Handbolti

„Með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til“

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Stefán og hans konur þurftu að játa sig sigraðar í dag.
Stefán og hans konur þurftu að játa sig sigraðar í dag. Vísir/Anton Brink

„Þá förum við að gefa ódýr mörk en við höfðum verið að spila frábæra vörn og svo var sóknarleikurinn hjá okkur orðin dálítið sóló. Það vantaði bara upp á skynsemi. Valur var skynsamari en við og unnu þess vegna,“ sagði Stefán Arnarson, þjálfari Hauka, eftir tap gegn Val í úrslitum Powerade bikarsins.

Allt leit út fyrir að bikarinn yrði áfram á Ásvöllum hjá bikarmeisturum Hauka, eftir sigur þeirra 2025. En þegar korter var eftir tók Valur leikhlé og sneri leiknum við með sjö mörkum í röð, en Haukar höfðu verið með fjögurra marka forystu á þeim tímapunkti.

„Þetta eru bæði góð varnarlið og þú þarft að spila góðar og langar sóknir. Við duttum eins og ég segi allt of mikið í einstaklingsframtak og boltinn gekk lítið hjá okkur og það varð okkur að falli. Við vorum samt ekkert langt frá þessu. Við fáum hraðaupphlaup og þetta hefði geta orðið fjögur mörk þegar tólf mínútur eru eftir en Hafdís ver og þær koma til baka og unnu þetta síðan sannfærandi á síðustu tíu mínútunum.“

Thea Imani Sturludóttir kom inn í sóknarleik Vals síðasta korterið eftir að hafa lítið spilað undanfarið vegna meiðsla. Aðspurður hvort innkoma hennar hefði áhrif, þá fannst Stefáni það ekki vera spurning.

„Auðvitað hefur það áhrif. Frábær leikmaður, en þær hafa marga góða leikmenn. Valur er bara með gott lið sem er erfitt að vinna og þær eru með þessa sigurhefð sem við þurfum að búa til hér.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×