Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Kjartan Kjartansson skrifar 27. febrúar 2026 14:42 Franska flugmóðurskipið Charles de Gaulle. Dróni sást á flugi í grennd þess þegar það lá í höfn í Malmó í vikunni. Myndin er úr safni. AP/Joeal Calupitan Sænsk stjórnvöld telja að dróni sem sást á sveimi á Eyrarsundi þegar franskt flugmóðurskip lá við festar í Malmö í vikunni hafi verið rússneskur. Sænski herinn truflaði drónann áður en hann hvarf sjónum.
Kjarnorkuknúna flugmóðurskipið Charles de Gaulle var í Malmö í tengslum við heræfingu Atlantshafsbandalagsins á miðvikudag þegar menn urðu varir við óþekktan dróna í um tíu kílómetra fjarlægð innan sænskrar lofthelgi úti á Eyrarsundi. Á sama tíma var rússneskt herskip innan sænskrar lögsögu. Pål Jonson, varnarmálaráðherra Svíþjóðar, sagði sænska ríkisútvarpinu að dróninni væri „líklega“ rússneskur. Dmitrí Peskov, talsmaður stjórnvalda í Kreml, sagðist ekki vita af uppákomunni þegar hann var spurður út í hana í dag. Honum þótti þó fráleitt að álykta að dróninn væri rússneskur bara vegna þess að rússneskt skip hefði verið í grenndinni. Rússnesk stjórnvöld hafa staðið fyrir markvissri herferð til þess að grafa undan stöðugleika í Evrópu, sérstaklega eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst fyrir fjórum árum. AP-fréttastofan hefur skjalfest hundrað dæmi um skemmdarverk og truflanir á vegum Rússa. Hún segir ekki öll þeirra hafa verið gerð opinber og að það geti tekið yfirvöld í ríkjum marga mánuði að rannsaka tengsl þeirra við Rússa.
Svíþjóð Frakkland Rússland Öryggis- og varnarmál Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira