Heyrnin tengir okkur Karen Ósk Gylfadóttir skrifar 3. mars 2026 08:30 Í dag er Alþjóðadagur heyrnar, dagur sem helgaður er því að vekja athygli á forvörnum gegn heyrnarskerðingu og mikilvægi heyrnarheilsu um heim allan. Tilefnið gefur okkur ástæðu til að staldra við, horfa á staðreyndirnar og íhuga þau tækifæri sem felast í aukinni vitund og betra aðgengi að heyrnarþjónustu. Heyrn er ein af grunnstoðum samskipta okkar og þátttöku í samfélaginu. Samt sem áður sýna tölur að 1 af hverjum 5 í heiminum býr við einhvers konar heyrnarskerðingu, og talið er að hlutfallið muni aukast á næstu árum samhliða hækkandi meðalaldri. Samkvæmt Johns Hopkins Medicine er tíðnin enn hærri meðal eldri borgara, eða 1 af hverjum 3 þeirra sem eru 65 ára og eldri. Þá eru yngri aldurshópar ekki undanskildir. Ungt fólk á aldrinum 12 til 32 ára er í sérstakri áhættu, einkum vegna mikillar notkunar heyrnartóla og aukins umhverfishávaða. Sífellt yngra fólk glímir við heyrnarskerðingu vegna breyttra hlustunarvenja og aukins hljóðáreitis. Samkvæmt rannsókn National Institute on Deafness and Other Communication Disorders (NIDCD) mælist heyrnarskerðing hjá um 14% fólks á aldrinum 20 til 69 ára. Þróunin bendir skýrt til þess að sífellt stærri hluti samfélagsins muni á einhverju stigi lífsins glíma við heyrnarskerðingu. Þögul þróun með víðtæk áhrif Heyrnarskerðing þróast oft hægt og getur því farið framhjá fólki um árabil. Rannsóknir og reynsla sýna að margir bíða í allt að tíu ár með að leita sér aðstoðar. Sú bið getur haft veruleg áhrif á árangur meðferðar. Afleiðingarnar snúast ekki eingöngu um það sem við heyrum. Heyrnarskerðing getur haft áhrif á samskipti, þátttöku og síðast en ekki síst sjálfstraust. Margir draga sig smám saman í hlé frá félagslífi vegna þess að það reynir á að fylgja samræðum eða taka þátt í fjölmennum aðstæðum. Þessi félagslega einangrun getur haft veruleg áhrif á lífsgæði og sömuleiðis áhrif á nánustu aðstandendur. Því fyrr sem gripið er inn í, því betri eru langtímahorfurnar. Heyrnarheilsa verður sýnilegri Góðu fréttirnar eru þær að heyrnarheilsa er í auknum mæli að verða sjálfsagður hluti af almennri heilsuumræðu. Tækniþróun hefur verið hröð og nýjar lausnir gera fólki kleift að fylgjast betur með eigin heyrn. Til dæmis hafa stór tæknifyrirtæki,á borð við Apple, innleitt heyrnarmælingar og hljóðstillingar í heyrnartæki og heyrnartól. Slík þróun eykur vitund, dregur úr fordómum og getur hjálpað til við að greina frávik fyrr. Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun er faglegt mat og eftirfylgni sérfræðings lykilatriði. Rétt greining og persónusniðnar lausnir skipta sköpum þegar markmiðið er að bæta heyrn og þar með lífsgæði. Aðgengi og fyrirbyggjandi nálgun Á síðustu árum hefur vitund um heyrnarheilsu aukist til muna og sífellt fleiri leita sér upplýsinga og faglegrar aðstoðar. Hjá Lyfju Heyrn er boðið upp á ókeypis forskimun sem einfalt fyrsta skref. Frá opnun í maí 2023 hafa rúmlega 4 þúsund heyrnarmælingar verið framkvæmdar og um helmingur þeirra sem koma í forskimun reynist vera með einhvers konar heyrnarskerðingu sem þarfnast frekari skoðunar. Það undirstrikar mikilvægi þess að taka fyrsta skrefið, jafnvel þótt einkenni virðist væg. Markmiðið er að grípa inn í fyrr, áður en heyrnarskerðing hefur veruleg áhrif á samskipti, sjálfstraust og þátttöku í daglegu lífi. Ábyrgðin er okkar allra Heyrnin tengir okkur við fólkið í kringum okkur og samfélagið allt. Ábyrgð okkar er sameiginleg: að auka vitund, draga úr fordómum og tryggja að fólk hafi aðgang að faglegri ráðgjöf og þjónustu þegar þörf krefur. Á Alþjóðadegi heyrnar vil ég hvetja fólk til að doka við, hlusta og leyfa heyrninni að koma sér á óvart. Að bregðast snemma við getur skipt sköpum fyrir lífsgæði til framtíðar. Höfundur er framkvæmdastjóri Lyfju. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar