Þotum Icelandair lent í Reykjavík Lovísa Arnardóttir, Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Agnar Már Másson skrifa 26. febrúar 2026 15:35 Þoturnar safnast saman á Reykjavíkurflugvelli. Vísir/Vilhelm Sextán farþegaþotum og einni herþotu var síðdegis í dag lent á þremur varaflugvöllum Íslands vegna óveðurs á Keflavíkurflugvelli. Um tíma var töluverður fjöldi flugvéla í biðstöðu og hringsóluðu yfir Suðurlandið á meðan flugstjórar biðu leyfis til að lenda. Snjó kyngdi niður á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 14 í dag sem gerði snjóruðning erfiðan og dró úr skyggni við flugstöðina. „Veður er að hafa áhrif á Keflavíkurflugvelli, vindur og blautur snjór, sem þýðir að það tekur lengri tíma að ryðja og tryggja bremsuskilyrði, sem þýðir að vélar eru í bið og eru að koma inn hver af annarri,“ sagði Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia fyrr í dag. Flugfélögin ákváðu að vísa vélunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyrar eftir að hafa staðið í biðstöðu meðan þeim var fundinn nýr lendingastaður. Guðjón ítrekaði þó að hægt væri að lenda á Keflavíkurflugvelli, það taki bara lengri tíma vegna þess að það tekur tíma að ryðja brautirnar. Hér má sjá flugumferð milli 14.30 og 16.30 á 150-földum hraða. Bíðu þess að fá að lenda Ástandið stóð yfir til klukkan 16.30 en um það leyti lenti farþegaþota Icelandair frá Frankfurt í Keflavík. Aftur á móti segir Guðjón hjá Isavia að sautjáun vélar hafi þurft að hverfa frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli. Alls hafi sex vélar lent í Reykjavík; fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Átta Icelandair-vélar hafi svo lent á Akureyri. Þrjár hafi lent á Egilsstöðum: tvær frá Icelandair og ein frá Discovery. Flugfélögin taka nú ákvarðanir um næstu skref, þ.e. hvort flogið verði strax aftur til Keflavíkur. Hríð er aftur á móti nú skollin á í Reykjavík. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Snjó kyngdi niður á Keflavíkurflugvelli upp úr klukkan 14 í dag sem gerði snjóruðning erfiðan og dró úr skyggni við flugstöðina. „Veður er að hafa áhrif á Keflavíkurflugvelli, vindur og blautur snjór, sem þýðir að það tekur lengri tíma að ryðja og tryggja bremsuskilyrði, sem þýðir að vélar eru í bið og eru að koma inn hver af annarri,“ sagði Guðjón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia fyrr í dag. Flugfélögin ákváðu að vísa vélunum til Reykjavíkur, Egilsstaða og Akureyrar eftir að hafa staðið í biðstöðu meðan þeim var fundinn nýr lendingastaður. Guðjón ítrekaði þó að hægt væri að lenda á Keflavíkurflugvelli, það taki bara lengri tíma vegna þess að það tekur tíma að ryðja brautirnar. Hér má sjá flugumferð milli 14.30 og 16.30 á 150-földum hraða. Bíðu þess að fá að lenda Ástandið stóð yfir til klukkan 16.30 en um það leyti lenti farþegaþota Icelandair frá Frankfurt í Keflavík. Aftur á móti segir Guðjón hjá Isavia að sautjáun vélar hafi þurft að hverfa frá lendingaráformum á Keflavíkurflugvelli. Alls hafi sex vélar lent í Reykjavík; fimm Icelandair-vélar og ein hervél. Átta Icelandair-vélar hafi svo lent á Akureyri. Þrjár hafi lent á Egilsstöðum: tvær frá Icelandair og ein frá Discovery. Flugfélögin taka nú ákvarðanir um næstu skref, þ.e. hvort flogið verði strax aftur til Keflavíkur. Hríð er aftur á móti nú skollin á í Reykjavík. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða (e. refresh) síðunni.
Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Veður Mest lesið Sakfelling Steinu staðfest Innlent Þotum Icelandair lent í Reykjavík Innlent Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Innlent Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Innlent Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Innlent Mette boðar óvænt til kosninga Erlent Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Innlent Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Innlent Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Erlent Vilja borgarlest í stað borgarlínu Innlent Fleiri fréttir Steina vill áfrýja: „Brotið gegn grundvallarréttindum umbjóðanda míns“ Hætta við unglingaskóla í Laugardal Þotum Icelandair lent í Reykjavík Tíu manns í árekstri á Suðurlandi Sakfelling Steinu staðfest Heilsugæslan tekur við verkefnum Heyrnar- og talmeinastöðvar Lögðu hald á tugi kílóa lítt þekkts fíkniefnis Bein útsending: Veikindaréttindi og samspil milli vinnumarkaðar og heilbrigðisþjónustu Bein vaxið yfir augun og fólk afmyndast í andliti við notkun peptíða Gísli Rafn lætur af störfum hjá Rauða krossinum Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt Börnum með stöðu sakbornings fjölgar: „Sláandi tölur“ Viðreisn býður í fyrsta skipti fram á Akureyri Vonbrigði með verðbólgutölurnar og snjómokstur olli tjóni Háskólinn lagði stúdenta Stranger Things-fossinn gæti orðið vinsælastur Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði Vilja borgarlest í stað borgarlínu Einar Jóhannes fær oddvitasæti Miðflokksins í Kópavogi Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Bein útsending: Þróun og horfur á vinnumarkaði Voru að tína dópið úr töskunni þegar löggan réðst til atlögu Keyrði inn í hvítan vegg: „Í besta falli vítavert gáleysi“ Þurfi að draga úr ofbeldi gegn eldri borgurum Geti átt í samstarfi við nær alla flokka Tína rusl til að komast á Reyki Trausti vill snúa aftur Mesti snjórinn síðan í október: „Ætluðum við að gera þetta núna?“ Þrautaganga Ingva og fjölskyldu: Svefnleysi, bræðiköst og flogveiki en engin úrræði Rúta lenti utan vegar Sjá meira