Krafa að fá slökkvistöð í bæinn Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 24. febrúar 2026 12:23 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir unnið að því að fá slökkvistöð í bæinn. Vísir/Anton Mikilvægt er að næsta slökkvistöð á höfuðborgarsvæðinu rísi í efri byggðum Kópavogs að mati bæjarstjórans til að stytta viðbragðstíma slökkviliðsins á svæðinu. Ef áform ganga eftir verður hún að veruleika árið 2030.
Allt tiltækt slökkvilið var kallað út á sunnudaginn þegar gróðureldar brutust út við Elliðavatn. Samkvæmt brunaáætlun slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins er viðbragðstími slökkviliðsins á þessu svæði 15 til 19 mínútur, sem er með lengri viðbragðstíma á höfuðborgarsvæðinu. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs segir mikilvægt að næsta slökkvistöð rísi í Kópavogi. „Það hefur verið einmitt svona krafa hjá Kópavogsbæ að næsta uppbygging á slökkvistöð verði í efri byggðum Kópavogs.“ Hún situr í stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins og hefur stjórnin þegar ákveðið að næsta slökkvistöð verði reist í bænum. „Slökkviliðið er að vinna að tillögu að útfærslu á nýrri slökkviliðsstöð samkvæmt ákveðnum sviðsmyndum en staðsetningin varðandi slökkviliðsstöðina er hugsuð í Tónahvarfi. Það er einmitt bara út frá góðri tengingu við Arnarnesveginn og þá erum við að sjá það að það verða greiðar leiðir í allar áttir. Vissulega með því að fá slökkviliðsstöðina í efri byggðir Kópavogs að þá erum við auðvitað að fara að bæta viðbragðstímann verulega. Ekki bara í efri byggðum heldur líka auðvitað í nærliggjandi sveitarfélögum.“ Sakar meirihlutann um að tefja bygginu stöðvarinnar Jónas Már Torfason oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi tekur undir mikilvægi þess að slökkvistöð rísi í Kópavogi. Meirihlutinn í bænum hafi hins vegar neitað að láta lóð af hendi nema að slökkvilið höfuðborgarsvæðisins greiði byggingarréttargjald fyrir lóðina sem tefji málið. „Það sem ég hef áhyggjur af er að það sé verið að forgangsraða skammtímaniðurstöðum í bókhaldi bæjarins fram yfir raunverulega þjónustu við íbúa, enda er engin slökkviliðsstöð í bænum. Það getur bara munað töluverðu að það séu hröð viðbrögð og þess vegna er mjög sérstakt að sjá að bærinn er að koma í veg fyrir að þessar framkvæmdir hefjist og tefja uppbyggingu á slökkviliðsstöð í efri byggðum Kópavogs út af því að þau vilja fá byggingarréttargjald fyrir lóðina, sem er eitthvað sem tíðkast alls ekki þegar að sveitarfélög eru að úthluta lóðum til slökkviliðsins.“ Ásdís segir byggingarréttargjaldið hafa verið rætt en það sé ekki skilyrði fyrir því að slökkvistöðin rísi, allt sé samkvæmt áætlun og stöðin verði að veruleika árið 2030. „Hins vegar er það rétt að það hefur verið umræða innan stjórnar slökkviliðsins hvort að sveitarfélög yfir höfuð eigi að fá eitthvað greitt fyrir lóð sem rennur inn í byggðasamlög. Sú umræða er bara í gangi en hún hefur hins vegar ekkert með þessa ákvörðun að gera enda blasir við að það er viðbragðstíminn sem skiptir mestu máli. Þess vegna hefur sú ákvörðun verið einmitt tekin að þessi stöð muni rísa.“
Gróðureldar Gróðureldar í Heiðmörk Gróðureldar á Íslandi Slökkvilið Kópavogur Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira