Sakfelling Steinu staðfest Árni Sæberg skrifar 26. febrúar 2026 15:08 Steina Árnadóttir við aðalmeðferð málsins í héraði. vísir/vilhelm Landsréttur hefur staðfest sakfellingu Steinu Árnadóttur hjúkrunarfræðingur fyrir manndráp af gáleysi fyrir hlut hennar í andláti sjúklings á geðdeild Landspítalans árið 2021. Henni er ekki gerð refsing.
Landsréttur kvað upp dóm yfir Steinu upp úr klukkan 15 en hann hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir að svo stöddu. Ákæruvaldið fór fram á að Steina yrði sakfelld fyrir manndráp og gerð refsing en til vara að hún yrði sakfelld fyrir manndráp af gáleysi. Héraðsdómur Reykjavíkur komst að þeirri niðurstöðu að Steina hefði sýnt af sér stórfellt gáleysi þegar hún hellti næringardrykk upp í sjúkling með þeim afleiðingum að hann kafnaði. Landsréttur samþykkti að taka mál Steinu fyrir um miðjan febrúar í fyrra en hún áfrýjaði dómnum. Ákæruvaldið fékk annan séns Sá dómur héraðsdóms var sá annar sem gekk í héraði en Landsréttur ógilti fyrri dóminn á þeim grundvelli að dóminum hefði borið að skoða hvort Steina hefði gerst sek um manndráp af gáleysi þrátt fyrir að ákæruvaldið hefði ekki gert varakröfu þess efnis. „Það liggur fyrir að ákæruvaldið ákærir í málinu fyrir manndráp af ásetningi. Það var engin varakrafa. Þetta var meðvituð ákvörðun af hálfu ákæruvaldsins í málinu. Málið er ekki flutt um það að hugsanlega megi heimfæra háttsemi ákærðu undir 2. mgr. 218. gr. almennra hegningarlaga eða 215. gr. sömu laga,“ sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson, verjandi Steinu, í samtali við Vísi á sínum tíma. „Í mínum huga nær það ekki nokkurri átt að ákæruvaldið breyti kröfum sínum, þegar það kemur að málsmeðferð í Landsrétti, og það geti leitt til þess að dómur sem er ekki haldinn neinum formgöllum skuli ómerktur án kröfu af hálfu ákæruvalds. Þetta gengur bara ekki upp.“
Dómsmál Andlát á geðdeild Landspítala Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Fleiri fréttir Sífellt fleiri kjósa að fæða án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Sjá meira