Viðskipti innlent

Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar. 
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar.  Vísir/Vilhelm

Hagnaður af grunnrekstri Landsvirkjunar nam tæplega 36 milljörðum króna í fyrra samkvæmt nýbirtum ársreikningi Landsvirkjunar. 

Vakin er athygli á ársreikningnum í fréttatilkynningu á vef Landsvirkjunar. Þar segir að fjárhagur fyrirtækisins sé áfram sterkur, eiginfjárhlutfall sé 64,5 prósent og skuldsetning 1,7-faldur rekstrarhagnaður fyrir afskriftir.

Þá segir að stjórn Landsvirkjunar fyrirhugi að gera tillögu á aðalfundi um arðgreiðslu að fjárhæð 165 milljónir bandaríkjadala í ríkissjóð. Áréttað er að arðgreiðslur fyrirtækisins eru reiknaðar í bandaríkjadölum og geta því tekið breytingum eftir gengi en miðað við núverandi gengi nemur greiðslan um 20 milljörðum króna.

Að auki skoði stjórnin að leggja til sérstaka arðgreiðslu fyrir aðalfund í apríl. 

Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, segir 2025 hafa reynst fyrirtækinu krefjandi, mikið hafi reynt á rekstur aflstöðva á árinu, til að mynda vegna bilana og krefjandi aðstæðna á Þjórsársvæðinu.

„Á árinu 2025 var einnig stigið mikilvægt skref inn í framkvæmdatímabil sem verður eitt það umfangsmesta í sögu fyrirtækisins. Framkvæmdir við Vaðölduver gengu vel, undirbúningsframkvæmdir við Hvammsvirkjun héldu áfram og á næstu mánuðum hefjast framkvæmdir vegna stækkunar Sigölduvirkjunar og Þeistareykjavirkjunar,“ er haft eftir Herði í fréttatilkynningu. 

Fulla ferð áfram

Stórt skref var tekið fyrr í vikunni þegar bæði Holtavirkjun í Þjórsá og Skrokkölduvirkjun við Sprengisandsleið voru færðar í orkunýtingarflokk í rammaáætlun með þingsályktunartillögu sem samþykkt var á Alþingi. Það þýðir að svæðin þar eru talin betri til virkjana en aðrir staðir og hægt verður að byrja að rannsaka og sækja um leyfi fyrir uppbyggingu þar.

Í samtali við fréttastofu í gær sagðist Hörður fagna tíðindunum en sagði í leið ótrúlegt hversu fáar vatnsaflsvirkjanir komist í gegnum rammaáætlun. Gangi allt vel megi búast við því að framkvæmdir fyrir Holtavirkjun hefjist 2031 og nokkrum árum síðar fyrir Skrokkölduvirkjun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×