Kristinn ekki bænheyrður Eiður Þór Árnason skrifar 12. mars 2026 15:59 Kristinn Jens Sigþórsson var prestur í Saurbæjarprestkalli til ársins 2019. Hæstiréttur mun ekki taka fyrir mál Kristins Jens Sigurþórssonar, fyrrverandi prests í Saurbæjarprestakalli á Hvalfjarðarströnd, gegn Þjóðkirkjunni. Hann fór fram á skaðabætur eftir að prestakall hans var lagt niður árið 2019 og um leið embætti hans. Landsréttur sýknaði kirkjuna af kröfum Kristins í nóvember og vildi hann í kjölfarið áfrýja til Hæstaréttar.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður dæmt Þjóðkirkjuna skaðabótaskylda í sama máli en þeim dómi var snúið við í Landsrétti. Kristni bauðst að taka við nýju embætti í Garða- og Hvalfjarðarstrandarprestakalli eftir að ákvörðun var tekin um að leggja embætti hans niður. Honum var veittur frestur til 10. apríl 2019 til að þiggja boðið en Kristinn þáði það ekki fyrr en í byrjun september sama ár, að því er fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar. Það var talið of seint og hafnaði biskup Íslands í kjölfarið ósk hans um að fara á lögmæt eftirlaun. Taldi Kristinn að hann hafi verið látinn bera hallann af því að settur biskup Íslands hafi ekki staðfest fyrir dómi að nýja embættið hafi enn staðið honum til boða í lok ágúst 2019. Hann hafi því haft réttmætar væntingar um að embættið hefði enn staðið honum til boða þegar hann tilkynnti um að hann myndi þiggja það. Sjá einnig: Kirkjan skaðabótaskyld gagnvart Kristni Kristinn hafði verið sóknarprestur í prestakallinu frá árinu 1996. Hluti af starfskjörum hans var að vera ábúandi og umráðamaður jarðarinnar Saurbæjar á Hvalfjarðarströnd, en þar var heimili Kristins og fjölskyldu hans. Taldi viðbrögð kirkjunnar samrýmast meðalhófi Landsréttur taldi að málsmeðferð við þá ákvörðun kirkjuþings að leggja niður prestakallið hefði verið lögmæt og byggst á lögmætum og málefnalegum grundvelli. Það sama hefði átt við um ákvörðun biskups um niðurlagningu sóknarprestsembættisins. Þar sem Kristinn hefði ekki verið fluttur milli embætta í samræmi við lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins hefði ekki komið til álita að hann ætti tilkall til eftirlaunaréttinda. Loks taldi Landsréttur að viðbrögð Þjóðkirkjunnar þegar Kristinn kvaðst í byrjun september 2019 vilja taka boði um embætti prests, sem kirkjan hafði gefið honum frest til að svara til 10. apríl sama ár, hefðu hvorki verið í ósamræmi við meginreglu stjórnsýsluréttar um réttmætar væntingar né reglu um meðalhóf. Hæstiréttur hafnaði beiðni Kristins um áfrýjunarleyfi og vísaði til þess að ekki væri litið svo á að úrslit málsins hafi verulegt almennt gildi í skilningi laga um meðferð einkamála. Þá yrði ekki séð að málið varði sérstaklega mikilvæga hagsmuni Kristins eða að dómur Landsréttar væri bersýnilega rangur. Mygla í prestbústaðnum Miklar skemmdir urðu á prestsbústaðnum árin 2013 og 2014 þegar heimæð frá Hitaveitu Hvalfjarðar gaf sig. Það varð til þess að heitt vatn rann undir bústaðinn og mikill raki settist í gólfplötu og veggi í kjallara. Það leiddi til myglu og sveppamyndunar sem mælingar verkfræðistofu leiddu í ljós að væru langt umfram hættumörk. Í kjölfarið var farið í umfangsmiklar viðgerðir á húsnæðinu. Árið 2016 vildi Kristinn að gerðar yrðu nýjar mælingar á ástandi bústaðarins, en þá voru merki um versnandi heilsufar heimilisfólksins sem gæti bent til þess að ástand hússins væri heilsuspillandi. Tvær verkfræðistofur voru fengnar til að meta ástandið en niðurstöður þeirra voru ólíkar. Mælingar annarrar stofunnar gáfu til kynna mun meiri raka og myglu en niðurstöður hinnar. Í kjölfarið var Kristni og fjölskyldu hans útvegað húsnæði á Akranesi, en þangað fluttu þau þegar viðgerðir á prestsbústaðnum hófust í janúar 2018. Síðan voru frekari framkvæmdir lagðar til en deilt var um hvort breytingarnar sem búið var að gera væru fullnægjandi. Árið 2019 var prestakallið svo lagt niður.
Mest lesið Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Innlent Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Innlent Bandaríkjamenn virðast lítið vita hvað þeir eru að gera Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Segist saklaus Innlent Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Innlent Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Innlent Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Innlent Lögga með „vægt kvíðakast“ tók sjúkrabíl manns sem hafði verið skotinn Erlent Kristinn ekki bænheyrður Innlent Fleiri fréttir Loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Meðalbiðtími fimmfalt lengri en viðmið landlæknis Ný lög séu eitt af mörgum skrefum sem þurfi að taka Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Óvissustig í Súðavíkurhlíð „Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ „Eins og best verður á kosið í heiminum“ Besta fimleikafólk Danmerkur gefur góð ráð og sýnir á Íslandi „Allt lýðræðið þurrkað út“ Lilja lagði til breytingu á formennsku þingflokks Nýr listi Samfylkingarinnar í Árborg kynntur Sjá meira