Innherji

Brim vill gera breytingar á verðmiðanum í fyrir­huguðum risa­kaupum á Lýsi

Hörður Ægisson skrifar
Guðmundur Kristjánsson er forstjóri Brims. Rekstrarhagnaður félagsins á fjórða ársfjórðungi var hefur aðeins einu sinni verið meiri á þeim fjórðungi í sögu félagsins. 
Guðmundur Kristjánsson er forstjóri Brims. Rekstrarhagnaður félagsins á fjórða ársfjórðungi var hefur aðeins einu sinni verið meiri á þeim fjórðungi í sögu félagsins.  Vísir/Einar

Fyrirhuguð kaup Brims á öllu hlutafé Lýsis fyrir samtals þrjátíu milljarða, sem tilkynnt var um síðasta haust, eru ekki enn komin á borð stjórnar en forstjóri sjávarútvegsfyrirtækisins segir að „félögin séu ekki alveg sammála um verðið“ í viðskiptunum. Hlutabréfaverð Brims hefur hækkað um nærri fimmtíu prósent á síðustu mánuðum samhliða því að afurðaverð hefur verið í hæstu hæðum, sem skilaði sér í feykilega sterku uppgjöri undir lok ársins, en forstjórinn telur samt gengi krónunnar vera „alltof sterkt“ um þessar mundir.


Tengdar fréttir

Hækkun veiði­gjalda mun setja „tölu­verða pressu“ á fram­legðar­hlut­fall Brims

Áhrifin af hækkun veiðigjalda munu þýða að EBITDA-hlutfall Brims lækkar nokkuð á komandi árum og nálgast um fimmtán prósent, samkvæmt nýrri verðmatsgreiningu á félaginu, en líklegt er að stjórnendum takist smám saman að snúa við þeirri þróun með markvissum hagræðingaraðgerðum. Með auknum veiðigjöldum, hækkandi kolefnissköttum og skerðingum í aflamarkaði þá kæmi ekki á óvart ef eldri og óhagkvæmari skipum yrði lagt innan fárra ára.

Brim kaupir allt hluta­fé í Lýsi fyrir þrjátíu milljarða króna

Búið er að samþykkja kauptilboð sjávarútvegsfyrirtækisins Brim í alla hluti Lýsi fyrir samtals þrjátíu milljarða króna sé miðað við heildarvirði félagsins. Forstjóri og aðaleigandi Brims sér mikil sóknarfæri í því fyrir fyrirtækið að færa sig lengra í virðiskeðju sjávarafurða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×