Lygin um að á Íslandi sé nauðgunarmenning Huginn Þór Grétarsson skrifar 12. mars 2026 22:02 Hluti af áróðri ýmissa kvennahreyfinga, og í sumum tilfellum stjórnvalda, er að draga upp ranga mynd af ofbeldi. Karlar eru málaðir upp sem gerendur og konur sem þolendur – þó rannsóknir staðfesti að konur og karlar séu álíka oft þolendur heimilisofbeldis. Dómsmálaráðherra tönglast á ofbeldi gegn konum en hunsar karla. Forsætisráðherra tekur undir. Stofnanir halda úti áróðri og búið er að ljúga því að ofbeldi sé bundið við annað kynið. Sjá umfjöllun mína um lygina um kynbundið ofbeldi hér: Upphrópanir eins og feðraveldi, ofbeldismenn og nauðgunarmenning hafa verið hluti af áróðrinum. Öllum er ljóst að áróðurinn beinist gegn karlmönnum. Þetta er hluti af niðrandi tali gagnvart karlkyni sem hefur viðgengist ámælislaust árum saman, þar sem allir karlar eru dregnir í dilka, og fjölmiðlar og ríkisstofnanir hafa tekið fullan þátt í að bera út neikvæðar alhæfingar. Þessi innræting um nauðgunarmenningu er komin inn í skólakerfið. Menntamálastofnun gefur út handbók fyrir kennara til stuðnings slíkum áróðri (með fulltrúa Kvenréttindafélags Íslands): „Nauðgunarmenning er félags- og menningarlegt fyrirbæri þar sem árásargjörn hegðun karla í garð kvenna í kynferðismálum er talin eðlilegur hluti af samskiptum kynjanna. Slík menning umber og viðheldur ofbeldinu með því að loka augunum fyrir því, gera lítið úr því, afsaka það eða réttlæta.“ Í sömu áróðurs-handbók er gert lítið úr því að menn teljist saklausir sé sekt þeirra ekki sönnuð, talað um að dómstóll götunnar sé frasi sem þjóni nauðgunarmenningunni og þar birtast mun fleiri stórfurðulegar hugmyndir þeirra sem aðhyllast því að trúa konum í blindni. Tölfræðin talar sínu máli – örlítill hópur gerenda En skoðum tölfræðina. Lögregla gerir árlega könnun meðal almennings. Úrtakið er um 4000 manns og svarhlutfall um 45%, þó breytilegt á milli ára. Samkvæmt tölfræði frá lögreglu síðustu 4 ár segjast um 2,1-2,6% einstaklinga hafa þolað einhvers konar kynferðisofbeldi innan hvers árs. Þetta geta einnig verið ýmis minni brot, kynferðisleg áreitni o.s.frv. Ef við skoðum tölfræðina frá árinu 2025 sögðust 2,6% hafa þolað einhvers konar kynferðisbrot. 97,4% þjóðar höfðu enga tegund slíks ofbeldis þolað. Af þessum afmarkaða hópi sögðu 12,4% hafa þolað nauðgun. Það eru einungis 0,32% svarenda, sem sögðust hafa orðið fyrir nauðgun. Aðrir þættir sem þarf að hafa til hliðsjónar Það er staðfest að einhver hluti fólks segir ósatt, eða skynjar mögulega atburði með öðrum hætti en atburðarásin var. Það er þekkt að í einhverjum tilfellum fær fólk eftirsjá og fyllist reiði sem skyggir á rökhugsun. Aðrir bera upp rangar ásakanir til að hefna sín eða réttlæta eigin gjörðir. Ef við gefum okkur að um 75% þeirra sem segjast hafa orðið fyrir nauðgun hafi sætt slíku broti, þá stendur eftir 0,24% svarenda. Annar þáttur sem vert er að horfa til er að svarhlutfall í rannsókn lögreglunnar er um 45%. Það vill vera að þeir sem hafa frá einhverju að segja, eða kvarta, leggi það frekar á sig að svara langri könnun. Má því ætla að einhver skekkja sé vegna þessa. Ef við ætlum að þeir sem hafi lent í einhverju slíku broti séu líklegri til að taka þátt í svona rannsókn, þýðir það að tölfræði lögreglunnar er ofmat á þeim sem urðu fyrir nauðgun innan ársins. Annað sem er þekkt og lögregla bendir á, er að þolendur eru fleiri en gerendur. Þannig að jafnvel þó svo að t.d. 0,24% hefðu þolað nauðgun, eru gerendurnir einhverju færri. Þetta þarf ekki að vera mikill munur innan árs en vert er að nefna þetta engu að síður, sérstaklega þegar horft er á tölfræði yfir lengra tímabil. Að lokum nefni ég það, að fólk er kannski síður tilbúið til að opna sig við lögreglu þar sem um yfirvald er að ræða. Það gæti þýtt eitthvert vanmat á fjölda þeirra sem hafi þolað nauðgun innan tímabilsins. M.v. þessa yfirferð má ætla að um 0,2-0,3% hafi nauðgað innan viðmiðunartímabilsins (séu gerendur). Þetta er sáralítill hluti af þjóðinni og fjarstæðukennt að slíkt sé menningareinkenni heillar þjóðar. 99,7% hið minnsta eru ekki að nauðga á þessum tíma og eru ekki hluti að einhverri „nauðgunarmenningu“ svokallaðri. Á langri mannsævi lendum við mörg hver í ýmsu misjöfnu. Tölur frá Evrópusambandinu sýna að um 5% kvenna hafi orðið fyrir nauðgun á lífsleiðinni. Tölurnar eru hærri frá Bandaríkjunum. Í rannsókn hérlendis (Áfallasaga kvenna) er nauðgun og tilraun til nauðgunar dregið saman, sem skekkir verulega myndina, því túlkun á því hvað sé tilraun til nauðgunar er mjög reikandi og getur gefið skakka mynd. Þó sögðust 25% kvenna hafa einhvern tímann á lífsleiðinni þolað nauðgun eða „tilraun“. En hér þarf að horfa til þess að afmörkuð hræðileg atvik eru þó ekki viðvarandi og einkennandi fyrir líf okkar, heldur einmitt skelfilegur atburður sem við aðgreinum frá venjulegu lífshlaupi og lítum neikvæðum augum. Menning þjóðar: Allur almenningur á móti nauðgunum Menning er skilgreind sem sameiginleg gildi, venjur, hugmyndir, viðmið og hegðunarmynstur sem einkenna samfélag eða hóp. Til að eitthvað geti talist menning í landi þarf það að fela í sér sameiginleg gildi og siði stórs hluta þjóðar. Það sem er hluti af menningu telst eðlilegt í augum almennings. Svo er alls ekki með nauðgun. Nauðgun fellur ekki undir það að vera menning á Íslandi: Á Íslandi er nauðgun refsiverð. Fólki þykir almennt nauðgun vera hræðilegur glæpur. Allur almenningur, bæði karlar og konur, er á móti nauðgunum. Karlmenn dregnir í dilka Þessi niðrandi orðræða sem margar málsmetandi konur hafa leyft sér að halda úti (og einn karlmaður styrktur af kvennasjóði sem siglir undir fölsku nafni, „Jafnréttissjóður“), um að hér á landi ríki nauðgunarmenning, sýnir okkur hversu ómálefnaleg umræðan hefur verið, og hún einkennst af áróðri hópa sem hafa fjárhagslegan hag af því að blása vandann út. Þó hver nauðgun sé vissulega hræðilegt afbrot má ekki taka þessi ljótu mál og varpa yfir heila þjóð, bera upp á hana nauðgunarmenningu – enda fráleitt að svo sé. Það eru ýmis brot sem við getum ekki útrýmt að fullu, en þó langur vegur frá því að við góðkennum eða umberum þau, líkt og ranglega hefur verið haldið fram. Höfundi er umhugað um að rétt sé farið með staðreyndir um ofbeldi. Hann berst gegn niðrandi orðræðu í garð karlmanna. Á Íslandi er menning og afstaða þjóðar á þann veg, að við erum á móti nauðgunum. Allt tal um annað er neikvæður áróður. Höfundur er sjálfboðaliði innan Samtaka um Karlaathvarf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Lögreglumál Mest lesið „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir Skoðun Hver er munurinn fyrir vinstrið á EES og ESB? Jökull Sólberg Auðunsson Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson Skoðun Skoðun Skoðun Fatlaðir henda hækjum og blindir fá sýn núna Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Grand Fenwick við Faxaflóa Júlíus Valsson skrifar Skoðun 66 milljónir verða að 477 milljónum! Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Níu atriði til umhugsunar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Rúnar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Ríkisstjórn sem vandar sig ekki veldur skaða Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Framtíðarsýn um réttlæti og stöðugleika Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Á eigin skinni Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Nú á þjóðin leik – já til að sjá 29. ágúst Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Loksins sameinuð! Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Næsta stafræna gjá Íslands er þegar að myndast Stefán Atli Rúnarsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur: skýjaborgir eða raunhæf samningsmarkmið? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Helvíti hægt Ármann Halldórsson skrifar Skoðun „Noregur hefur aðildarviðræður við Evrópusambandið“ Gunnar H. Garðarsson skrifar Skoðun Umsnúningur hugmyndafræði xD Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Að taka mynd eða að skapa mynd Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Hver er maðurinn? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri til bættra samganga Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Þjóðin og valdið Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Innihald náms skiptir máli – ekki umbúðirnar! Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Þegar framsetning verður að umbótum Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar Skoðun JÁ til að sjá eða NEI til að bjarga sjálfstæðinu? Jón Daníelsson skrifar Skoðun Verðið er skilgreint – varan ekki Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sjáum hvað landsbyggðunum býðst Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar Skoðun Leiftursókn gegn lýðheilsu Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Er Ísland í alvöru svo miklu ríkara en umheimurinn? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég segi nei 29. ágúst Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Sjá meira
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun
Skoðun Getur bætt efnahagsumhverfið skilað íslenskri fjölskyldu 5–8 milljóna á ári? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir skrifar
Skoðun Á meðan þjóðin ræðir ESB er heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga lagt niður Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal skrifar
Lygar um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræður við Evrópusambandið Kristín Vala Ragnarsdóttir Skoðun
Stríðsglæpamenn á Íslandi Sigurlaug Knudsen,Margrét Kristín Blöndal,Katrín Harðardóttir,Elsa María Blöndal Skoðun