„Þetta hefði ekki þurft að fara svona“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 18:58 Guðmundur G. Gunnarsson leit til með aldraðri systur sinni Selmu Margréti í tólf ár eftir að eiginmaður hennar lést. Hún var orðin afar veikburða fyrir tveimur árum og óskaði eftir hjúkrunarrými en var hafnað. Selma lést á Landspítala síðasta haust eftir að matarbiti stóð í henni. Hún hafði leitað þangað þar sem hún var orðin afar veikburða. Vísir Maður sem annaðist aldraða, veika systur sína um árabil segir það hafa verið tilgangslausa þrautargöngu að reyna að fá hjúkrunarrými fyrir hana síðustu árin. Hann fór með hana sárveika á Landspítalann síðasta haust þar sem hún lést nokkrum dögum síðar eftir að matur stóð í henni. Neyðarástand eða rautt ástand hefur verið á Landspítalanum í eitt og hálft ár. Þar bíða nú hundrað og fimmtán manns aðallega aldrað fólk eftir að komast inn á hjúkrunarheimili. Næstum sjö hundruð manns bíða á landinu öllu eftir slíku rými. Aldraðir og aðstandendur þeirra hafa stigið fram síðustu daga og lýst yfir áhyggjum af stöðunni. Ekkert hjúkrunarrými fyrir bráðveika aldraða systur Guðmundur G. Gunnarsson er einn af þeim en hann fylgdist um árabil með líðan og högum systur sinnar, Selmu Margrétar píanókennara, eftir að eiginmaður hennar lést. Hann lýsir tilgangslausri þrautargöngu við kerfið í tvö ár eftir að hún óskaði eftir því að fara á hjúkrunarheimili 91 árs gömul. Þá var hún orðin verulega hrum meðal annars vegna afleiðinga af heilablóðfalli nokkrum árum áður og húðkrabbameins. Selma Margrét Gunnarsdóttir var farsæll píanókennari á sínum tíma. Bróðir hennar lýsir hennar sem stoltri konu sem vildi ekki vera byrði á neinum í ellinni. Hún fékk ekki hjúkrunarheimili síðustu árin sem hún lifði þrátt fyrir að vera orðin hrum og veik. Selma lést á Landspítala eftir að hafa sótt þangað vegna veikinda. Hún lést eftir að matur stóð í henni. Vísir Furðuleg svör Guðmundur segir að þrátt fyrir mikla baráttu hans fyrir því að systir hans fengi hjúkrunarrými hafi ekkert þokast. „ Selma Margrét sagði mér að hún vildi fara á hjúkrunarheimili þegar fór að halla undan fæti og þegar svo var komið sótti ég um vistun á hjúkrunarheimili hjá Færni- og heilsufarsnefnd. Þetta var fyrir um tveimur árum. Það reyndist hins vegar mikil þrautaganga og raunar tilgangslaus tímaeyðsla. Ég sótti tvisvar um og svörin voru ansi furðuleg. Fyrri umsókn var hafnað gangske pent, en sú síðari var enn í vinnslu, þegar yfir lauk síðasta haust. Ég skrifaði tvær greinargerðir vegna umsóknanna til að gera grein fyrir framvindunni síðustu árin en það hafði lítil áhrif,“ segir Guðmundur. Heimsókn á bráðadeild reyndi verulega á Guðmundur segist hafa verið farinn að þurfa að vitja systur sinnar fjórum sinnum á dag síðasta haust vegna þess hve hún var veikburða. Að lokum hafi þau ákveðið þann 29. september á síðasta ári að hún færi á bráðadeild Landspítalans. Hún hafi klætt sig sjálf og gengið inn á deildina þann dag. „Þetta er í raun eina úrræðið sem er í boði þegar fólk í þessari stöðu veikist. Ég fann strax að heimsóknin á bráðadeild dró enn frekar kraft úr henni. Við þurftum t.d. að bíða á fimmta tíma í óþægilegum stólum á biðstofunni sem reyndi mikið á þrek hennar. Þegar hún komst loks inn á sjálfa bráðadeildina þurfti hún að liggja úti á ganginum í fjóra eða fimm sólahringa. Það gerði henni heldur ekki gott. Hún komst loks á legudeild á spítalanum en þá var mikið af henni dregið ,“ segir Guðmundur. Lést eftir að matur stóð í henni Hann segist svo hafa fengið hringingu frá hjúkrunarfræðingi á Landspítalanum nokkrum dögum síðar eða þann 8. október sem tjáði honum að systir hans hefði látist eftir að matur stóð í henni. Selma Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari lést á Landspítalanum nokkrum dögum eftir að hún lagðist þar inn. Hún kom ekki niður mat sem henni var gefinn og lést í kjölfarið að sögn bróður hennar. Vísir „Skýringin sem ég fékk var að hún hefði átt í erfiðleikum með að matast. Eitthvað kom upp á. Það stóð í henni þegar hún var að borða og hún gat ekki klárað. Hún kafnaði raunverulega bara. Þá var hún orðin svo veikburða að hún hafði ekki afl til að keyra sig upp til að losa sig um matarbitann,“ segir Guðmundur. Hefði ekki átt að fara svona Guðmundur segir starfsfólk hafa gert sitt allra besta í stöðunni en veltir fyrir sér hvort síðustu dagarnir systur sinnar hefðu ekki orðið betri ef hún hefði verið komin á hjúkrunarheimili. Selma Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari á góðum degi. Vísir „Þetta hefði ekki þurft að fara svona. Það er bara okkar réttur að okkur sé þjónað síðasta spölinn,“ segir Guðmundur hryggur að lokum. Fleiri reynslusögur um alvarlega stöðu í kerfinu Fréttastofa hefur fengið fleiri reynslusögur um alvarlega stöðu aldraðra í kerfinu. Dóttir 89 ára gamals manns sendi til að mynda tölvupóst þar sem kemur fram að hann hafi verið lagður inn á Landspítala vegna sýkingar í nóvember og liggi þar enn í bið eftir hjúkrunarheimili eða biðplássi eftir því að komast inn á slíkt heimili. Hann hafi verið hress þegar hann lagðist inn á spítalann en skortur á virkni síðustu mánuði hafi lagt hann í kör. Þá hafi hann og fengið hverja spítalasýkinguna á fætur annarri frá því hann lagðist inn. Aðstandendur óttast um líf og heilsu hann. Þetta sé í raun óhugandi ástand í því sem eigi að kallast velferðarþjóðfélag. Úr tölvupósti aðstandanda „Þetta ástand er svo óhugsandi í okkar velferðarsamfélagi og rímar illa við það sem við viljum mörg trúa: Að dæma skuli mannúð og ágæti samfélags út frá því hversu vel það hugsar um okkar minnstu og veikustu meðborgara.“ Landspítalinn Eldri borgarar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Innlent Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Sjá meira
Úr tölvupósti aðstandanda „Þetta ástand er svo óhugsandi í okkar velferðarsamfélagi og rímar illa við það sem við viljum mörg trúa: Að dæma skuli mannúð og ágæti samfélags út frá því hversu vel það hugsar um okkar minnstu og veikustu meðborgara.“
Landspítalinn Eldri borgarar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Innlent Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Innlent „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Innlent Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Innlent Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Innlent „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Innlent Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Innlent Stofna 200 milljarða sjóð fyrir bandamenn Trumps og biðja forsetann formlega afsökunar Erlent Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Innlent Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Innlent Fleiri fréttir Flestir strikuðu yfir Ásdísi Réðust á starfsmann sem mat bílinn óökuhæfann Aðildarviðræður gætu kostað tæpa tvo milljarða Nýjustu vendingar, sviðin píla á vettvangi og kaldar móttökur Maðurinn með hnífinn enn ófundinn „Stefnir í ansi góðan sumardag“ Vill Skúla Tómas á stofnun: „Ég hef enga þörf fyrir að pína hann“ Átján ára sótti áfengissendingu „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Tilkynnt um mann með hníf við skóla í Hafnarfirði Grafarvogsbúar skiluðu níunda manninum Framsókn og óháðir og Viðreisn í meirihlutaviðræðum Skúli Tómas fer fram á frávísun morðákæru Hildur Björns undir hnausþykkum feldi Biðst afsökunar en neitar sök í máli Írisar Helgu: „Ég lét spila með mig“ Þakkar Ingu traustið en segir niðurstöðu vonbrigði Eftirlit með smíði Þjórsárbrúar boðið út í óvissu um kærumál „Get fullyrt að þetta mun ekki valda neinum réttarspjöllum“ Meðreiðarsveinn Írisar Helgu neitar sök Bruni í Bjarmalandi: „Þetta gekk eins og í lygasögu“ Umdeild handtaka í Reykjanesbæ og álit ráðherra á úrslitum kosninganna „Þú þarft alltaf að vita, öryggisins vegna, hvar næsta klósett er“ Enn varað við umferðartöfum sökum framkvæmda á Hringvegi Kannanir sögulega nærri kosningaúrslitunum Leikskólastarfsmaður ákærður fyrir að slá son sinn og annað barn Landris langt umfram það sem við þekktum hæst áður Vilja halda samstarfinu áfram þrátt fyrir mikið fylgistap „Aðallega að meta þessa tvo kosti“ Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Hildur í beinni um þreifingar dagsins Sjá meira