Forsætisráðherra sækir minningarathöfn og fundi í Kænugarði Hólmfríður Gísladóttir og Samúel Karl Ólason skrifa 24. febrúar 2026 06:57 Andrii Sybiha, utanríkisráðherra Úkraínu, tekur á móti Kristrúnu á lestarstöðinni við komuna til Kænugarðs. Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra Íslands, er nú stödd í Kænugarði þar sem hún mun í dag verða viðstödd minningarathafnir vegna þess að fjögur ár eru liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þá mun hún einnig funda með Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta ásamt leiðtogum hinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, auk þess sem hún mun sækja fund „hinna viljugu“, það er að segja bandamanna Úkraínu. Ferðalag Kristrúnar og fylgdarliðs hófst með næturfluti til Varsjár, þar sem við tók bið í sendiráðinu. Þá var lagt í nokkurra klukkustunda bílferð að landamærum Póllands og Úkraínu, þar sem enn var beðið. Ferðalaginu lauk með næturlest til Kænugarðs. Að sögn Samúels Karls Ólasonar, blaðamanns Sýnar sem staddur er í Kænugarði, er mikill viðbúnaður þar vegna fjölda erlendra þjóðarleiðtoga í borginni. Á leiðinni í gegnum borgina frá lestarstöðinni mátti sjá lögregluþjóna við hver gatnamót til að tryggja að bílalest Kristrúnar kæmist sinnar leiðar. Þá mátti á víð og dreif sjá minnisvarða um það ástand sem íbúar hafa búið við síðustu ár; ónýta skriðdreka og brak úr drónum. Einnig blasti við gríðarstór veggur, þakinn myndum af þeim sem hafa látist sökum stríðsins. Fréttastofa Sýnar fylgist með gangi mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki strax er ráð að endurhlaða síðunni.
Þá mun hún einnig funda með Vólódimír Selenskí Úkraínuforseta ásamt leiðtogum hinna Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna, auk þess sem hún mun sækja fund „hinna viljugu“, það er að segja bandamanna Úkraínu. Ferðalag Kristrúnar og fylgdarliðs hófst með næturfluti til Varsjár, þar sem við tók bið í sendiráðinu. Þá var lagt í nokkurra klukkustunda bílferð að landamærum Póllands og Úkraínu, þar sem enn var beðið. Ferðalaginu lauk með næturlest til Kænugarðs. Að sögn Samúels Karls Ólasonar, blaðamanns Sýnar sem staddur er í Kænugarði, er mikill viðbúnaður þar vegna fjölda erlendra þjóðarleiðtoga í borginni. Á leiðinni í gegnum borgina frá lestarstöðinni mátti sjá lögregluþjóna við hver gatnamót til að tryggja að bílalest Kristrúnar kæmist sinnar leiðar. Þá mátti á víð og dreif sjá minnisvarða um það ástand sem íbúar hafa búið við síðustu ár; ónýta skriðdreka og brak úr drónum. Einnig blasti við gríðarstór veggur, þakinn myndum af þeim sem hafa látist sökum stríðsins. Fréttastofa Sýnar fylgist með gangi mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki strax er ráð að endurhlaða síðunni.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Þingmenn klöppuðu óspart fyrir konunginum Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Ásýnd Trump mun prýða viðhafnarútgáfu vegabréfsins Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Játaði að hafa skipulagt hryðjuverk á tónleikum Swift „Mamma mín var skotin í Karli, trúið þið því?“ Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn Aftökum fjölgaði verulega í kórónuveirufaraldrinum Rússnesk lúxussnekkja fór um Hormús-sund án vandræða Konungshjónin komin vestur um haf og Karl ávarpar þingið í dag Merz segir Írani spila með Bandaríkjastjórn Ákærður fyrir banatilræði við Trump Vara við aukinni ógn vegna sjórána við strendur Sómalíu „Við búum í brjáluðum heimi“ Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Sjá meira