Austurland er þjóðinni mikilvægt Heimir Snær Gylfason skrifar 26. febrúar 2026 11:31 Austurland er þjóðinni mikilvægt, það vitum við vel sem leggjum mikið til þjóðarbúsins.Því miður virðist sem fjarlægðin við Alþingi og suðvesturhorn landsins valdi þekkingarleysi á þessum fjarlæga stað.Staðreynd um Austurland: Innan við 3% þjóðarinnar býr á Austurlandi, en hér skapast nærri 25% útflutningstekna. Mikilvægt er að þingmenn sýni meiri skynsemi í verkefnavali og setji þjóðarbúið í forgang, velji verkefni sem hjálpa þjóðarbúskapnum og auka verðmætasköpun. Eitt af þeim verkefnum sem ég vil að þingmenn skoði betur eru samgöngur innan fjórðungsins, vegabætur og jarðgöng. Ég fagna því að vísir að Samgöngum sé aftur á dagskrá samgönguáætlunar, að Fjarðagöng séu ofar inná áætluninni og horft sé til allra byggðakjarna við val á gangnakostum. Tel þó skrítið að vegabætur Suðurfjarðarvegar séu settar aftar og að göng á Austurlandi séu ekki fyrsti kostur. Mikilvægi þess að laga og bæta Suðurfjarðarveg eru ótvírædd og löngu orðin tímabær. Þetta er jú hættulegasti vegakafli Íslands samkvæmt greiningu Vegagerðarinnar og lífæð verðmæta til höfuðborgarinnar. Einnig er gerð gangna mikilvægt ef horft er til umferðaröryggis. Bæði þessi atriði eru einnig til umtalsverðra bóta fyrir þjóðarhag. Ef fagskýrslur eru skoðaðar er augljóst hvað er mikilvægt þegar hugað er að samgöngukerfinu, greiðar samgöngur og fækkun slysa. Fyrir Austurland er það Suðurfjarðarvegur og jarðgöng til fækkunar hálendisvega. Hættulegasti vegkafli landsins er svo aftarlega á samgönguáætlun að það er augljóst að öryggi er ekki ofarlega í huga þegar kemur að forgangsröðun. Þessu þarf að breyta og það hið snarasta, setjum öryggið í forgrunn. Sama má segja um jarðgangna val, en fleiri þættir eru nú yfirleitt settir með til að réttlæta mikinn kostnað við framkvæmdirnar. Það ætti því ekki að vera erfitt að meta göng á Austurlandi ofarlega í forgangi á Samgönguáætlun. Tölfræðigögn sem Austurbrú hefur tekið saman, sýna hvað mikilvæg verðmætasköpun er að eiga sér stað á Austurlandi. Af heildinni er ferðaþjónusta með 9% hlutfall, álverið 35,5%, sjávarútvegur 21,7% og vöruflutningur er 23%. Fyrir aukna verðmætasköpun þarf öruggari og greiðari vegi. Austurland skilar þjóðarbúi Íslendinga gríðarlegum tekjum, aukum það enn frekar með betri samgöngum í fjórðungnum. Því það er kýrskýrt að betri samnýting auðlinda fjórðungsins næst með betri samgöngum. Gegnum tíðina hefur fólk af svæðinu komið saman þar sem atvinnan er mest hverju sinni og aðstoðað þegar verkin eru of mörg fyrir heimabyggð og þannig aukið tekjur allra í fjórðungnum sem og útflutningstekjur þjóðarinnar. Það er skynsamlegt að fjárfesta í Austurlandi. Með aukinni samheldni eykst samhugur, ný-sköpun og menning. Stöndum öll saman fyrir skynsömum og öruggum samgöngum, rjúfum vetrareinangrun Mjóafjarðar og Norður Múlaþings og tryggjum greiða leið fyrir verðmætin sem skapast hér með betri Suðurfjarðarveg. Látum skynsemi og röggsemi ráða vali næstu samgöngubóta, setjum öryggið á oddinn, hagkvæmni á endann og jákvæð samfélagsleg áhrif á milli. Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi Fjarðabyggðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjarðabyggð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar