Kaþólska kirkjan og uppbygging íslensks heilbrigðiskerfis Árni Már Jensson skrifar 13. mars 2026 09:16 Í bók höfundar, St. Jósepssystur á Íslandi 1896-1996, lýsir Ólafur H. Torfason einum merkasta kafla í Íslenskri heilbrigðissögu fyrr og síðar. Þegar systurnar komu til landsins 1896 var Ísland 75 þús manna þjóð sem bjó við mikinn skort og hnignun enda fátækasta þjóð í Evrópu. Iðnbyltingin hafði ekki náð til landsins með bættum lífskjörum og sár fátækt var landlæg. Einungis Holdsveikraspítalinn í Laugarnesi var starfræktur. Spítali sem var reistur fyrir gjafafé Oddfellow reglunnar í anda kristilegs bræðralags. Þessum spítala til viðbótar var einkaklíník á Akureyri með átta sjúkrarúmum og önnur í Reykjavík með 12 sjúkrarúmum. Hvorug var aðgengileg fátækum almúganum. Moldargólf og smitsjúkdómar Íslendingar bjuggu við aðstæður sem voru víðs fjarri þeim kröfum um hreinlæti og heilbrigði sem þekktust í nágrannalöndunum. Helmingur landsmanna bjó í torfbæjum með moldargólfum undir lausum tréfjölum, sem voru gróðrarstía fyrir landlæga taugaveiki, berkla-og holdsveiki. Vannæring olli m.a. beinkröm og geðsjúkdómum og lúsagangur var daglegt brauð hjá almenningi sem hafði hvorki efni á menntun né aðgangi að læknisþjónustu. Ungbarnadauði og mæðra-dauði á sóttarsæng var meðal þess hæsta sem þekktist meðal þjóða Evrópu. Uppbygging Íslensks heilbrigðiskerfis Á einungis hundrað árum reistu St. Jósepssystur og St. Franziskussystur, með stuðningi Kaþólsku kirkjunnar, sjö sjúkrahús sem markaði upphafið að nútíma heilbrigðiskerfi á Íslandi. Stofnanirnar voru hátæknisjúkrahús á evrópskan mælikvarða þess tíma sem fjármögnuð voru í gegnum net hjálparstofnanna á vegum Kaþólsku kirkjunnar. Landakotsspítali vígður 19. júní 1902. Sjúkrahúsið á Fáskrúðsfirði vígt 1904. Sjúkrahúsið á Ísafirði vígt 1924. St. Jósepsspítali í Hafnarfirði vígður 1926. Fæðingarheimilið í Reykjavík vígt 1927. Sjúkrahúsið í Stykkishólmi, vígt 1935. Geðsjúkrahúsið á Litla-Hrauni á Eyrarbakka. Þótt húsakynnin á Eyrabakka hafi tekið á sig aðra mynd sem fangelsi ríkisins, var upphaflegt framtak systranna að byggja fyrsta geðsjúkrahús á Íslandi. Ólafur H. Torfason dregur einnig fram hvernig systurnar beittu sér fyrir byggingu nútíma lokaðra vatnsveita til aukins hreinlætis og heilbrigðis. Þær innleiddu dauðhreinsun áhalda og nauðsyn þess að aðskilja sjúka frá heilbrigðum til að rjúfa smitleiðir ásamt því að auka þekkingu þjóðarinnar á mikilvægi ferskra matvæla og neyslu grænmetis og ávaxta. Leó páfi XIII Sá páfi sem átti upphaflega frumkvæðið að því að senda St. Jósepssystur til Íslands var Leó XIII (pafi 1878–1903). Hann var þekktur fyrir mikinn áhuga á félagsmálum og skrifaði m.a. tímamótabréfið Rerum Novarum um réttindi verkafólks og félagslegt réttlæti. Hann vildi að kirkjan sýndi mátt sinn í verki með því að reisa spítala og skóla þar sem neyðin var mest. Síðar, þegar uppbyggingin stóð sem hæst á 20. öldinni, naut starfið mikils stuðnings frá eftirmönnum hans, sérstaklega Píusi XI, sem lagði áherslu á að kristniboð skyldi ávallt fylgja félagslegri uppbyggingu og líknarmálum. Fjáröflun St. Jóseps-og St. Franziskusystur fjármögnuðu sjúkrahúsin nánast alfarið án aðkomu íslenska ríkisins. Fjármagnið kom úr þremur megin áttum: 1. Söfnunarfé Stærstur hluti fjármagnsins kom frá Evrópu, einkum Frakklandi, Danmörku og Hollandi. Systurnar fóru í víðtækar söfnunarferðir um Evrópu og öngluðu smáaurum og stærri framlögum frá vel viljugu trúuðu fólki sem vildi styrkja „trúboðið við íshafið“. Páfagarður lagði einnig til veglega styrki úr kristniboðssjóðum sínum. 2. Sjálfboðavinna Systurnar unnu án launa. Sú gríðarlega vinna sem fór í uppbyggingu sjúkrahúsanna, rekstur og hjúkrun var m.a. fjármögnuð með fórnfýsi í kristilegum kærleika. Þar sem launakostnaður systranna var nánast enginn, gátu þær notað þær tekjur sem spítalarnir fengu beint í frekari uppbyggingu, tækjakaup og laun lækna. 3. Tekjur af annari starfsemi Systurnar voru verklagnar, vinnusamar og nýtnar. Þær ráku oft búskap, garðyrkju og prentsmiðjur, eins og í Stykkishólmi, sem skiluðu tekjum inn í spítalareksturinn. Allur afgangur var settur í ný sjúkrarúm eða lækningatæki. Grettistak Kaþólsku kirkjunnar Saga St. Jóseps-og St Franziskusystra er dæmi um hvernig kristin kærleiksþjónusta Kaþólsku kirkjunnar gat leitt heila þjóð frá miðaldastigi í heilbrigðisþjónustu til nútímans. Á einungis hundrað árum lögðu Kaþólsku systurnar grunninn að þeirri heilbrigðisþjónustu sem við í dag teljum sjálfsagðan rétt hvers borgara. Rétt, sem fyrir einungis 130 árum síðan var ekki valkostur á Íslandi. Þetta var í senn andlegt og vísindalegt grettistak sem markaði tímamót í íslenskri heilbrigðissögu. Þakkir Vill höfundur þakka Kaþólsku kirkjunni fyrir ómetanlegt framlag til uppbyggingar heilbrigðiskerfis á Íslandi á tímabili fátæktar og neyðar með slíkum krafti og hraða að einungis er hægt er að líkja við kraftaverk blessað af Drottni Jesú Kristi. Bæn Trúðu á tvennt í heimi, tign, sem hæsta ber: Guð í alheims geimi, Guð í sjálfum þér. (Höf:Steingrímur Thorsteinsson) Höfundur er frumkvöðull og stofnandi Pax Vobis og áhugamaður um frjálsa hugsun, lýðræði, kristna trú og gildi. Heimildir: St. Jósepssystur á Íslandi 1896-1996. Höf: Ólafur H Torfason 1997 Tímarit.is og fleiri heimildir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar