Ótrúleg dramatík í Íslendingaslag þar sem örlögin réðust Aron Guðmundsson skrifar 10. mars 2026 19:30 Kristján Örn Kristjánsson, Donni. Vísir/Vilhelm Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Kristján Örn Kristjánsson skoraði þrjú mörk fyrir SAH í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld þegar að liðið glutraði niður góðri stöðu gegn Porto og mátti sætta sig við tap sem sér til þess að liðið missir af beinu sæti í átta liða úrslit keppninnar. Lokatölur 29-30, eins marks sigur Porto.
Leikurinn var lengi vel afar jafn en þegar að rétt rúmar ellefu mínútur eftir lifðu af leiknum var staðan 22-21 SAH í vil. Kristján Örn, betur þekktur sem Donni, steig þá upp og skoraði þrjú af næstu fjórum mörkum SAH og átti sinn þátt í því að liðið næði að byggja upp nokkurra marka forystu. Þeirri forystu hélt liðið hins vegar ekki út leikinn, heldur glutraði henni niður og fór svo að Porto fór að lokum með einu marki, 29-30. Úrslitin gera það að verkum að SAH, sem sat í toppsæti riðilsins fyrir þessa síðustu umferð riðlakeppninnar, nær ekki að halda í toppsætið og er þar með á leið í umspil fyrir átta liða úrslit keppninnar. Porto endar í öðru sæti riðilsins með sama stigafjölda og topplið Elverum sem hafði betur gegn Granollers í kvöld og tryggði sér þar með beint sæti í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Þorsteinn Leó Gunnarsson spilaði með Porto í kvöld en komst ekki á blað. Donni endaði með þrjú mörk fyrir SAH og hjá Elverum skoraði Tryggví Þórisson eitt mark. Magnaður Óðinn en lið hans úr leik Í milliriðli fjögur endaði íslenski landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson sem markahæsti leikmaður Kadetten með átta mörk er liðið tapaði með eins marks mun, 29-30 gegn Fredericia. Tapið gerir það að verkum að Kadetten endar í neðsta sæti síns riðils og er úr leik.
Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Rafael Leão ver hnefahöggið sitt Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Dagskráin: Generalprufa enska landsliðsins fyrir HM Sport „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira