Innleiða gervigreindina í MS Árni Sæberg skrifar 10. mars 2026 09:07 Petra Pétursdóttir teymisleiðtogi gervigreindar hjá Apró, Leifur Ingi Vilmundarson konrektor MS og Elín Þóra Ellertsdóttir stjórnandi í viðskiptaþróun hjá Apró. Hari Menntaskólinn við Sund og upplýsingatæknifyrirtækið Apró hafa gert með sér samning um víðtækt þróunarsamstarf á sviði gervigreindar. Samstarfið lýtur annars vegar að innleiðingu á Vitanum, öruggu gervigreindarumhverfi fyrir nemendur og starfsfólk, og hins vegar að ráðgjöf og stefnumótun fyrir þróun kennslu og náms í gervigreind.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að MS nýti gervigreind til að styðja kennara í daglegu starfi og hyggist gera það í enn frekari mæli. Meðal annars við undirbúning kennslu, verkefnagerð, endurgjöf og til að einfalda skjalavinnu og upplýsingamiðlun innan skólans. Með innleiðingu og notkun Vitans öðlist MS fullt eignarhald á gögnum og þeim gervigreindarlausnum sem þar verða þróaðar. Markviss og örugg notkun „Tilgangur samningsins er að tryggja markvissa og örugga notkun gervigreindar innan menntaskólans og skapa traustan ramma utan um tæknina til að styðja við nám, kennsluþróun og daglegt starf. Við viljum að bæði nemendur og starfsfólk geti notað gervigreindina með uppbyggilegum hætti í hvetjandi og skapandi umhverfi. Það skiptir okkur líka lykilmáli að innleiðing á heildrænni lausn af þessu tagi tryggir að nemendur og starfsfólk hafa jafnan aðgang að sameiginlegu umhverfi gervigreindar og jafnframt áreiðanlegum verkfærum,“ er haft eftir Leifi Inga Vilmundarsyni, konrektor Menntaskólans við Sund. Sprotasjóður styrkti verkefnið Upphaf verkefnisins megi reka til þess að MS fékk veglegan styrk frá Sprotasjóði Rannís, en hann styrki verkefni sem stuðla að þróun og nýjungum í skólastarfi í leik-, grunn- og framhaldsskólum. „Við sjáum tækifæri til að taka jákvæð skref fram á við, jafnt til að bæta þjónustu við nemendur og kenna þeim að beisla gervigreindina og nota hana rétt, með ábyrgum og öruggum hætti. Við höfum til dæmis nú þegar smíðað agent eða snjallmenni, sem aðstoðar við þróun og smíðar á verkefnum fyrir þýskukennslu. Við vonumst til að þessi tækni reynist kennurum okkar öflugur hjálparkokkur,“ bætir Leifur Ingi við.
Gervigreind Skóla- og menntamál Tækni Framhaldsskólar Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Viðskipti innlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira