Ég á´etta – ég má´etta! Stefán Pálsson skrifar 4. mars 2026 10:17 Viðbrögð Donalds Trump við þeirri ákvörðun spænskra stjórnvalda að neita Bandaríkjamönnum að nýta herstöðvar sínar á Spáni til árása á Íran eru allrar athygli verð. Forsetinn brást ævareiður við þessari ákvörðun bandalagsþjóðarinnar í Nató og vandaði ekki kveðjurnar frekar en fyrri daginn. Annars vegar tilkynnti hann um allsherjar viðskiptabann Bandaríkjanna á Spán – þótt útfærsla þess sé enn með öllu óljós. Hins vegar lýsti hann því yfir að neitun spænsku stjórnarinnar skipti í raun engu máli. Bandaríkin ættu þessar herstöðvar og gætu í raun nýtt þær á hvern þann veg sem þeim sýndist – enginn gæti stöðvað þau! Hætt er við að ummæli sem þessi týnist og gleymist í þeim orðavaðli sem gengur upp úr Bandaríkjaforseta í viku hverri. Engu að síður er hér um stóráhugaverða yfirlýsingu að ræða. Yfirlýsingu sem ætti að vekja íslensk stjórnvöld til alvarlegrar umhugsunar. Ísland og Bandaríkin hafa sín á milli svokallaðan Varnarsamning, sem illu heilli var ekki felldur úr gildi þegar bandarísku herstöðinni í Keflavík var lokað á árinu 2006. Samningur þessi, með seinni viðaukum, veitir Bandaríkjaher ýmis konar aðstöðu á Íslandi. Svo á að heita að eitthvert jafnræði sé milli samningsaðila, þannig þurfi Íslendingar að veita blessun sína varðandi hvers kyns umsvif á íslensku landi. Hernaðarandstæðingar hafa þó alla tíð bent á hversu fráleit sú hugmynd sé að íslenska utanríkisþjónustan muni nokkru sinni gera annað en að kvitta upp á allar óskir risaveldisins. Engu að síður hafa síðustu utanríkisráðherrar Íslands keppst við að kalla Varnarsamninginn hornstein íslenskrar utanríkisstefnu. Yfirlýst markmið þeirra hefur verið að efla fótfestu Bandaríkjahers á Íslandi með aukinni viðveru og mannvirkjagerð. Hreinskilni Bandaríkjaforseta varðandi herstöðvarnar á Spáni varpar hins vegar ljósi á viðhorf Bandaríkjastjórnar til hernaðarsamninga af þessu tagi. Þeir eru í raun ekki tvíhliða. Bandaríkin áskilja sér rétt til fullra og óheftra afnota af herstöðvum sínum í öðrum löndum. Hafi stjórnvöld þar aðrar skoðanir, eru þær léttvægar fundnar og að auki mega þau vænta þess að sæta refsiaðgerðum. Af atburðum síðustu daga má ljóst vera hvílík gæfa það var fyrir Ísland að bandaríski herinn tók að mestu saman föggur sínar fyrir tveimur áratugum; hversu slæmt það var að hafa ekki nýtt tækifærið þá til að losna undan Varnarsamningnum og hversu fráleit stefna það er að vilja sóa milljörðum í uppbyggingu hernaðarlegra innviða á Íslandi sem augljóslega mun bara færa okkur enn lengra inn á áhrifasvæði Bandaríkjanna og gera okkur enn berskjaldaðri fyrir duttlungum ráðamanna þar. Höfundur á sæti í miðnefnd Samtaka hernaðarandstæðinga. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Pálsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar