Í stríði við náttúruna - baráttan um landið Ólafur Valsson skrifar 16. mars 2026 08:31 Fólk um allan heim stendur á öndinni yfir þeim hörmungum sem ganga yfir Miðausturlönd, þar sem mannslíf skipta engu máli nema séu bandarísk eða ísraelsk. Hér á landi er hins vegar annað stríð sem minna er um fjallað en það er stríðið gegn náttúru landsins. Þar fara fremst í flokki stórfyrirtæki ýmist í íslenskri eða erlendri eigu. Fyrirtæki sem eins og önnur stórfyrirtæki hafa að leiðarljósi vöxt og stöndugan efnahagsreikning og að gera vel við sína eigendur. Þar er á stundum reynt að komast hjá „óþarfa“ flækjum sem munu hvort eð er ekki skila neinu í kassann fyrr en kanski fyrir komandi kynslóðir. Fremst í þessum flokki fara orkufyrirtæki sem vinna og flytja orku. Áróðursmaskína þeirra hefur um langt skeið hamrað á yfirvofandi orkuskorti, án þess þó að huga að vandaðri notkun þess hugtaks. Það sem þessi fyrirtæki kalla orkuskort er nú bara umframeftirspurn. Land sem framleiðir og flytur tvöfalt meira magn af orku per mannsbarn en það land sem næst kemur, Noregur, býr ekki við orkuskort. Að halda slíku fram er blekking og það heldur ósvífin. Það kann hins vegar að vera að það vanti einhverja sýn á hvað við sem samfélag viljum nota orkuna í og hvernig tryggt er að þessi gífurlega mikla orka fari ekki bara í það sem hentar þessum erlendu og innlendu orkufyrirtækjum. Þeim sem tala fyrir hömlulausum ágangi á náttúru landsins hefur nú borist liðsauki úr óvæntri átt. Umhverfisráðherra sem á að standa vörð um náttúruna hefur frá því hann tók við þeim ráðherradómi unnið markvisst að því að veikja stöðu náttúruverndar í landinu. Hann virðist með öðrum orðum vera 95 prósent orkumálaráðherra og kanski 5 prósent umhverfis- og loftslagsráðherra. Eitt orkufyrirtækjanna fékk hann til að leggja fyrir Alþingi að setja í flýti lög ætluð í þeim tilgangi að knýja í gegn umdeilda virkjun, hann hefur gengið þvert á faglegt mat rammaáætlunar og fært virkjunarkosti í nýtingarflokk og þá sem eiga að vera í vernd vill hann í bið. Það ætti að vera ráðherra umhugsunarefni að helsta klappstýra hans á Alþingi er Jón Gunnarsson þingmaður sem hefur í áratugi verið helsti talsmaður óhefts ágangs á náttúru landsins til framleiðslu og flutnings orku fyrir stóriðjuna. Nýjasta útspil umhverfisráðherra er svo boðun nýs frumvarps um flýtingu uppbyggingar raforkuinnviða og einföldun regluverks. Ekki einu sinni stjórnarskrárvarinn eignarréttur skal standa í vegi. Hann vill færa valdið til sín frá óháðum dómstólum og sendir varúðarregluna út í hafsauga, skerðir enn möguleika almennings á að veita stjórnvöldum aðhald samkvæmt Árósarsamningnum og gefur orkufyrirtæki vald til að fara sínu fram um línulagnir hvort sem áhöld eru uppi um lögmæti og/eða hagsmunamat. Því verður að spyrja hverjir séu ráðgjafar ráðherra í þessum mikilvæga málaflokki. Í þessu nýjasta útspili ráðherra er sýnt aðeins á spilin að því er virðist óviljandi. Þar hefur nefnilega gleymst að eyða öllum athugasemdum í skjalinu og þar er ein frá einum af æðstu stjórnendum ráðuneytisins „Sama hér, vantar að ræða um aðgang að landi og mælingu sem tengjast þvi, frekar en bara eignarnámi.“ Mann rekur í rogastans, hver er þessi starfsmaður ráðuneytis sem virðist lítinn skilning hafa á réttindum almennings, að ekki sé minnst á eignarrétt? Jú, maðurinn er til þess að gera nýskipaður skrifstofustjóri í ráðuneytinu og verkfræðingur. Áður yfirmaður hjá HS Orku sem allir vita að er í meirihlutaeigu erlendra aðila og hefur fengið stórfellda aðstoð ríkisins til að verja eignir sínar á Suðurnesjum. Ef þetta sýnir hverjir ráðgjafar ráðherra eru í málum sem snúa að jafnvægi milli nýtingar og náttúruverndar er þá nema von að hann sé áttavilltur? Höfundur er áhugamaður um vernd og endurheimt votlendis, líffræðilegs fjölbreytileika og ósnortinna víðerna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar