Kanna hvort klámfengnar myndir Musk hafi brotið persónuverndarlög Kjartan Kjartansson skrifar 17. febrúar 2026 09:31 Grok er spjallmenni samfélagsmiðilsins X. Hann hefur birti ógrynni kynferðislegra mynda af konum og börnum að undanförnu. Vísir/EPA Persónuverndarstofnun Írlands, sem hefur eftirlit með stórum samfélagsmiðlum, hefur hafið rannsókn á hvort að X hafi brotið evrópsk persónuverndarlög þegar gervigreindartól miðilsins framleiddi og birti falsaðar kynferðislegar myndir af konum og börnum.
Holskefla kynferðislegra mynda af konum og börnum byrjaði að ganga yfir X, allsherjaforrit Elons Musk, í vetur. Gervigreindarspjallmennið Grok framleiddi slíkar myndir af raunverulegu fólki að beiðni notenda X og birti á samfélagsmiðlinum. Grok hikaði til dæmis ekki við að breyta myndum af konum þannig að þær væru klæddar í bikíni skreytt hakakrossum. Gervigreindarforriti átti einnig við myndir af líkum kvenna, þar á meðal konu sem bandarískir innflytjendaeftirlitsmenn skutu til bana í Minneapolis í janúar. Yfirvöld í fjölda ríkja hefur tekið X og Grok til rannsóknar. Evrópusambandið rannsakar meðal annars hvort X hafi brotið lög um stafræna þjónustu með gervigreindarkláminu. Franskir saksóknarar gerðu nýlega húsleit á skrifstofu X þar í landi vegna kynferðislegu myndanna. Írska persónuverndarstofnunin sér hins vegar um að framfylgja umfangsmikilli persónuverndarlöggjöf Evrópusambandsins gagnvart samfélagsmiðlarisum sem eru með höfuðstöðvar á eyjunni grænu. Stofnunin getur meðal annars lagt sekt á X sem nemur allt að fjórum prósentum af ársveltu fyrirtækisins á heimsvísu. Þegar Vísir spurði Persónuvernd hvort að kvartanir hefðu borist um myndir af íslenskum konum eða börnum sem Grok hefði átt við vísaði stofnunin á írsku systurstofnun sína sem sæi um eftirlitið. Graham Doyle, aðstoðarforstjóri írsku persónuverndarstofnunarinnar, segir rannsóknina umfangsmikla. Hún beinist að því hvort að X hafi uppfyllt ýmsar grundvallarskyldur sínar gagnvart persónuverndarlöggjöfinni. Dagblaðið Politico segir mögulegt að rannsóknin á X eigi enn eftir að reyna á samskipti bandarískra og evrópskra stjórnvalda. Fulltrúar Bandaríkjastjórnar hafa hótað Evrópumönnum öllu illu vegna þess að þeir síðarnefndu hafa framfylgt evrópskum lögum gagnvart bandarískum fyrirtækjum eins og X. Bandaríkjastjórn beitti meðal annars fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Evrópusambandinu og baráttufólk gegn hatursorðræðu og upplýsingafalsi á netinu refsiagerðum í vetur á þeirri forsendu að þau hefðu tekið þátt í að þagga niður í „bandarískum sjónarmiðum“.
Klám X (Twitter) Samfélagsmiðlar Gervigreind Elon Musk Persónuvernd Evrópusambandið Kynferðisofbeldi Írland Tengdar fréttir Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins. 3. febrúar 2026 12:04 Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum. 19. janúar 2026 15:55 Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48 Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira
Húsleit hjá X í Frakklandi vegna barnaníðsmynda Franskir saksóknarar gerðu húsleit á skrifstofum samfélagsmiðilsins X í París í dag í tengslum við rannsókn á dreifingu barnaníðs og falsaðra kynferðislegra mynda á miðlinum. Þeir hafa einnig óskað eftir að taka skýrslu af Elon Musk, eiganda X, og forstjóra fyrirtækisins. 3. febrúar 2026 12:04
Skoða bann við nektarforritum eftir X-hneykslið Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er nú sögð skoða hvort hægt sé að banna snjallforrit sem byggja á gervigreind sem hægt er að nota til þess að búa til falsaðar nektarmyndir af fólki. Samfélagsmiðlinn X hefur legið undir ámæli fyrir að framleiða slíkar myndir af börnum og konum. 19. janúar 2026 15:55
Musk fellst á að hætta að framleiða kynferðislegar myndir en bara sums staðar Samfélagsmiðillinn X, sem er í eigu Elon Musk, segist ætla að loka á að gervigreindarspjallmennið Grok búi til kynferðislegar myndir af raunverulegu fólki í sumum löndum í kjölfar harðrar gagnrýni og opinberra rannsókna. Aðeins verður tekin fyrir slíkar myndir þar sem slíkt er ólöglegt. 15. janúar 2026 08:48