Ræddi við Pútín í síma og íhugar að slaka frekar á refsiaðgerðum Samúel Karl Ólason skrifar 10. mars 2026 08:10 Vladimír Pútín, forseti Rússlands, og Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, í Alaska í ágúst í fyrra. EPA/GAVRIIL GRIGOROV, SPUTNIK Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hringdi í Vladimír Pútín, kollega sinn í Rússlandi, í gær og ræddu þeir saman í klukkutíma. Meðal umræðuefna voru stríðið gegn Íran, Venesúela, staðan á olíumarkaði og stríð Rússa í Úkraínu.
Yfirvöld í Kreml sögðu frá símtalinu í gærkvöldi og birtu yfirlit yfir hvað forsetarnir eiga að hafa rætt sín á milli. Í yfirlýsingu segir ráðgjafi Pútíns að símtalið hafi verið hefðbundið. Forsetarnir hefðu ekki talað saman síðan í desember og að báðir hafi sammælst um að ræða oftar saman. Samkvæmt ráðgjafanum mun Pútín hafa lagt til leiðir til að binda enda á stríðið gegn Íran, sem er bandalagsríki Rússlands. Þá mun Trump hafa ítrekað áhuga sinn á því að binda enda á stríð Rússa gegn Úkraínu eins fljótt og hægt væri. Sjá einnig: Íranir enn vígreifir Í yfirlýsingunni segir að Trump hafi verið gert ljóst að Rússar sæktu fram víða á víglínunni í Úkraínu og það ætti að hvetja yfirvöld í Kænugarði til að semja „loksins“ um endalok stríðsins. Ráðamenn í Rússlandi hafa lagt mikið kapp á að halda því fram við Trump og ráðgjafa hans að sigur þeirra í Úkraínu sé óhjákvæmilegur og að það séu Úkraínumenn sem standi í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa. Sagði símtalið „mjög gott“ Trump-liðar í Hvíta húsið hafa ekkert sagt um símtalið en Trump sagðist á blaðamannafundi í gær hafa átt „mjög gott“ símtal við Pútín. Trump sagði að Pútín hefði viljað hjálpa hvað varðar stríðið gegn Íran, samkvæmt frétt Reuters. „Ég sagði: „Þú gætir hjálpað meira með því að binda enda á Úkraínu-Rússland stríðið. Það væri meiri hjálp í því.““ Stutt er síðan ríkisstjórn Trumps slakaði á viðskiptaþvingunum í garð Rússlands með því að leyfa Indverjum að kaupa rússneska olíu og sleppa við refsiaðgerðir. Trump gaf til kynna í gærkvöldi, eftir símtalið við Pútín, að von væri á frekari tilslökunum, eins og fjölmiðlar ytra hafa sagt til skoðunar í Hvíta húsinu. Sjá einnig: Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Án þess að nefna Rússland sagði hann að markmiðið væri að lækka olíuverð. Hann sagði að þvinganir yrðu felldar niður tímabundið en sagði að mögulega yrðu þær ekki settar á aftur. Þess þyrfti kannski ekki, þar sem það yrði „svo mikill friður“. Trump: "We're also waiving certain oil-related sanctions to reduce prices. So we have sanctions on some countries, we're gonna take those sanctions off until this straightens out. Who knows -- maybe we won't have to put them on, there will be so much peace." pic.twitter.com/qseD3VmgDi— Aaron Rupar (@atrupar) March 9, 2026
Bandaríkin Rússland Donald Trump Vladimír Pútín Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Venesúela Bensín og olía Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Vučić játar ósigur Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira