Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. mars 2026 18:10 Donald Trump Bandaríkjaforseti og Eric Cantona, fyrrum leikmaður Manchester United. Getty/Ash Donelon/Roberto Schmidt Knattspyrnugoðsögnin Eric Cantona hefur sett fram eldheita skoðun sína á ákvörðunum forseta að fara með þjóð sína út í stríð.
Cantona tjáði þessa sérstöku skoðun sína þegar hann var spurður út í það að Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu stríð á móti Íran fyrir tveimur vikum. Fyrrverandi stjarna enska fótboltaliðsins Manchester United hefur lagt til að forsetarnir sjálfir ættu að vera neyddir til að fara sjálfir í fremstu víglínu ef þeir hefja átök, í stað þess að „senda þangað átján ára unglinga.“ Það er nóg af stríðum út um allan heim og það lítur út þannig í augum Cantona að það sé of auðvelt fyrir þjóðarleiktoga að líta á stríðsástök sem raunhæfa og farsæla lausn. Cantona bætti við að hann vildi draga úr stríðsátökum með því að láta stjórnmálaleiðtoga bera beina ábyrgð á þeim átökum sem þeir hefja. Hinn 59 ára gamli Cantona lét þessi orð falla í franska spjallþættinum Clique og sagði við þáttastjórnandann að hann vildi „biðja alþjóðadómstól um alþjóðalög sem myndu kveða á um að ef forseti ákveður að hefja stríð ætti hann að vera fremstur í flokki í stað þess að senda átján ára unglinga á víglínuna.“ „Og þá held ég að stríðin yrðu færri,“ bætti Cantona við. Cantona átti goðsagnakenndan feril hjá Manchester United þar sem hann vann sex stóra titla á aðeins fimm tímabilum, fjóra Englandsmeistaratitla og tvo bikarmeistaratitla auk þess að verða enskur meistari með Leeds United áður en hann kom til United. View this post on Instagram A post shared by JOE (@joe_co_uk)
Enski boltinn Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Manchester United Mest lesið Lætur umræðu síðustu daga sem vind um eyru þjóta: „Gullið tækifæri Körfubolti Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Enski boltinn Neuer eignaðist niðurlægjandi met Fótbolti Bjartsýnn á að spila aftur eftir þriggja hæða fall Golf Baldvin og Andrea fögnuðu sigri í fyrsta míluhlaupinu Sport Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Fótbolti Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Fótbolti Evrópskt stórlið með augu á Degi Handbolti Fleiri fréttir Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Sjá meira