Aðgerðaáætlun um einföldun EES-regluverksins og afnám gullhúðunar Ólafur Stephensen skrifar 5. mars 2026 07:31 Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðið (ÍEV) hafa sent utanríkisráðherra, forsætisráðherra, atvinnuvegaráðherra og formanni utanríkismálanefndar Alþingis tillögur um aðgerðaáætlun í fimm liðum til að greiða fyrir innleiðingu einfaldari EES-reglna í íslenskan rétt og afnámi svokallaðrar gullhúðunar Evrópureglna. Tillögurnar voru á meðal umræðuefna á árlegum fundi FA og millilandaviðskiptaráða félagsins með utanríkisráðuneytinu fyrr í vikunni. Stefnt að því að létta reglubyrði fyrirtækja um 25-35% FA, ÍEV og utanríkisráðuneytið voru á meðal skipuleggjenda málþings um einföldun Evrópuregluverks í síðasta mánuði. Þar voru kynntar áherzlur framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins í framhaldi af Draghi-skýrslunni, um að einfalda regluverk og létta reglubyrði atvinnulífs í aðildarríkjunum um 25%. Stefnt er að enn meiri afléttingu reglubyrði hjá minni og meðalstórum fyrirtækjum, eða 35%. Mikið af hinum einfölduðu reglum mun verða tekið upp í EES-samninginn og innleitt í íslenska löggjöf. Um er að ræða „bandorma“ eða „Omnibus-pakka“ einföldunargerða, sem breyta ýmsum lagabálkum. Í erindi FA er bent á að þótt einföldun EES-regluverksins sé fagnaðarefni, sé sú innleiðing þó ekki án vandkvæða. Innleiðingarhallinn svokallaði hefur löngum verið vandamál hjá bæði Íslandi og Noregi, þ.e. það tekur of langan tíma að innleiða í innlenda löggjöf reglur sem teknar hafa verið upp í EES-samninginn. Upptökuhallinn, þ.e. bið á upptöku nýrra gerða í EES-samninginn, er ekki síðra vandamál, en í fréttum RÚV fyrr í mánuðinum kom fram að hátt í sjö hundruð reglugerðir og tilskipanir ESB bíða upptöku í EES-samninginn. Þar af eru um fimmtíu sem tóku gildi í ESB-ríkjunum fyrir fimm árum eða meira. Listinn hefur sjaldan verið lengri. Hæg innleiðing skaðar samkeppnishæfni og veldur réttaróvissu Þegar nýja regluverkið er minna íþyngjandi en það gamla skapast sú hætta að ef innleiðingin er ekki hröð og skilvirk, þurfi íslenzk fyrirtæki að starfa eftir regluverki sem er meira íþyngjandi en það sem keppinautar þeirra í öðrum EES-ríkjum búa við. Slíkt skaðar að sjálfsögðu samkeppnishæfni íslenzkra fyrirtækja. Á málþinginu benti dr. Helga Kristín Auðunsdóttir, lektor við lagadeild HR, á dæmi af sjálfbærnilöggjöfinni, en íslenzk fyrirtæki hafa á undanförnum misserum fjárfest háar fjárhæðir í gögnum, kerfum, þekkingu og ráðgjöf til að búa sig undir kröfur, sem við blasir að verði úr gildi fallnar eftir fáein misseri. Litla leiðbeiningu hefur verið að hafa frá viðkomandi stjórnvöldum um hvernig fyrirtækin eigi að bregðast við fyrirsjáanlegum breytingum eða hvernig eftirliti með hlítni við löggjöfina verði háttað. Í þessu ástandi skapast réttaróvissa, sem mikilvægt er að mati samtakanna að lágmarka eins og hægt er. Í erindi FA og íEV er einnig lýst áhyggjum af sífellt þyngra regluverki atvinnulífsins og tilhneigingum til gullhúðunar EES-gerða, þ.e. að bætt sé við þær séríslenzkum, íþyngjandi ákvæðum. Samtökin benda á að tillögum starfshóps utanríkisráðherra, sem áttu að vinna gegn gullhúðun, hafi ekki verið fylgt eftir sem skyldi. Aðgerðaáætlun í fimm liðum FA og ÍEV leggja til að stjórnvöld samþykki aðgerðaáætlun um innleiðingu einföldunargerða og aðgerðir gegn gullhúðun, sem innihaldi eftirfarandi þætti: Einföldunargerðirnar fái forgang hjá sameiginlegu EES-nefndinni. Einföldunargerðirnar verði settar í forgang innan Stjórnarráðsins og tryggt að vinnsla innleiðingarfrumvarpa taki skamman tíma. Setja ætti þá fortakslausu reglu að einföldunargerðirnar verði innleiddar með hreinum innleiðingarfrumvörpum og hvers konar gullhúðun komi einfaldlega ekki til greina. Frumvörpum til innleiðingar einföldunargerðanna verði veittur forgangur í störfum Alþingis. Tilllögum starfshóps utanríkisráðuneytisins um aðgerðir gegn gullhúðun verði hrint í framkvæmd og þær teknar upp í samþykkt ríkisstjórnarinnar um undirbúning og frágang stjórnarfrumvarpa og reglur Alþingis um þinglega meðferð EES-mála. Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur verði skipuð á ný til samræmis við lög nr. 27/1999 og fengið hlutverk við að fylgja því eftir að gullhúðun sé ekki beitt við innleiðingu EES-reglna, eða þá að settur verði á fót nýr samráðsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem hafi sama hlutverk. Mikilvægt fyrir minni og meðalstóru fyrirtækin Eins og áður sagði, voru tillögur FA og ÍEV ræddar á fundi með utanríkisráðuneytinu fyrr í vikunni. Félagið hefur einnig óskað eftir fundi með forsætis- og atvinnuvegaráðuneytinu og formanni utanríkismálanefndar Alþingis til að fylgja tillögum félagsins eftir. Íslenzkt atvinnulíf, ekki sízt minni og meðalstór fyrirtæki, eiga mikið undir því að einfaldara Evrópuregluverk skili sér hratt og vel inn í íslenzka löggjöf og að tekið verði fyrir gullhúðunartilhneigingar stjórnvalda. Við vonumst til að fá bæði ráðuneytin og þingið í lið með okkur. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda og Íslensk-evrópska verslunarráðsins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ólafur Stephensen Utanríkismál Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar