Hvað telur Wolt vera raunhagkerfi? Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir og Saga Kjartansdóttir skrifa 17. febrúar 2026 08:32 Á morgun, miðvikudag, stendur Wolt fyrir viðburði undir yfirskriftinni „raunhagkerfið“. Til fundarins eru boðaðir gestir úr ólíkum áttum og samkvæmt boðinu munu borgarstjórnarframbjóðendurnir Björg Magnúsdóttir (Viðreisn) og Hildur Björnsdóttir (Sjálfstæðisflokki), auk Evu Laufeyjar, markaðs- og upplifunarstjóra Hagkaupa, taka þátt í umræðum. En hvers vegna ætli oddvitar stjórnmálaflokka séu fengnir til þátttöku? Samkvæmt viðburðarlýsingu stendur til að fjalla um svonefnt „verkvangshagkerfi“ (e. platform work), sem viðskiptalíkan Wolt byggir á, meðal annars með tilliti til regluverks, ábyrgðar og samfélagslegra áhrifa, undir yfirskriftinni „raunhagkerfið“. Eins og áður hefur komið fram mun fulltrúi Hagkaupa einnig taka þátt í umræðunni. Fyrirtækið hefur sett sér stefnu um samfélagslega ábyrgð þar sem meðal annars segir orðrétt að fyrirtækið skuli: „kappkosta enn frekar við að tryggja að réttindi allra í virðiskeðjunni séu virt“. Á sama tíma nýtir fyrirtækið sér þjónustu Wolt, fyrirtækis sem byggir á viðskiptamódeli sem sætir alþjóðlegri gagnrýni vegna áhrifa á réttindi launafólks. En hver eru raunveruleg áhrif fyrirtækja eins og Wolt á vinnumarkað og samfélag? Starfsemi Wolt og sambærilegra fyrirtækja hefur mætt harðri andstöðu verkalýðshreyfinga um allan heim. Módelið byggir á vinnuframlagi gerviverktaka sem sendast með matvæli og aðrar vörur á kjörum sem eru langt undir kjarasamningsbundnum lágmarkskjörum. Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hefur reiknað út hver laun sendla á vegum Wolt á Íslandi eru í raun og veru þegar tekið hefur verið tillit til launatengdra gjalda, kostnaðar verktakans og annarra umsaminna réttinda á vinnumarkaði. Útreikningarnir byggja á upplýsingum sem forsvarsmenn fyrirtækisins hafa veitt opinberlega. Samkvæmt þeim fá sendlar 55% af lægstu launum kjarasamninga á dagvinnutíma og 31% á yfirvinnutíma, miðað við að viðkomandi noti eigin bifreið og vinnubúnað við störf sín. Þá ber að benda á að stór hluti starfsins er unninn á yfirvinnutíma. Sendlarnir búa ekki við veikindarétt, uppsagnarfrest, frí á sérstökum frídögum, sumarfrí, mótframlag í lífeyrissjóð, framlag í sjúkrasjóði eða annað það öryggisnet sem fylgir lágmarkslaunum. Þeir búa heldur ekki við vinnuvernd, en starfið er langt því frá að teljast hættulaust. Þetta er „raunhagkerfið” sem Wolt boðar. Viljum við þessi samfélagslegu áhrif? Viljum við hverfa árhundrað aftur í tímann til þess þegar launafólk beið í ofvæni hvort það fengi vinnu þann daginn eða ekki? Wolt-sendlarnir vita ekki hvort þau fái verkefni á morgun, í næstu viku eða næsta mánuði eða hvert endurgjaldið verður. Þrátt fyrir fagurgala um „frelsi“ ráða þau engu um vinnuaðstæður sínar. Þetta er ekki sjálfstæði. Þetta er varnarleysi. Alþjóðasamfélagið hefur vaxandi áhyggjur af málefninu og dómsmálin gagnvart slíkum viðskiptamódelum hrannast upp. Spánn hefur tekið upp sérstök lög um sendla starfandi í hark-hagkerfinu (e. gig economy) og fleiri þjóðir munu vafalaust fylgja. Þá hefur Evrópusambandið talið sérstaka þörf á að regluvæða hark-hagkerfið innan Evrópu vegna eðlis þess og hættu á réttindabrotum. Ekki er um að ræða vegferð verkalýðshreyfinga gegn (raunverulegri) verktöku, framþróun, tækniþróun, sveigjanleika í vinnu eða einstaka fyrirtækjum, líkt og hefur verið haldið fram. Krafan er skýr og einföld; að við verjum sjálfsögð og mikilvæg lágmarksréttindi vinnandi fólks og grunnskipulag vinnumarkaðar okkar. Að allir búi við sömu lágmarksréttindi burt séð frá samfélagsstöðu eða uppruna. Viljum við sem þjóð „raunhagkerfið“ sem Wolt boðar? Og teljum við frábært og sjálfgefið að fjölþjóðleg stórfyrirtæki skilgreini „raunhagkerfið” fyrir okkur? Við ítrekum áskorun okkar til Wolt um að fara að kjarasamningum og tryggja sendlum sjálfsögð lágmarksréttindi. Við skorum einnig á frambjóðendur til sveitarstjórnarkosninga að taka ábyrga afstöðu gegn undirboðum á vinnumarkaði. Þá skorum við einnig á fyrirtæki eins og Hagkaup sem er annt um samfélagslega ábyrgð og orðspor sitt að tryggja að allt starfsfólk í virðiskeðjunni, þar á meðal sendlar, búi við mannsæmandi kjör. Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir, lögfræðingur hjá ASÍ Saga Kjartansdóttir, sérfræðingur í vinnumarkaðsmálum hjá ASÍ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein ASÍ Heimsendingarþjónusta Mest lesið Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson Skoðun Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir Skoðun Halldór 16.05.2026 Halldór Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson Skoðun Fráleitar tillögur um að einkavæða orkufyrirtækin okkar Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Viljum við efla fólk eftir áföll? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Afhverju X við P? Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Kosningalimran 2026 Freyr Snorrason,Arnar Ingi Ingason skrifar Skoðun Setjum X við D Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Við bjóðum okkur fram til þess að bera ábyrgð Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þversögn umburðarlyndis og góðmennsku Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson skrifar Skoðun Dagur óbærilegrar spennu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Breiðholtið þar sem hjartað mitt slær Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Kópavogur er í sókn – kjósum áfram sömu stefnu Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Kaus áður Sjálfstæðisflokkinn, nú Pírata Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hlustið á fólkið! Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Veljum að gera betur Ingvar P. Guðbjörnsson skrifar Skoðun Áheyrn og árangur í skólamálum í Hveragerði Halldóra Jóna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Höfum staðreyndir á hreinu áður en við kjósum Geir Finnsson skrifar Skoðun Northvolt: Þegar „græna byltingin“ bítur í skottið á sér Júlíus Valsson skrifar Skoðun Síðustu hálmstrá ráðhússhersins Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Geta kosningar verið máttlaus öryggisventill? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Borgarlínan - hvað hefði Guðjón Samúelsson sagt? Þorsteinn Helgason skrifar Skoðun Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar Skoðun Skólastarf til fyrirmyndar skrifar Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Píratar: Rödd mannréttinda í 12 ár Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns,Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar