Keyrir út póst með nauðgunardóm á bakinu Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 06:45 Maðurinn starfar við póstdreifingu en var dæmdur fyrir að nauðgun og kynferðislega áreitni í fyrra. vísir Karlmaður sem dæmdur var fyrir að nauðga fjórtán ára barni starfar við akstur og dreifingu pósts í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra. Gerandi og þolandi eru bæði búsett í sveitarfélaginu. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að verklag fyrirtækja og öryggismat sé endurskoðað þegar starfsmenn eru sakfelldir fyrir svo alvarleg brot. Hinn dæmdi segist vera fjölskyldumaður og ekki hættulegur.
Málinu hefur verið áfrýjað en ekkert frekar liggur fram varðandi það samkvæmt upplýsingum frá embætti ríkissaksóknara. Pósturinn segist ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. Aðstandendur brotaþola hafa óskað þess að hann verði færður í starfi og að hann komi ekki á heimili þeirra. Fleiri hafa óskað þess samkvæmt heimildum fréttastofu auk þess sem þau hafa lýst yfir verulegum áhyggjum af þessum aðstæðum við Íslandspóst sem hefur í svari til þeirra, samkvæmt heimildum fréttastofu, sagt manninn halda vinnunni meðan á áfrýjun stendur. Kalli á umræðu um ábyrgð fyrirtækja Aðstandendur brotaþola segja að þeim þyki undarlegt að maðurinn sé ekki færður til í starfi. Þó hann komi ekki lengur heim til þeirra með póst hafi hann borið út á vinnustað brotaþola sem hafi valdið henni miklum óþægindum. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að skoða verklag og öryggismat fyrirtækja þegar starfsmenn hafa verið sakfelldir í héraðsdómi, á fyrsta dómstigi, fyrir svo alvarlegt brot. Þó svo að dómur sé ekki endanlegur telja þau það varða almannahagsmuni og kalla á umræðu um ábyrgð fyrirtækja og vernd brotaþola í samfélaginu. Gerandinn, Andrés Páll Ragnarsson, var dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands vestra í desember í fyrra fyrir að nauðga og áreita kynferðislega dóttur nágranna síns þegar hún var 14 ára. Brotin áttu sér stað á nýársnótt 2023. Fram kemur í dómi að Andrés Páll kyssti stúlkuna á heimili hennar og nauðgaði henni svo í sinni íbúð, í sama húsi, sama kvöld. Andrés Páll var sjálfur á 33. aldursári þegar hann braut gegn stúlkunni. Hann viðurkenndi kossinn, sagði hann gagnkvæman, en sagði restina af kvöldinu hafa verið „blörrí“. Sagðist vera fimmtán ára Í dómi má greina að stúlkan hafi verið í afar viðkvæmri stöðu og hafði barnavernd svæðisins ítrekað haft afskipti af henni. Hún sagðist hafa verið mjög drukkin á heimili sínu og að hún myndi ekki hvernig það kom til að þau hefðu kysst. Hún hafi þó við það tilefni sagt honum að hún væri aðeins fimmtán ára. Fram kemur svo í dómi að eftir þennan koss hafi hún svo farið með manninum í íbúð hans í sama húsi og ítrekað sagt honum að hætta en hann ekki gert það. Stúlkan sagði móður sinni og kærasta frá þegar hún kom aftur upp og svo félagsráðgjafa hjá barnavernd síðar. Fjallað var um dóminn á vef Vísis í desember. Niðurstaða Héraðsdóms Norðurlands vestra er sú að Andrési Páli hafi átt að vera ljóst að verulegur aldursmunur væri á þeim og að þó svo að hann vísi til þess að samræði þeirra hafi verið með vilja beggja liggi fortakslaust bann við samræði við börn undir fimmtán ára aldri. Það skipti engu hvort barnið samþykki það og það sama gildi um kynferðislega áreitni. Viti að fólk hafi óskað þess að fá hann ekki heim Andrés Páll segir í orðsendingu til fréttastofu að á meðan málið sé til áfrýjunar ætli hann ekki að tjá sig frekar um það. Hann segir aðstæður þó erfiðar og sérstaklega vegna smæðar samfélagsins. „Það sem skiptir mig mestu máli er fjölskyldan mín. Við erum fjölskylda með ung börn og biðjum einfaldlega um að fá frið. Það hefur þegar gerst að fólk hefur haft samband við vinnuveitanda minn og óskað eftir því að ég komi ekki til þeirra heim til að sinna vinnunni minni. Ég er ekki hættulegur maður, ég er einfaldlega maður sem vill vinna vinnuna sína og sjá fyrir fjölskyldunni minni,“ segir Andrés Páll.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Pósturinn Réttindi barna Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Flekahreyfingar innan Samfylkingar Innlent Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sakar ráðherra um alræðistilburði í nafni mannréttinda „Ríkisstjórnin getur ekki flúið eigin vandræði inn í Evrópusambandið“ Í beinni: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Sturlaugur nýr bæjarstjóri Akranessbæjar Evrópumet í verðhækkunum og vígbúnaðarkapphlaup Mál Steinu fer fyrir Hæstarétt Sofandi á akbraut Sjá meira