Frítt Elliði Vignisson skrifar 19. febrúar 2026 13:45 Strax frá og með næstu mánaðamótum verða leikskólar í Ölfusi gjaldfrjálsir. Með ákvörðun sem var tekin á fundi bæjarráðs núna fyrr í dag mun öllum börnum standa til boða 36 tíma skólaganga foreldrum þeirra að kostnaðarlausu, án tillits til tekna þeirra. Án tekjutengingar. Sami stuðningur fyrir öll börn. Í almanna tali er það kallað „frítt“, þótt auðvitað falli kostnaðurinn á almannasjóð. Til að hægt sé að taka slíkar ákvarðanir þarf því traustan rekstur. Fleiri bök, léttari byrgðar Rekstur Sveitarfélagsins Ölfuss hefur gengið vel síðustu ár. Hér hafa risið öflug fyrirtæki sem skapa ómæld verðmæti fyrir samfélagið. Íbúum fjölgaði um 4,5 prósent á árinu 2025 og þegar leiðrétt er fyrir oftalningu þjóðskrár frá fyrri árum nemur raunveruleg fjölgun 6,5 prósentum. Aukinn íbúafjöldi styrkir samfélagið í heild. Það eru fleiri bök að bera það áfram. 1,3 milljarða afgangur, og fjárfest í fjölskyldum Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2025 verður rekstrarniðurstaðan 1.346 milljónir króna í hagnað. Það er verulega umfram áætlun og hærra en víðast hvar gerist. Í Ölfusi búa rétt rúmlega 3.000 íbúar og því er um að ræða sterka fjárhagsstöðu miðað við stærð. Hún skapar svigrúm til að fjárfesta í aukinni velferð, þar sem ungt fólk og börn þess eru í forgrunni. Það verður sannarleg áskorun að viðhalda þessari velgengni, en til þess treysta stjórnendur sér. Ungt fólk setið eftir, nú er brugðist við Þrátt fyrir mikinn hagvöxt og sterka stöðu íslensks efnahagslífs undanfarin ár hefur ungt fólk setið eftir. Fasteigna- og leiguverð hefur hækkað mun hraðar en laun, sem hefur gert fyrstu kaupendum og leigjendum erfiðara fyrir. Þar skipta lóðaokur og skortstefna Reykjavíkurborgar miklu máli. Val ungs fólks er því miður oft að hokra eða fresta því að stofna fjölskyldu. Sterk staða í dag, bjartari framtíð á morgun Við sem erum eldri keyptum húsnæði áður en verðhækkanir urðu miklar og höfum því notið verulegrar eignamyndunar. Ungt fólk stendur hins vegar frammi fyrir aðgangshindrunum, meiri skuldsetningu og þyngri greiðslubyrði. Nú þegar verðbólga og vextir hækka versnar staða ungs fólks enn frekar í hlutfalli við þá sem eru eldri. Þau eru oftar í leiguhúsnæði og með hærri lán miðað við tekjur. Okkur sem störfum í opinberri stjórnsýslu, kjörnum fulltrúum sem embættismönnum, ber að leita leiða til að styðja við bakið á þeim sem bera munu framtíðina. Vegna sterkrar stöðu hér í Ölfusi í dag getum við tryggt þeim bjartari framtíð á morgun. Skýr sýn, velferð á forsendum verðmætasköpunar Á sama tíma og Sveitarfélagið Ölfus mun áfram stuðla að hagstæðu íbúðaverði ætlum við einnig að bæta hag ungs fólks með börn eftir öðrum leiðum. Gjaldfrjáls leikskóli fyrir alla, óháð tekjum, er mikilvægur liður í þeirri stefnu. Ákvörðun stjórnenda Ölfuss endurspeglar skýra sýn: að góður rekstrarárangur eigi að skila sér beint til íbúa í formi aukinnar þjónustu og bættra lífsgæða. Sterk fjárhagsstaða og vaxandi samfélag eru að skapa traustan grunn að áframhaldandi uppbyggingu í Sveitarfélaginu Ölfusi. Höfundur er bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Elliði Vignisson Ölfus Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar