Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Smári Jökull Jónsson skrifar 12. mars 2026 12:01 Pawel Bartoszek er þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar. Vísir/Einar Íslensk stjórnvöld taka þátt í málsókn Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum vegna stríðsreksturs Ísraels á Gasa. Formaður utanríkismálanefndar segir mikilvægt að lögfræðilegar spurningar verði leiddar til lykta og óttast ekki afleiðingar vegna málsóknarinnar.
Utanríkisráðuneytið tilkynnti um málsóknina í morgun en þetta er í fyrsta skipti sem Ísland tekur þátt í málarekstri af þessu tagi. Í málinu fer Suður-Afríka fram á að Ísrael verði dæmt brotlegt við skyldur sínar samkvæmt hópmorðssáttmála Sameinuðu þjóðanna fyrir framgöngu sína á Gasa. Trúnaðarmál þar til í dag Í tilkynningu ráðuneytisins segir að með þátttöku í málsókninni sé verið að framfylgja stefnu sem Alþingi markaði í þingsályktun frá 9. nóvember 2023 þar sem áréttað er að öll brot stríðandi aðila á Gasa á alþjóðalögum verði rannsökuð. Tillagan var samþykkt einróma á sínum tíma. „Utanríkismálanefnd hefur verið upplýst um þetta mál, bæði þegar að Ísland lagði fram eigin greinargerð í málinu og líka að það stæði til að að hafa meðalgöngu í málinu eins og kom fram í dag. Það ríkti trúnaður um þær upplýsingar þangað til í dag þegar upplýsingar myndu liggja fyrir,“ sagði Pawel Bartoszek í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Pawel bætir við að þátttaka Íslands sé framlag landsins til alþjóðakerfisins og hann óttist ekki afleiðingar vegna þátttökunnar. Ráðherra situr fund utanríkismálanefndar Hann vill ekki tjá sig um skoðanaskipti innan utanríkismálanefndar um málið, ráðherra hafi tilkynnt nefndinni um málsóknina og nefndin sem slík hafi ekki ályktað eða kosið um þá ákvörðun. Ráðherra mun sitja funda utanríkismálanefndar sem hefst klukkan eitt í dag. Diljá Mist Einarsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, segir að nefndin hafi fengið trúnaðarbundið minnisblað um fyrirhugaða málsókn en að upplýsingar hafi þó skort. Málinu hafi verið bætt við dagskrá utanríkismálanefndar í dag að hennar ósk. Ísland er eina landið af Norðurlöndunum sem tekur þátt í málsókninni og eitt af sex Evrópuríkjum. Smáríki eins og Ísland hafi ákveðnu hlutiverki að gegna þegar kemur að því að stíga fram með góðu fordæmi. „Í því tilfelli, þá náttúrulega voru þetta mikil átök sem hófust með ógeðfelldri árás Hamas-samtakanna á almenna borgara í Ísrael.“ „En síðan hefur þetta mannfall meðal óbreyttra borgara á Gaza-svæðinu líka verið geigvænlegt og við teljum rétt að ákveðnar lögfræðilegar spurningar verði leiddar til lykta fyrir Alþjóðadómstólnum. Eins og þingsályktunin sem samþykkt var einróma á Alþingi á sínum tíma þegar átökin brutust út, fjallaði um,“ segir Pawel að lokum.
Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Suður-Afríka Palestína Utanríkismál Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Tómas kominn aftur til starfa Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira