Betri borg fyrir börn - og alla aðra Kristinn Jón Ólafsson skrifar 12. mars 2026 08:31 Undanfarin ár hafa Píratar lagt sérstaka áherslu á að gera Reykjavík að borg þar sem börn og fjölskyldur fá raunverulegan forgang. Frá snemmtækri íhlutun í skólum til frístundastyrkja, gjaldfrjálsra almenningssamgangna og aukins aðgengis að íþróttum og menningu. Markmiðið er að byggja borg þar sem hvert barn fær tækifæri til að blómstra á eigin forsendum. Kerfið endurhugsað Eitt skýrasta dæmið um þessa sýn er verkefnið ,,Betri borg fyrir börn” sem Píratar hafa leitt. Þar hefur þjónusta við börn og fjölskyldur verið endurhugsuð frá grunni. Í stað þess að foreldrar þurfi að leita á milli kerfa, eyðublaða og stofnana - vinna skólar, frístundamiðstöðvar og velferðarþjónusta nú betur saman að því að grípa börnin sem þurfa á stuðningi að halda. Og nú er hafin vinna við að innleiða starfsemi menningar- og íþróttasviðs inn í verkefnið í auknum mæli. Betri stuðningur fyrir börn þýðir einfaldara og streituminna líf fyrir foreldra. Umsóknir sem áður voru á pappír og fólu í sér bið sem var áður talin í mánuðum, er nú talin í dögum og hefur færst yfir í stafrænar lausnir. Kennarar, foreldrar og sérfræðingar hafa betra aðgengi að upplýsingum og geta brugðist fyrr við þegar barn þarf aðstoð. Lausnateymi sem innihalda sérkennslustjóra, sálfræðing, félagsráðgjafa og heilbrigðisstarfsmann starfa inni á vettvangi barnanna með það að markmiði að grípa snemma inn í og styðja við hvert barn áður en vandinn verður stærri. Árangur sem tekið er eftir Og þetta skilar árangri. 94% kennara segja að þjónusta lausnateyma hafi farið fram úr væntingum. Betri borg fyrir börn hefur ekki aðeins einfaldað kerfið og gert okkur þannig kleift að grípa börn fyrr heldur hefur verkefnið gert kerfið allt mannlegra. Mannlegra kerfi eykur mikilvægt traust, byggir brýr á milli fólks og skapar sveigjanleika til að mæta fólki þar sem það er. Þetta er einmitt kjarninn í Pírata hugsuninni, að móta kerfin eftir þörfum íbúa. Þessi nálgun hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Verkefnið hefur meðal annars hlotið Gullverðlaun Seoul Smart City Prize og þróunarstyrk frá Bloomberg upp á hundruði milljóna króna. Í erlendum fjölmiðlum hefur verið bent á Reykjavík sem fyrirmynd um hvernig opinber þjónusta getur nýtt stafrænar lausnir, gögn og nútíma aðferðafræði til að einfalda líf fólks. Mikil vinna hefur farið fram innan borgarinnar við breytingar á ferlum, verklagi og uppbyggingu nútíma stafrænna innviða undanfarin ár. Áhrifin sjást víða. Stafræn innritun í grunnskóla sem er nú að raungerast á landsvísu á næstu dögum byggir að stórum hluta á þeirri vinnu sem hófst í Reykjavík. Sama má segja um verkefni eins og ,,Miðju máls og læsis”, sem veitir kennurum og starfsfólki skólanna stuðning, ráðgjöf og fræðslu varðandi málþroska, læsi, íslensku sem annað mál, fjöltyngi og fjölmenningu. Um er að ræða fyrirmyndar verkefni sem hafa kviknað og þróast innan Reykjavíkurborgar sem ný Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu tekur nú við keflinu á og skalar upp á landsvísu. Aukið frelsi og aðgengi barna að sameiginlegum gæðum Að byggja betri borg fyrir börn snýst ekki bara um bætta þjónustu, hún snýst líka um daglegt líf fjölskyldna og aðgengi fólks að þeim sameiginlegu gæðum sem borgin býður upp á. Þess vegna var frístundastyrkurinn hækkaður um 50% - í 75 þús. kr. - strax í upphafi kjörtímabilsins. Aðgengi barna að íþróttum og menningu er fjárfesting sem skilar sér margfalt til baka. Frá 1. maí fá svo öll grunnskólabörn frítt í strætó, sem gerir þeim kleift að ferðast sjálfstætt um borgina til skóla, tómstunda og vina. Í mínum störfum sem fyrsti varaborgarfulltrúi Pírata hef ég m.a. beitt mér fyrir því að sund verði gjaldfrjálst fyrir öll börn til 18 ára aldurs og að boðið verði upp á ungmennakort sem tryggja 18 til 24 ára aðgang að sundlaugum, söfnum og Ylströnd á afslætti. Allt eru þetta mikilvæg skref til að auka vellíðan barna og ungmenna í Reykjavík og létta undir með fjölskyldum. Fjárfesting í framtíðinni Píratar hafa lagt mikla áherslu á að styrkja samfélagið í kringum börnin. Félagsmiðstöðvar og frístundaheimili borgarinnar gegna þar lykilhlutverki. Borgin er leiðandi í þróun frístundastarfs svo eftir er tekið - þar sem félagsfærni, sjálfsmynd og lýðræðisvitund ungmennanna er ræktuð. Sköpunar- og tækniverið Mixtúra hjálpar unga fólkinu að læra um stafræna tækni og borgaravitund. Íslenskuver styðja við fjöltyngi og fjölmenningu, og í Breiðholtinu er markvisst unnið í því að virkja fleiri börn til þátttöku í íþróttum og menningu. Á sama tíma viljum við að borgin sjálf sé leikvöllur fyrir fjölskyldur. Lengri opnunartími bókasafna, fjölbreytt útivistar afþreyjing og nýjar hugmyndir eins og snjóframleiðsla í Ártúnsbrekkunni gera það auðveldara fyrir börn og foreldra að njóta borgarinnar saman. Þegar við setjum börn í forgang erum við ekki bara að fjárfesta í þeirra velferð. Við erum að byggja samfélag sem er öruggara, skapandi og skemmtilegra fyrir alla. Reykjavík getur haldið áfram að vera borg sem styður við börn, fjölskyldur og framtíðina. Og það er verkefni sem Píratar munu halda áfram að leiða - fáum við umboð til þess. Höfundur er nýkjörinn oddviti Pírata fyrir komandi borgarstjórnarkosninga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Píratar Börn og uppeldi Kristinn Jón Ólafsson Mest lesið Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Skoðun Protocol 35: Could Iceland be right after all? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nei nú stækkar nefið þitt Gosi.. sönn frásögn Sonja Lind Eyglóardóttir skrifar Skoðun Við getum ekki mælt okkur út úr vandanum Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Fjölskyldulíf á eigin ábyrgð Svanfríður Bergvinsdóttir,Elsa Hrönn Gray Auðunsdóttir skrifar
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir Skoðun