Taka umsókn Moderna til skoðunar eftir allt saman Kjartan Kjartansson skrifar 18. febrúar 2026 14:36 Lyfjafyrirtækið Moderna þróaði eitt af fyrstu bóluefnunum gegn Covid-19 með svonefndri mRNA-tækni. Það reynir nú að fá markaðsleyfi fyrir flensusprautu fyrir eldra fólk sem byggir á sömu tækni. Vísir/EPA Lyfjastofnun Bandaríkjanna segist nú ætla að taka umsókn lyfjafyrirtækisins Moderna um markaðsleyfi fyrir nýja flensusprautu til skoðunar eftir allt saman. Upphafleg ákvörðun stofnunarinnar um að neita að taka umsóknina fyrir olli fjaðrafoki.
Moderna sækist eftir markaðsleyfi fyrir flensusprautu fyrir eldra fólk sem byggist á svonefndri mRNA-tækni. Bóluefnið er það fyrsta gegn inflúensu sem þróað er með tækninni sem gerði mönnum kleift að framleiða bóluefni gegn Covid-19 á mettíma. Upphaflega hafnaði stofnunin að taka umsóknina til skoðunar í síðustu viku en slíkt er sagt fáheyrt. Bar stofnunin fyrir sig að Moderna hefði ekki fylgt leiðbeiningum hennar um klínískar tilraunir með bóluefnið. Forstjóri Moderna hafnaði því og sagði stofnunina hafa gefið grænt ljós á hönnun rannsóknarinnar. Nú segja bandarískir fjölmiðlar að lyfjastofnunin hafi snúið við fyrri ákvörðun sinni. Fyrirtækið segir að það sækist eftir flýtimeðferð á umsókninni fyrir fólk sem er 65 ára eða eldra. Umsókn um leyfi fyrir aldurshópinn 50-64 ára fari í hefðbundinn farveg. Lyfjastofnunin ætli að segja af eða á í ágúst. Fái bóluefnið skilyrt markaðsleyfi gæti fólk 65 ára og eldra fengið nýja bóluefnið fyrir næstu flensutíð næsta vetur, að því er segir í frétt New York Times. Moderna segist hafa skuldbundið sig til þess að gera viðbótarrannsókn á áhrifum bóluefnisins á eldra fólk eftir að það kemur á markað. Hætt við milljarða króna fjárfestingar í mRNA-tækni Þrátt fyrir árangur af mRNA-bóluefnum gegn Covid-19 og að Nóbelsverðlaunin í læknisfræði hafi nýlega verið veitt vísindamönnum sem þróuðu tæknina hefur alríkisstjórn Bandaríkjanna horn í síðu hennar. Þegar hefur verið hætt við hundruð milljóna dollara fjárfestingar í mRNA-bóluefnum og lyfjum vegna óvildar ríkisstjórnar repúblikana en Robert F. Kennedy yngri, einn helsti andstæðingur bóluefna í heiminum undanfarna áratugi, er nú heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna. Yfirmaður deildar lyfjastofnunarinnar sem annast bóluefni hafnaði því að taka umsókn Moderna um flensusprautuna til meðferðar, þvert á ráðleggingar hans eigin sérfræðinga.
Bólusetningar Heilbrigðismál Bandaríkin Donald Trump Lyf Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira