Slær niður veggi í HSÍ eftir viðburðaríkan fyrsta mánuð í starfi Aron Guðmundsson skrifar 21. febrúar 2026 10:00 Það hefur verið í mörg horn að líta hjá Sólveigu Jónsdóttur, nýjum framkvæmdastjóra HSÍ yfir hennar fyrsta mánuð í starfi. Vísir/Sigurjón Óhætt er að segja að fyrsti mánuðurinn hafi verið viðburðaríkur hjá nýjum framkvæmdastjóra HSÍ, Sólveigu Jónsdóttur. Frábær árangur Íslands á EM karla sá til þess að hún fékk handbolta geðveikina beint í æð en framundan eru áskoranir og stór verkefni.
Evrópumótið er frá og Sólveig er farin að láta verkin tala á skrifstofu HSÍ sem undirgengst nú mikla yfirhalningu, veggir eru slegnir niður og rými opnuð, starfsstöðvar starfsfólks og landsliðsþjálfara betrumbættar. „Við vorum að hugsa hvernig við getum sameinað okkur aðeins,“ segir Sólveig í samtali við íþróttadeild Sýnar. „Við þurfum að vinna vel saman, erum eitt lið og það er gott að geta þá ráðfært sig við samstarfsfólk. Ég þarf líka svolítið mikið á því að halda, að geta spurt mikið af spurningum og að geta þá verið með stórt rými þar sem að við fundum, við þurfum einhvern veginn að draga alla að borðinu, vera stærri og hugsa til framtíðar. Þá er gott að geta dregið fólk að borðinu.“ Staðan þung Sólveig kemur ekki blaut á bakvið eyrun í starf hjá HSÍ, reynsla hennar úr íþróttahreyfingunni er mikil og það nýtist vafalaust vel því rekstur sambandsins hefur verið þungur um hríð og á sama tíma eru landslið Íslands, bæði í karla og kvennaflokki að fara á hvert stórmótið á fætur öðru. „Við þurfum að fara í þjóðarátak. Við erum með rosalegt afreksfólk sem er að leggja sitt af mörkum á hverjum einasta degi, við erum með starfsfólk sem er með hjartað í þessu á hverjum einasta degi. Við þurfum líka að geta einhvern veginn mætt öllu þessu og vera áfram í þessu sæti sem við erum búin að skapa okkur og búa til á elju fortíðarinnar. Við ætlum að hugsa til framtíðar, þá kostar það og ef okkur langar að vera leiðandi til framtíðar þá verðum við eitthvað að gera. Því það er í raun stórmerkilegt hvað hefur verið gert fyrir ekki meiri pening. Það er held ég af því að fólkið er með hjartað í þessu.“ Verður spennandi að setja HM miðasöluna í gang Aðeins fimm ár eru síðan til stefnu þar til halda á riðil á HM karla hér heima á Íslandi í nýrri þjóðarhöll sem þarf að vera risin ef af á að verða. „Þjóðarhöllin verður risin og þetta verður geggjað. Það verður spennandi að setja miðasöluna í gang.“ Hvernig skynjarðu hljóðið gagnvart þessu verkefni, er allt komið á blússandi gang hvað þetta verkefni varðar? „Ég veit ekki meira heldur en aðrir. Ég hef ekki neitt annað en trú á fólkinu sem er búið að vera berjast fyrir þessu öll þessi ár. Ekki neitt nema trú.“ Þannig áhyggjur eru óþarfar hvað þetta varðar? „Sjáum til.“
HSÍ Landslið karla í handbolta Landslið kvenna í handbolta Handbolti HM karla í handbolta 2031 Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira