Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. febrúar 2026 23:00 Kristrún Frostadóttir hitti Volodomír Selenskí í dag. Stjórnarráðið Sjö gámar af búnaði og varahlutum frá Landsneti, Veitum og Norðurorku sem nýtast munu við enduruppbyggingu orkuinnviða Úkraínu verða sendir til Úkraínu í vikunni. Þetta er meðal þess sem Kristrún Frostadóttir upplýsti Úkraínumenn um í dag í heimsókn sinni til Kænugarðs.
Þar sótti hún í dag tvo leiðtogafundi í boði Volodómír Selenskí Úkraínuforseta, ásamt hópi leiðtoga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Tilefnið eru að fjögur ár eru frá því að ólögmæt allsherjarinnrás Rússlands í Úkraínu hófst. Greint er frá stuðningi Íslands í tilkynningu á vef stjórnarráðsins þar sem segir meðal annars að Ísland muni halda áfram stuðningi sínum á grundvelli fyrri skuldbindinga. Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttakona Sýnar ræddi við Gísla Rafn Ólafsson framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi og Völu Kareni Viðarsdóttur framkvæmdastjóra Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi í aukafréttatíma á Sýn í kvöld. Hluta stuðnings þessa árs, eða 800 milljónum króna, verður sérstaklega veitt til brýnnar uppbyggingar á raforkuinnviðum í samræmi við ákall Úkraínumanna, að því er segir í tilkynningunni. Fréttastofa ræddi fyrr í dag við Kristrúnu sem sagði Úkraínumenn afar þakkláta og að stuðningur Íslands skipti sköpum. Neyð í orkumálum vegna árása Rússa Ennfremur segir í tilkynningunni að forsætisráðherra hafi ásamt öðrum leiðtogum farið í skoðunfarferð um raforkuver í Kænugarði sem orðið hefur fyrir miklu tjóni eftir ítrekaðar eldflaugaárásir Rússa. Með heimsókninni hafi Úkraínumenn viljað undirstrika þá neyð sem skapast hafi í orkumálum í landinu af völdum Rússa. „Sem viðbragð við því tilkynnti forsætisráðherra í Kænugarði í dag að Ísland muni verja 800 milljónum króna í uppbyggingu orkuinnviða í Úkraínu, á grundvelli fyrri skuldbindinga um öryggissamstarf og langtímastuðning til Úkraínu frá 2024. Fjármagnið verður annars vegar sett í verkefni Þróunaráætlunar Sameinuðu þjóðanna (UNDP), sem miða að enduruppbyggingu rafstöðva og dreifikerfis landsins, og hins vegar til alþjóðlegs orkusjóðs sem kaupir inn búnað og varahluti til að sinna viðhaldi og enduruppbyggingu.“ Samúel Karl Ólason fréttamaður Sýnar ræddi við Kristrúnu í Kænugarði í dag. „Í fyrra styrktum við til dæmis verkefni um sprengjuleit- og eyðingu, sem við leiddum ásamt Litáen, og þjálfunarverkefni á vegum NATO. Þetta eru verkefni sem hafa gengið vel og Úkraínumenn hafa beðið sérstaklega um að verði styrkt. Við höldum nú áfram á þeirri braut og beinum fjármagni í nauðsynlega uppbyggingu orkuinnviða,“ er haft eftir Kristrúnu í tilkynningu. „Árásir Rússa á orkuinnviði hafa svipt milljónir íbúa Úkraínu rafmagni og hita á meðan miklar frosthörkur geisa í landinu. Það er þýðingarmikið fyrir Ísland að geta lagt sitt af mörkum til að færa fjölskyldum Úkraínu hlýju á þessum kaldasta tíma ársins.” Fyrir innrás 2022 24. feb 2024 24. feb 2025 24. feb 2026 Yfirráðasvæði Rússa
Innrás Rússa í Úkraínu Úkraína Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Öryggis- og varnarmál Tengdar fréttir Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. 24. febrúar 2026 11:09 Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Það er þungbært og erfitt að horfa upp á að enn geisi stríð í heimalandinu að sögn úkraínskra kvenna sem búa á Íslandi. Þær eru þakklátar fyrir stuðning Íslendinga, í hvaða mynd sem hann er, en á morgun eru fjögur ár síðan allsherjarinnráð Rússa í Úkraínu hófst. 23. febrúar 2026 20:02 Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. 24. febrúar 2026 06:57 Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Fleiri fréttir Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Sjá meira
Fjögur ár frá innrás Rússa: Sorg sé ekki nógu stórt orð Óskar Hallgrímsson, blaðamaður og ljósmyndari búsettur í Úkraínu, segir sorg ekki vera nægilega gott orð til að lýsa tilfinningunum sem vakna í dag. Fjögur ár eru síðan innrás Rússa í Úkraínu hófst. 24. febrúar 2026 11:09
Vopnin ekki til að drepa, heldur verja Það er þungbært og erfitt að horfa upp á að enn geisi stríð í heimalandinu að sögn úkraínskra kvenna sem búa á Íslandi. Þær eru þakklátar fyrir stuðning Íslendinga, í hvaða mynd sem hann er, en á morgun eru fjögur ár síðan allsherjarinnráð Rússa í Úkraínu hófst. 23. febrúar 2026 20:02
Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. 24. febrúar 2026 06:57