Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Lovísa Arnardóttir skrifar 3. mars 2026 06:31 Súkkulaðiframleiðendur segja mikla lækkun á heimsmarkaðsverði á kakói líklega skila sér til neytenda síðar á árinu. Vísir/Vilhelm/Anton Brink og aðsend Framkvæmdastjórar Nóa Síríus og Freyju eiga ekki von á því að verð á súkkulaði lækki mikið núna um páska þó svo að heimsmarkaðsverð á kakói hafi ekki verið lægra í þrjú ár. Stjórnvöld í Gana og á Fílabeinsströndinni lækkuðu verðið vegna lítillar eftirspurnar. „
Loksins, segjum við bara,“ segir Sigríður Hrefna um lækkun heimsmarkaðsverðs. Hún á þó ekki von á því að þessi lækkun skili sér til neytenda strax. Súkkulaðiframleiðendur séu iðulega búnir að binda sig í ákveðnu verði á magni með margra mánaða fyrirvara. Þannig virki það með nánast alla hrávöru. Súkkulaðiframleiðendur á Íslandi kaupi tilbúinn kakómassa og kakósmjör, en ekki súkkulaðibaunina sjálfa. „Þú ert búinn að læsa þig inni framvirkt til að tryggja þér magn til framleiðslu í einhvern tíma. Svo þegar kúrfan fellur svona skarpt eins og hefur gert á síðustu mánuðum tekur það alltaf markaðinn nokkra mánuði að ná sér til baka. Við erum hæstánægð með að sjá loks lækkun. Þetta er búinn að vera hörmulegur tími, sérstaklega fyrir neytendur,“ segir hún og að það sé ömurlegt að þurfa að hækka verð á vörum. „En við höfum ekki skilað öllum hækkununum á markað. Ef við hefðum gert það hefði súkkulaði hækkað um 300 prósent,“ segir hún og að neytendur ættu að sjá lækkanir strax í sumar. Þróun heimsmarkaðsverðs á kakói síðustu fimm ár. Trading Economics Lækkuðu verðið um þriðjung Eftir að hafa nærri þrefaldast og náð metverði árið 2024 hefur heimsmarkaðsverð á kakói nú lækkað um þrjá fjórðu af verðgildi sínu. Í frétt CNBC Africa um lækkunina kemur fram að í bæði Gana og á Fílabeinsströndinni, stærstu framleiðendum kakós í heiminum, sé verðið yfirleitt fest í október en að vegna lítillar eftirspurnar hafi verið ákveðið að bregðast við því mikla magni af óseldu kakói í báðum löndum. Stjórnvöld í Gana lækkuðu þess vegna verðið um nánast helming um miðjan síðasta mánuð og stjórnvöld á Fílabeinsströndinni gerðu það sama við upphaf þessa mánaðar. Kakóplantan. Myndin er tekin á býli á Fílabeinsströndinni.Vísir/Getty Í fréttinni segir að verðhrunið megi rekja til minni eftirspurnar vegna hærra verðs. Hátt verð hafi leitt til þess að súkkulaðiframleiðendur minnkuðu stærð stykkja, juku magn annarra innihaldsefna en kakós, svo sem með því að bæta við óblátum eða hnetum, og skiptu út vörum eins og kakósmjöri fyrir aðra fitu. Á sama tíma hafi hagstætt veðurfar leitt til stærri og heilbrigðari uppskeru og að útlit sé fyrir að það verði verulegt magn afgangs á bæði Fílabeinsströndinni og í Gana af uppskerunni. Framleiðendur þar geti ekki geymt baunir í vöruhúsum. Í fréttinni segir að líklega muni verðbreyting ekki skila sér til neytenda fyrr en eftir um ár. Lækkun á konfekti frekar en páskaeggjum Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju, tekur undir með Sigríði Hrefnu að það sé léttir að sjá lækkun loksins en telur lengra en hún í að neytendur sjái lækkað vöruverð. Líklega frekar um jólin en í sumar. Hann vísar til framvirkra samninga, eins og Sigríður Hrefna á innkaupum á kakómassa og kakósmjöri. „Á sama tíma og við horfum á heimsmarkaðsverðið fara niður erum við enn að díla við hæsta hráefnisverð sem við höfum séð. Við erum að díla við nokkuð erfið verð núna og þau fara líklega ekki lækkandi fyrr en líður á árið.“ Hann segist þó eiga eftir að sjá hvort kakómassinn sem þau kaupa síðar á árinu verði á þessu verði sem kakóið er á núna eða ekki. „Þú kaupir þetta með margra mánaða fyrirvara þannig það er í rauninni ekkert sem við getum gert. Öll okkar hráefni eru á töluvert hærra verði en við sjáum á heimsmarkaðsverði núna,“ segir hann og að kostnaður við framleiðslu hafi hækkað frá því í fyrra. Þess vegna séu páskaeggin til dæmis dýrari í ár en í fyrra. Hæstu verðin og lægstu verðin „Það er auðvitað skrítið að horfa á þetta. Verðið hefur ekki verið lægra í þrjú ár en við erum á sama tíma að díla við okkar hæstu verð.“ Í samantekt frá Verðlagseftirliti ASÍ á verðbreytingum á páskaeggjum í ár má sjá að verð á einhverjum eggjum stendur í stað en annars er verðlækkun allt að 45 prósent. Mest á Góu hrauneggi nr. 1 sem lækkar um 74 krónur í verði á milli ára. Nóa Síríus páskaegg nr. 4 lækkar um sex prósent í Bónus, eða 137 krónur, og átta prósent í Krónunni, eða 134 krónur. Kakómassinn sem Freyja kaupir er frá Fílabeinsströndinni. Hann segir framboðið gott en litla eftirspurn um allan heim vegna hás verðs. „Eftir það sem á undan er gengið erum við mjög glöð að sjá þetta. Ég vona innilega að þessi verð haldist en maður veit ekkert í raun hvernig þetta þróast og við getum bara vonað að þetta sé að ná jafnvægi aftur.“
Neytendur Matvælaframleiðsla Sælgæti Páskar Jól Mest lesið Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Neytendur Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Neytendur Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Mun leiða Fab Lab Reykjavík Viðskipti innlent Talsverðar hækkanir á heimsmarkarðsverði olíu Viðskipti erlent Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Samstarf Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Samstarf Jón Örn genginn í eigendahópinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira