Barbabrella hægrisins í leikskólamálum Stefán Pálsson skrifar 3. mars 2026 14:32 Málefni leikskólans verða án nokkurs vafa eitt af stærstu málefnum komandi sveitarstjórnarkosninga. Leikskólastigið hefur staðið frammi fyrir miklum áskorunum sem snúast að miklu leyti um mönnunarmál. Skortur hefur verið á leikskólakennurum og almennu leikskólastarfsfólki sem leitt hefur til þess að ekki hefur gengið nægilega vel að vinna á biðlistum, fáliðaðir skólarnir eru viðkvæmir fyrir öllum forföllum og lítið hefur mátt út af bregða til að loka þurfi heilu og hálfu deildunum svo dögum skipti. Úrsérgengið húsnæði vegna uppsafnaðrar viðhaldsþarfar eykur enn álagið í starfsfólk. Þennan vítahring verður að rjúfa til að leikskólarnir okkar fái að njóta sín sem skyldi. Mörg skref hafa verið stigin í þessa átt á síðustu misserum og fleiri eru framundan. Það eru hins vegar ekki til neinar einfaldar töfralausnir. En töfralausnir eru þó einn traustasti kosningavorboðinn. Enginn hörgull er á stjórnmálaflokkum sem þykjast geta „kippt leikskólamálunum í lag“ í einum hvelli – leiðirnar að því marki eru þó flestar ansi óljósar og útfærslurnar þokukenndar. Eftirlætis Barbabrella flokkanna á hægri væng stjórnmálanna er sú að tala um „fyrirtækjaleikskóla“ sem mikilsverða lausn á vandanum. Þar er látið að því liggja að stöndug stórfyrirtæki standi í röð eftir því að fá að opna leikskóla sem þar með myndu grynnka á biðlistum og gefa væna innspýtingu inn í leikskólakerfið. Þessu kostaboði sé hins vegar hafnað af þröngsýnum pólitíkusum út af pólitískum rétttrúnaði og andúð á einkaframtakinu. Ef það hljómar of gott til að vera satt... Það er kannski skiljanlegt að fólk sem er orðið langþreytt á bið eftir leikskólaplássi sé ginnkeypt fyrir svona töfralausn, en það þarf þó ekki að rýna lengi í hugmyndina til að sjá veilurnar. Nú er í sjálfu sér fátt sem kemur í veg fyrir að áhugasamt stórfyrirtæki stofni sinn eigin leikskóla, að því gefnu að hann uppfylli kröfur og standist eftirlit. Auðvitað gæti það hljómað vel í eyrum slíks fyrirtækis að geta lokkað til sín starfsfólk með loforðum um traust leikskólapláss á besta stað og geta jafnvel stytt þann tíma sem verðmætir starfsmenn eru utan vinnumarkaðar vegna barngæsluvanda... En hérna fara málin að verða flóknari. Ekkert fyrirtæki er til í að borga allan brúsann þegar kemur að rekstri leikskóla. Leikskólar eru kostnaðarsamar samfélagsreknar stofnanir. Þau leikskólagjöld sem foreldrar greiða fyrir vistun barna sinna eru um það bil 7% af hinum raunverulega kostnaði, restin kemur úr sameiginlegum sjóðum – sem vera ber. Hver græðir? Af þessu leiðir að öll þau fyrirtæki sem kunna að hafa áhuga á að stofna leikskóla ætlast til þess að viðkomandi sveitarfélag beri hitann og þungan af rekstrarkostnaðinum. Þau eru kannski til í að greiða einhvern stofnkostnað eða leggja til húsnæði og mögulega taka einhvern þátt í niðurgreiðslunni, en meginkostnaðurinn er alltaf sveitarfélagsins. Í staðinn fyrir sitt tillegg ætlast fyrirtækið hins vegar til þess að starfsfólk þess njóti forgangs að leikskólaplássum umfram aðra borgara. Það er skiljanlegt. Dettur nokkrum í hug að einhver bankinn eða lyfjafyrirtækið kæri sig um að setja væna summu í leikskólarekstur ef það veitti þeirra fólki ekki einhvern forgang? Með öðrum orðum byggist hugmyndin um fyrirtækjaleikskóla á því að unnt sé að kaupa sig framfyrir í röðinni. Ef stöndugur banki greiddi inn í leikskólakerfið myndu starfsmenn hans njóta forgangs að plássum umfram okkur hin í kerfi sem engu að síður er fjármagnað af okkur öllum. Myndum við vilja sjá það sama á öðrum sviðum? Þætti okkur í lagi að stórfyrirtæki gæti með eingreiðslum og framlögum komið foreldrum starfsmanna sinna framfyrir röðina í bið eftir hjúkrunarheimili? Eða tryggt þeim skemmri bið eftir þjónustu í heilbrigðiskerfinu? Fyrirtækjaleikskólar eru engin töfralausn heldur gamaldags pilsfaldakapítalismi og forréttindahyggja. Höfundur er varaborgarfulltrúi og frambjóðandi Vinstrisins í komandi kosningum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Pálsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar