars með eggvopni og kylfum, auk þess sem ekið var á einn. Áður hafði verið greint frá því að samkvæmt heimildum fréttastofu hafi verið um uppgjör í undirheimum að ræða. Árásin er meðal annars rannsökuð sem tilraun til manndráps og hafa alls átta verið handteknir í tengslum við rannsóknina, en eins og áður segir sitja tveir enn í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu voru flestir þeirra sem voru viðloðnir þessi átök erlendir ríkisborgarar og hluti þeirra dvalið stund á Íslandi. Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglu, greindi frá því í gær að brotaþolar væru þrír og einn þeirra Íslendingur sem þurfti að dvelja á gjörgæslu í nokkra daga. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Lögreglumál Alvarleg líkamsárás í bílakjallara Höfðatorgs Tengdar fréttir Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs í Reykjavík hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars. 24. mars 2026 11:24 Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Annar maður var handtekinn í gær eftir alvarlega hópárás í bílakjallari undir Höfðatorgi í Reykjavík. Hann hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðahald. 21. mars 2026 16:07 Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. 20. mars 2026 21:44 Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira
Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás Sýnileiki öryggisgæslu í bílakjallara Höfðatorgs í Reykjavík hefur verið aukinn eftir hópárás sem átti sér stað í kjallaranum aðfaranótt 17. mars. 24. mars 2026 11:24
Einn handtekinn til viðbótar í tengslum við hópárásina Annar maður var handtekinn í gær eftir alvarlega hópárás í bílakjallari undir Höfðatorgi í Reykjavík. Hann hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðahald. 21. mars 2026 16:07
Sleppt úr haldi eftir hópárásina á Höfðatorgi Fjórum karlmönnum sem handteknir voru í tengslum við alvarlega hópárás í bílakjallara undir Höfðatorgi í Reykjavík hefur verið sleppt úr haldi lögreglu. Einn er enn í gæsluvarðhaldi en ekki var farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum. 20. mars 2026 21:44