Umönnunarbilið og kerfislægar hindranir á íslenskum vinnumarkaði Kolbrún Halldórsdóttir og Sunna Símonardóttir skrifa 4. mars 2026 13:31 Á Íslandi endurspeglar krefjandi staða foreldra ungra barna rótgróið, kerfislægt vandamál á vinnumarkaði; bilið í umönnun frá lokum fæðingarorlofs þar til barn fær pláss á leikskóla eða annarri dagvistun. Ólíkt hinum Norðurlöndunum hafa íslensk stjórnvöld ekki tryggt börnum lögbundinn rétt til leikskólapláss að loknu fæðingarorlofi og því hvílir ábyrgðin á herðum foreldra að brúa bilið. Meirihluti barna fær ekki pláss á leikskóla fyrr en við 18–24 mánaða aldur og einungis 7% barna fá pláss við lok fæðingarorlofs. Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur hlutfall eins árs barna á leikskóla raunar farið lækkandi undanfarið. Umönnunarbilið hefur víðtækari áhrif en sýnist í fyrstu – ekki aðeins á barnafjölskyldur heldur á íslenskan vinnumarkað, tekjuþróun, jafnrétti og hagkerfið í heild. Áhrif á fjárhag og starfsferil mæðra Foreldrar reyna að brúa bilið með því að nýta sér aðstoð ættingja, dagforeldra eða með því að laga atvinnuþátttöku sína að veruleikanum sem við þeim blasir. En þessi úrræði eru ekki aðgengileg öllum og duga oft skammt. Ef það að draga úr atvinnuþátttöku reynist eina leiðin eru það mun oftar mæður sem taka það á sig. Rannsóknir sýna að konur eru líklegri til að lengja fæðingarorlof sitt með lægri greiðslum, fara í hlutastörf eða hverfa tímabundið af vinnumarkaði. Þetta hefur ekki bara bein áhrif á laun þeirra, heldur einnig starfsframa og framtíðarlífeyrisréttindi. Þegar bornar eru saman tekjur karla og kvenna yfir starfsævina bera konur allt að 28% minna úr bítum en karlar. Það segir þó ekki alla söguna því fyrstu krónurnar sem fólk greiðir í lífeyrissjóð eru þær verðmætustu, sem leiðir til skertra eftirlauna hjá konum þegar starfsævi lýkur. Svo þessi ár í upphafi starfsferils skipta miklu. Vinnumarkaðsgögn styðja það sem hér hefur verið rakið. Í nýjasta Hagkorni BHM kemur fram að konur séu 47% allra starfandi og karlar 53%.Munurinn á atvinnuþátttöku kynjanna er hins vegar sá að konur eru meira en tvöfalt líklegri til að gegna hlutastörfum, 34% samanborið við 16% karla, og þær vinna að jafnaði færri vinnustundir í fullu starfi en karlar. Munurinn sést vel í tekjugrunni kynjanna; fyrir hverjar 100 krónur sem karlar afla hafa konur um 80 krónur. Stærsti hluti tekjugliðnunarinnar verður strax eftir fyrstu barneign. Greiningar leiða í ljós að atvinnuþátttaka kvenna lækkar verulega í kjölfar barneigna og er um 20% lægri tíu árum eftir fyrstu barneign miðað við þróunina fyrir barneign. Atvinnuþátttaka karla lækkar hins vegar aðeins lítillega fyrstu árin eftir fæðingu barns, en hækkar fljótlega aftur og nær svipuðu eða hærra stigi en fyrir barneign. Umönnunarbilið er því ekki einungis tímabundin áskorun fyrstu árin eftir fæðingu barns, heldur hefur það langvarandi áhrif á stöðu kynjanna á vinnumarkaði og stuðlar að auknum mun í ævitekjum. Ástæður þess að mæður eru líklegri til að brúa umönnunarbilið eru bæði efnahagslegar og menningarlegar. Sú hugmynd er lífsseig að móðirin sé það foreldri sem „sjálfsagt“ er að sinni umönnun barna, beri meginábyrgð á heimilisstörfum og skipuleggi fjölskyldulífið. Rannsóknir staðfesta þetta, þær sýna að konur verja meiri tíma en karlar í ólaunuð störf og eru líklegri til að vera heima vegna veikinda barna. Þessi ósýnilegu umönnunarstörf og álagið sem þeim fylgir hefur sýnileg áhrif á möguleika kvenna til fullrar þátttöku á vinnumarkaði. Úrræði stjórnvalda og opinber stefna Eitt er það að takast á við foreldrahlutverkið heima fyrir og innan fjölskyldna, en á sama tíma stendur leikskólakerfið sjálft frammi fyrir kerfislægum vanda; skorti á leikskólakennurum, veikri innviðaþróun og mikilli starfsmannaveltu. Því er algengt að væntingar foreldra um leikskólapláss við lok fæðingarorlofs bregðist. Ekki hjálpar að dagforeldrakerfið skuli hafa dregist saman og að húsnæði margra leikskóla skuli vera komið að þolmörkum. Þetta gerir stöðu foreldra enn erfiðari og þrýstingurinn lendir aftur á mæðrum, sérstaklega þeim sem hafa lítið bakland, eru í vaktavinnu eða eru einstæðar mæður. Til að sporna við þessari stöðu hafa sveitarfélög víða tekið upp heimgreiðslur sem ætlað er að bæta foreldrum upp skort á leikskólaplássum. En ný rannsókn Jafnréttisstofu sýnir að 80% viðtakenda heimgreiðslna eru mæður. Með öðrum orðum: Þetta úrræði sem stjórnmálamenn töldu gefa fjölskyldum aukið frelsi viðheldur í reynd kynjaðri verkaskiptingu og hvetur mæður til að vera lengur heima að lokinni fæðingu barns. Áhrifin eru því kerfislæg og varanleg, ekki persónuleg og tímabundin. Samhliða þessu ber að horfa til þess að konur eru fjölmennari en karlar á opinberum vinnumarkaði. Þær starfa þar í þjónustu- og umönnunarstörfum þar sem álag er mikið, launaþróun hæg og hlutastörf algeng. Þetta styður við það sem kemur fram í rannsókn sem Hagfræðistofnun HÍ vann fyrir BHM, að háskólamenntaðar konur séu með svipaðar tekjur og karlar með stúdentspróf — kerfið dragi úr arðsemi menntunar þeirra. Mikilvægt er að opinber stefnumótun taki mið af þessari heildarmynd og að stjórnvöld viðurkenni að skipulag umönnunar ungra barna er ekki einkamál fjölskyldna heldur samfélagslegt verkefni sem hefur víðtæk áhrif á jafnrétti, efnahagslegt öryggi og lífsgæði. Ef við ætlum að tryggja raunverulegt jafnrétti, öflugan vinnumarkað og hagsæld til framtíðar, verður að líta á umönnun ungra barna sem sameiginlega ábyrgð samfélagsins – og fjárfesta í lausnum sem raunverulega jafna leikinn. Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars stendur BHM fyrir morgunverðarfundi í Norræna húsinu á föstudaginn 6. mars kl. 8:30-10:30, þar sem farið verður yfir umönnunarbilið og aðrar áskoranir mæðra á vinnumarkaði. Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHMSunna Símonardóttir formaður jafnréttisnefndar BHM Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sunna Símonardóttir Kolbrún Halldórsdóttir Jafnréttismál Mest lesið Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI? Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar Skoðun Gamli sáttmálinn og sá nýi Aðalsteinn Már Þorsteinsson skrifar Skoðun Er betra? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar