Jafnara aðgengi að Frístundastyrk í Reykjavík Helga Þórðardóttir skrifar 18. febrúar 2026 10:46 Á borgarstjórnarfundi þann 16. febrúar var samþykkt tillaga samstarfsflokkanna um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundastyrk og aðheimilt verði að nýta styrkinn til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Í dag er skilyrði að námskeið verða að vara í átta vikur til að hægt sé að nýta styrkinn. Frístundastyrkur Reykjavíkurborgar er mikilvægt jöfnunartæki þegar kemur að þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og menningarstarfi. Markmið hans er að tryggja sem jafnast aðgengi að tómstundum, efla félagslega þátttöku og styðja við velferð barna óháð efnahag foreldra. Margt bendir til að tekjulægstu fjölskyldurnar eigi síður kost á að nýta frístundarstyrkinn í lengri námskeið eins og reglur gera ráð fyrir. Með því að rýmka reglur um tímalengd námskeiða, til dæmis með því að færa viðmiðið niður í tvær vikur, þá væri hægt að nota styrkinn í ýmis góð sumarnámskeið. Það eru ekki öll börn sem hafa tækifæri til að sækja löng námskeið sem eru oftast dýrari en styttri námskeið og efnaminni foreldrar hafa ekki alltaf ráð á að greiða mismuninn. Á árunum 2024 og 2025 voru að meðaltali 3550 börn sem ekki nýttu frístundakortið. Það getur hagnast börnum sem eru ekki heilsuhraust eða búa við einhverja fötlun að geta sótt styttri og fjölbreyttari námskeið. Flokkur fólksins hefur alla tíð haft hagsmuni barna í forgrunni og eitt af grunngildum flokksins er að stuðla að meiri jöfnuði og lífsgæðum barna sem búa við fátækt. Það er von mín að með sveigjanlegri reglum um notkun á frístundastyrk Reykjavíkurborgar þá muni fleiri börn nýta styrkinn og þannig skapist meiri jöfnuður meðal barna í Reykjavík. Höfundur er formaður skóla-og frístundaráðs og borgarfulltrúi Flokks fólksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Helga Þórðardóttir Frístund barna Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Börn og uppeldi Reykjavík Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Á borgarstjórnarfundi þann 16. febrúar var samþykkt tillaga samstarfsflokkanna um að unnið verði að breytingum á reglum um frístundastyrk og aðheimilt verði að nýta styrkinn til að greiða fyrir sumarnámskeið eða styttri námskeið. Í dag er skilyrði að námskeið verða að vara í átta vikur til að hægt sé að nýta styrkinn. Frístundastyrkur Reykjavíkurborgar er mikilvægt jöfnunartæki þegar kemur að þátttöku barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta- og menningarstarfi. Markmið hans er að tryggja sem jafnast aðgengi að tómstundum, efla félagslega þátttöku og styðja við velferð barna óháð efnahag foreldra. Margt bendir til að tekjulægstu fjölskyldurnar eigi síður kost á að nýta frístundarstyrkinn í lengri námskeið eins og reglur gera ráð fyrir. Með því að rýmka reglur um tímalengd námskeiða, til dæmis með því að færa viðmiðið niður í tvær vikur, þá væri hægt að nota styrkinn í ýmis góð sumarnámskeið. Það eru ekki öll börn sem hafa tækifæri til að sækja löng námskeið sem eru oftast dýrari en styttri námskeið og efnaminni foreldrar hafa ekki alltaf ráð á að greiða mismuninn. Á árunum 2024 og 2025 voru að meðaltali 3550 börn sem ekki nýttu frístundakortið. Það getur hagnast börnum sem eru ekki heilsuhraust eða búa við einhverja fötlun að geta sótt styttri og fjölbreyttari námskeið. Flokkur fólksins hefur alla tíð haft hagsmuni barna í forgrunni og eitt af grunngildum flokksins er að stuðla að meiri jöfnuði og lífsgæðum barna sem búa við fátækt. Það er von mín að með sveigjanlegri reglum um notkun á frístundastyrk Reykjavíkurborgar þá muni fleiri börn nýta styrkinn og þannig skapist meiri jöfnuður meðal barna í Reykjavík. Höfundur er formaður skóla-og frístundaráðs og borgarfulltrúi Flokks fólksins.
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar