…og ég vil að þjóðin segi sitt álit Helga Vala Helgadóttir skrifar 18. mars 2026 16:32 Nýlega birtist grein á Vísi undir fyrirsögninni “Ég vil ekki kosningar um mögulega ESB umsókn í haust” þar sem því er haldið fram að ekki eigi að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið vegna þess að það hafi ekki verið lykilmál í síðustu Alþingiskosningum. Slík nálgun stenst að mínu mati illa skoðun. Alþingiskosningar snúast aldrei um eitt einstakt mál. Þær snúast um heildarsýn á samfélagið og hvernig eigi að stýra landinu á fjölmörgum sviðum. Kjósendur taka afstöðu til efnahagsmála, heilbrigðismála, menntamála og samgangna, loftslagsmála, byggðamála, utanríkisstefnu, mannréttinda og margt fleira en ekki síst um þá einstaklinga sem eru í framboði hverju sinni. Þær snúast þannig líka um traust á persónum og leikendum. Það er því einföldun, jafnvel misskilningur, að halda því fram að niðurstaða Alþingiskosninga gefi ekki nógu skýrt umboð í einu tilteknu máli af þeim fjölmörgu sem komu til umræðu í aðdraganda kosninga, hvað þá þegar það tiltekna mál var ekki eitt af stóru málunum sem náðu á dagskrá í spretthlaupi fjölmiðlaumfjöllunar í aðdraganda kosninga. Við sjáum þetta skýrt í framkvæmd. Stjórnmálaflokkar leggja áherslu á ólík málefni fyrir kosningar. Einn flokkur kann að leggja megináherslu á umhverfismál og gefa út ítarlegar stefnuyfirlýsingar um loftslagsaðgerðir og náttúruvernd, svo dæmi sé tekið. Annar leggur áherslu á skattamál eða húsnæðismál. Það þýðir þó ekki að það mál sem flokkurinn setur í öndvegi verði sjálfkrafa ráðandi kosningamál í hugum kjósenda og stýri atkvæðum þeirra. Raunin er sú að það eru kjósendur sjálfir sem ákveða hvaða mál skipta þá mestu máli hverju sinni. Skoðanakannanir undanfarin ár sýna til dæmis að heilbrigðismál hafa verið fyrirferðarmest í hugum almennings í aðdraganda kosninga. Hvernig ber þá að afgreiða það af næstu ríkisstjórn? Hafa ekki allir flokkar eitthvað á sinni stefnuskrá um heilbrigðismál? Má þá ætla að vegna þess að til dæmis menntamál komust sjaldnar á dagskrá þá megi ekki tala um það á kjörtímabilinu, nú eða breytingar á veiðigjöldum, svo dæmi sé tekið? Greinarhöfundurinn, sem vill ekki spyrja þjóðina um hvort halda eigi áfram viðræðum við ESB, virðist líta svo á að vegna þess að þetta var ekki aðalumræðuefnið fyrir kosningar þá megi ekki spyrja þjóðina á milli þingkosninga. Þetta er aftur algjör rökleysa því þjóðaratkvæðagreiðsla af þessu tagi er einmitt upplagt verkfæri til að fá fram skýra afstöðu þjóðarinnar til þess tiltekna atriðis. Það gerist ekki lýðræðislegra en að spyrja þjóðina beint, viltu að við höldum áfram viðræðum við ESB til að við sjáum hvernig samning við getum fengið? Rökin gegn slíku beinu samráði við þjóðina fara gegn grunnreglum lýðræðisins. Lýðræði snýst einmitt um að gefa þjóðinni tækifæri til að tjá sig um mikilvæg málefni þegar tilefni er til, ekki aðeins á fjögurra ára fresti og ekki aðeins um það sem var efst á baugi í síðustu kosningabaráttu heldur hvaðeina sem er á dagskrá núna. Spurningin um hvort Ísland eigi að hefja að nýju viðræður um aðild að Evrópusambandinu er stór og mikilvæg. Hún snertir efnahag, fullveldi, viðskipti, gildi og stöðu Íslands í alþjóðasamfélaginu. Það er því eðlilegt og lýðræðislegt að þjóðin fái að segja sitt álit á því máli sérstaklega og andstaðan gegn því þrengir að lýðræðinu. Þvert á móti ætti greinarhöfundurinn að fagna því að gefa kjósendum tækifæri til að taka skýra afstöðu til jafn afgerandi og í raun einfalds máls sem áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er. Sterkt lýðræði byggir á upplýstri umræðu og beinni þátttöku almennings. Þess vegna á ekki að óttast spurninguna, heldur leyfa þjóðinni að svara henni og virða niðurstöðuna. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Helga Vala Helgadóttir Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar