Hálfsannleikur afneitunarsinnans Haukur Logi Jóhannsson skrifar 12. mars 2026 13:03 Það hefur orðið æ algengara að sjá í umræðu um loftslagsmál að einstökum tölum, myndritum eða staðhæfingum sé stillt upp eins og þær afhjúpi einhvern falinn sannleika sem vísindasamfélagið vilji ekki ræða. Á samfélagsmiðlum og í pólitískri umræðu birtast reglulega fullyrðingar um að loftslagsbreytingar séu stórlega ýktar eða jafnvel rangar. Oft er vísað í eina mælingu, eitt tímabil eða eina rannsókn sem á að sýna að hlýnun jarðar sé annað hvort lítil eða hluti af náttúrulegum sveiflum. Þetta eru þó sjaldnast bein ósannindi. Miklu oftar er um að ræða hálfsannleik. Og hálfsannleikur getur verið áhrifameiri en bein lygi vegna þess að hann byggir á broti af raunveruleikanum en sleppir því samhengi sem skiptir mestu máli. Loftslag jarðar er flókið kerfi þar sem andrúmsloft, höf, jöklar, land og lífríki tengjast í stöðugu samspili. Þegar hitajafnvægi jarðar breytist hefur það áhrif á allt þetta kerfi samtímis. Þess vegna er ekki hægt að taka eina breytu og láta hana tala fyrir alla þróunina. Þegar heildarmyndin er skoðuð blasir þó við skýr niðurstaða. Meðalhiti jarðar hefur hækkað hratt frá iðnbyltingu og hlýnunin hefur aukist sérstaklega á síðustu áratugum og er að aukast enn hraðar. Frá níunda áratugnum hefur meðalhiti jarðar hækkað um rúmlega 0,2 gráðu á áratug og síðasti áratugur hefur verið sá hlýjasti frá því mælingar hófust. Samkvæmt Alþjóðaveðurfræðistofnuninni (WMO) var árið 2024 heitasta árið í sögu mælinga. Á sama tíma hefur styrkur koltvísýrings í andrúmslofti náð hæstu gildum í milljónir ára og mældist yfir fjögur hundruð og tuttugu hlutar á milljón árið 2024. Þetta eru einfaldlega mælingar sem koma úr ólíkum gagnasöfnum um allan heim. Samt birtast aftur og aftur fullyrðingar sem eiga að grafa undan þessari mynd. Ein þeirra er að loftslag jarðar hafi alltaf breyst. Það er auðvitað rétt. Saga jarðar sýnir ísaldir og hlýskeið sem hafa komið og farið löngu áður en menn fóru að brenna kolum, olíu og gasi í stórum stíl. Eitthvað sem þessi sömu vísindi, sem gagnrýnd eru af afneitunarsinnum, hafa sýnt fram á. En það sem skiptir máli í vísindalegri umræðu er ekki aðeins hvort breytingar eigi sér stað heldur hversu hratt þær gerast og hvað knýr þær áfram. Núverandi hlýnun er að gerast á áratugum fremur en árþúsundum og fellur tímasetning hennar saman við gríðarlega aukningu gróðurhúsalofttegunda vegna mannlegra athafna. Önnur algeng staðhæfing er að veðuröfgum hafi ekki fjölgað. Stundum er vísað til þess að ákveðnar tegundir storma hafi ekki aukist í fjölda. Slíkar staðhæfingar geta verið réttar ef þær eru skoðaðar mjög afmarkað. En vísindin snúast ekki aðeins um fjölda atburða heldur einnig um styrk þeirra og líkurnar á að þeir gerist. Hlýrra andrúmsloft getur haldið meiri raka sem eykur líkur á mikilli úrkomu og flóðum. Hlýrri höf geyma meiri orku sem stormar geta nýtt sér. Þess vegna getur áhættan aukist jafnvel þótt fjöldi atburða breytist lítið. Þá er stundum bent á að aukinn koltvísýringur sé jákvæður vegna þess að hann örvi vöxt plantna. Í því felst ákveðinn sannleikur. Gervihnattagögn sýna að stór hluti gróðursvæða jarðar hefur orðið grænni síðustu áratugi og aukinn styrkur koltvísýrings í andrúmslofti hefur stuðlað að aukinni ljóstillífun plantna. Rannsóknir benda til þess að um fjórðungur til helmingur gróðursvæða jarðar hafi sýnt aukna gróðurþekju á síðustu áratugum. En það segir ekki alla söguna. Á sama tíma aukast þurrkar víða, hitastreita plantna verður meiri og skógareldar hafa stækkað á sumum svæðum. Vistkerfi bregðast við mörgum þáttum í einu og aukinn koltvísýringur leysir ekki þau vandamál sem fylgja breytingum á hitastigi, úrkomu og vatnsbúskap. Í umræðu um loftslagsmál er líka oft haldið fram að vísindamenn séu ekki sammála. Það er rétt að vísindasamfélagið er lifandi og gagnrýnið. Rannsóknir eru stöðugt endurskoðaðar og ný gögn bæta við skilning okkar á kerfinu. En þegar horft er á heildina ríkir víðtæk samstaða meðal loftslagsvísindamanna um megin niðurstöðuna að jörðin sé að hlýna og að mannleg losun gróðurhúsalofttegunda sé meginorsök þeirrar þróunar sem mælist frá miðri tuttugustu öld. Ágreiningur snýst fremur um nákvæman hraða breytinga, svæðisbundin áhrif og bestu leiðir til að bregðast við. Umræðan verður enn flóknari vegna þess að loftslagsmál eru ekki aðeins vísindalegt viðfangsefni heldur líka pólitískt. Sumir stjórnmálamenn hafa gert efasemdir um loftslagsvísindi að hluta af pólitískri orðræðu sinni á meðan aðrir leggja áherslu á dramatískustu sviðsmyndirnar til að knýja fram breytingar. Í slíkum aðstæðum verður hætta á að vísindin sjálf verði einfaldlega tæki í pólitískum átökum. Á Íslandi hefur þessi þróun einnig birst þegar loftslagsmál eru notuð til að styrkja fyrir fram mótaðar pólitískar frásagnir fremur en til að ræða gögnin sjálf. Stærsta áskorunin í dag er því ekki skortur á upplýsingum heldur öfugt. Í heimi samfélagsmiðla getur hver sem er sett fram myndrit eða tölur sem virðast sýna fram á hvað sem er. Ef aðeins er valið úr þeim gögnum sem styðja ákveðna skoðun er hægt að búa til frásögn sem lítur sannfærandi út en endurspeglar ekki raunveruleikann. Þegar allar mælingar eru hins vegar lagðar saman, lofthiti, hitastig hafsins, hop jökla, hækkun sjávarborðs og aukinn styrkur gróðurhúsalofttegunda, segja þær sömu sögu. Loftslag jarðar er að breytast og áhrif mannlegra athafna á þá þróun eru skýr. Það þýðir ekki að öllum spurningum séu svarað eða að vísindin séu hafin yfir gagnrýni. Þvert á móti þurfa þau stöðugt að standast gagnrýna skoðun. En gagnrýnin þarf að byggjast á heildargögnum en ekki á brotum úr þeim. Ef umræðan byggist á hálfsannleik verður niðurstaðan ekki upplýst samfélagsumræða heldur einfaldlega keppni um það hver getur sagt meira sannfærandi sögu. Í raun er ólíklegt að þessi stutta grein breyti miklu fyrir þá sem hafa þegar ákveðið að líta fram hjá gögnunum. Þeir sem hafa fest sig í þeirri sannfæringu að loftslagsvísindi séu blekking eða ýkjur munu varla skipta um skoðun vegna nokkurra málsgreina í skoðanadálki. Líklegra er að ég verði einfaldlega settur í sama flokk og aðrir sem tala fyrir loftslagsaðgerðum og stimplaður sem hræðsluáróðursmaður, lygari eða einhver sem sé að reyna að græða á loftslagssköttum. Það fylgir einfaldlega þessari umræðu. En á endanum snýst málið ekki um að vinna rifrildi á samfélagsmiðlum heldur um að halda umræðunni tengdri við það sem mælingar og rannsóknir sýna. Og fyrir okkur sem eigum börn snýst það líka um eitthvað enn einfaldara, að taka ákvarðanir um framtíðina á grundvelli raunveruleikans frekar en þægilegra sagna. Bankareikningurinn minn hefur allavega ekkert fitnað vegna skoðana minna á loftslagsbreytingum heldur þvert á móti. Höfundur er umhverfis- og auðlindafræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haukur Logi Jóhannsson Mest lesið Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Hugrekki til að breyta Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Ósýnileg stjórnarskrárákvæði Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pylsa á stærð við bankakerfi Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Já til að sjá hvað? Geir Finnsson skrifar Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæði-til hvers ? Egill Þórir Einarsson skrifar Skoðun Er Ísland nógu gott fyrir Evrópu? Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar Skoðun Umræðan í aðdraganda kosninga Geir Rögnvaldsson skrifar Skoðun Suðurlandi allt Sandra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Hver á lokaorðið? Meðlimir í Ung gegn ESB-aðild skrifar Skoðun Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Kjörklefinn er síðasti hlekkurinn, ekki sá fyrsti Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Til unga fólksins Illugi Jökulsson skrifar Skoðun Innsæi og góð dómgreind á tímum óvissu Hrund Gunnsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Fljótlegasta leiðin til að lækka verðbólgu og vexti er að segja NEI 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Íslenskur landbúnaður til framtíðar: Hvaða tækifæri gætu falist í Evrópusamstarfi? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Path Dependencies and Critical Junctures: A Response to Baudenbacher Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar