Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. febrúar 2026 12:11 Það er erfitt að fullyrða um það hvað veldur ákvörðun um að rýma sendiráðið að hluta. Getty/Lior Mizrahi Starfsmönnum sendiráðs Bandaríkjanna í Jerúsalem barst tölvupóstur frá sendiherranum Mike Huckabee í morgun, þar sem hann hvatti þá sem vildu yfirgefa Ísrael vegna mögulegra árása Bandaríkjanna á Íran ættu að gera það strax í dag.
Huckabee sagði starfsmönnunum heimilt að fara ef þeir óskuðu þess og benti viðkomandi á að bóka flug frá Ben-Gurion flugvellinum strax í dag, hvert sem þeir gætu fengið flug. Varaði hann við því að fregnir af tölvupóstinum myndu líklega verða til þess að auka eftirspurn eftir flugi. Í tölvupóstinum sagði að ákvörðunin um að vara starfsmenn við hefði verið tekin í kjölfar funda og símtala í nótt en um væri að ræða varúðarráðstöfun, þar sem embættismenn utanríkisráðuneytisins hefðu verið á einu máli um að öryggi starfsmanna væri forgangsmál. Boðað hefur verið til starfsmannafundar í sendiráðinu síðar í dag, að því er fram kemur í umfjöllun New York Times. Sendifulltrúar Bandaríkjanna og Íran funduðu í Óman í gær. Íranskir embættismenn og talsmenn Óman sögðu í gær að áfram yrði fundað í næstu viku. Fulltrúar Bandaríkjanna, Steve Witkoff og Jared Kushner, hafa hins vegar ekki tjáð sig um stöðu mála. Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hefur hvatt fólk til að ferðast ekki til Ísrael né Vesturbakkans í bili og þá hefur margt starfsfólk sendiráðsins í Líbanon verið flutt heim. Erfitt er að segja til um það hvort rýming sendiráðanna að hluta sé vísbending um að tekin hafi verið ákvörðun um að gera árásir á Íran, hvort um er að ræða varúðarráðstöfun líkt og Huckabee sagði í tölvupóstinum, eða hvort um sé að ræða leikrit sem verið er að setja á svið til að auka þrýstinginn á Íran. Ef af árásum verður eru hins vegar líkur á því að Íranir muni svara fyrir sig með árásum á herstöðvar eða sendiráð Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum.
Ísrael Íran Bandaríkin Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira