Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir, Kristbjörg Gunnarsdóttir og Ólafur Hjálmarsson skrifa 3. mars 2026 08:00 Þann 3. mars ár hvert er alþjóðlegur dagur heyrnar og í ár er lögð sérstök áhersla á börn og mikilvægi skimunar á heyrn þeirra. Við erum í keppni við tímann. Því fyrr sem barn greinist með heyrnarskerðingu því minni verða áhrifin á málþroska, nám og félagslega stöðu þess. Heyrnarskimun skólabarna hefur ekki farið fram hér á landi frá árinu 2011. Á þeim tíma þótti hún ekki svara kostnaði. Á meðan greinast mörg börn of seint með heyrnarskerðingu. Í dag eru rétt um 215 börn á lista hjá Heyrnar- og talmeinastöðvar enárið 2012 voru þau nær 250. Á sama tíma hefur íbúafjöldi aukist um 25%. Samkvæmt því ættu um 280 börn að vera í eftirliti vegna heyrnarskerðingar á Íslandi. Á Norðurlöndunum er tíðni heyrnarskerðingar 1-2 börn fyrir hverjar 1000 fæðingar en sú tala hækkar í 3-4 börn/1000 á leikskólaaldri og 5-6 börn/1000 á grunnskólaaldri. Þetta stemmir við athugun sem gerð var á þeim heyrnarskertu börnum sem eru í eftirliti hjá Heyrnar – og talmeinastöð; helmingur þeirra greindist við nýburaskimun, 15% á leikskólaaldri og 28% á grunnskólaaldri. Frá því að skimun var hætt, greinast fleiri börn með heyrnarskerðingu seinna á lífsleiðinni með tilheyrandi áhrifum á lífsgæði þeirra, mögulega seinkuðum málþroska, erfiðleikum í félagslífi og námi. Barn sem heyrir ekki nægilega vel situr óhjákvæmilega eftir í námi – ekki vegna getu, heldur vegna skorts á aðgengi. Skólaganga barna með heyrnarskerðingu Til að barn geti tekið fullan þátt í skólastarfi á raddmáli þarf það að heyra bæði í samnemendum sínum og kennurum. Í raunverulegum skólaaðstæðum þar sem hávaði, fjöldi barna og flókin samskipti eru hluti af daglegu lífi reynir verulega á heyrnina. Heyrnarskerðing hjá barni er oft dulin. Barnið veit jafnvel ekki að það heyrir öðruvísi en aðrir. Það missir af fyrirmælum, misskilur samtöl og þarf stöðugt að leggja meira á sig til að fylgjast með. Þreytan eykst, sjálfstraust minnkar og barnið getur dregið sig í hlé eða eða reynt að taka stjórn á aðstæðum. Fyrir barnið getur það verið auðveldara að stjórna samskiptum sjálft frekar en að vera sá sem hlustar og fer eftir fyrirmælum. Án skólaskimunar hafa börn verið að greinast síðar og oft uppgötvast ekki heyrnarskerðing fyrr en við upphaf miðstigs eða jafnvel ekki fyrr en á unglingastigi þegar námskröfur aukast og félagsleg samskipti fara að verða flóknari. Þegar heyrnarskerðing uppgötvastseint hefur skerðingin oft þegar haft áhrif á málþroska, námsárangur og félagsþroska barnsins. Heyrnarskimun barna sem eru að hefja skólagöngu er því lykilatriði. Snemmtæk greining þýðir markvissan stuðning, betri námsaðstæður og aukin lífsgæði. En hún hefur lítið gildi ef skólaumhverfið sjálft hindrar börn í að heyra og taka þátt. Raunin er sú að hljóðvist í mörgum skólum er ófullnægjandi. Sú þróun sem hefur átt sér stað að horfa til atvinnulífsins og líta á að börnin séu í sjálfstæðri vinnu í opnum vinnustöðvum eins og tíðkast þar er afgerandi áhrifaþáttur á vinnuumhverfi heyrnarskertra barna. Í slíkum rýmum kenna margir kennarar samtímis, bakgrunnshávaði er stöðugur og rödd kennara berst ekki skýrt til allra nemenda. Þessar aðstæður eru krefjandi fyrir öll börn. Hönnun kennslurýmis verður að taka mið af þeirri kennslu sem þar fer fram. Í skólahúsnæði sem komið er til ára sinna er hljóðhönnun oftar en ekki ábótavant og þarf að laga með faglegum hætti á grundvelli hljóðmælinga. Þegar hugmyndir um opið og sveigjanlegt rými fara ekki saman við þá kennsluhætti sem þar ríkja eru það börnin sem bera afleiðingarnar. Þau fá ekki kennslu við viðunandi aðstæður. Hljóðkerfi í kennslustofu geta skipt sköpum, sérstaklega fyrir börn með heyrnarskerðingu. Þau auðvelda börnum að staðsetja þann sem talar og tryggja að rödd kennara berist skýrt yfir bakgrunnshávaða. Rétt notkun slíkra kerfa ásamt vel hönnuðum kennslurýmum geta bætt hlustunar aðstæður fyrir alla nemendur. Í skólanum þarf umhverfið að gera öllum börnum kleift að heyra það sem fram fer en það hefur lítið að segja ef barnið er með ómeðhöndlaða heyrnarskerðingu. Heyrnarskimun barna í upphafi skólagöngu hefur ekki farið fram hér á landi síðustu 15 ár, það má því að ætla að víða í skólakerfinu séu börn sem vegna ógreindrar heyrnarskerðingar njóta ekki sama aðgengis að menntun og jafnaldrar þeirra. Höfundar eru Hildur Heimisdóttir, kennsluráðgjafi, Kristbjörg Gunnarsdóttir, heyrnarfræðingur og Ólafur Hjálmarsson, hljóðverkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar