KSÍ dregur úr verðhækkunum Valur Páll Eiríksson skrifar 15. febrúar 2026 09:39 Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, greindi frá því í gær að dregið hefði verið úr verðhækkunum þátttökugjalda liða í neðstu deildum á Íslandi. Vísir/Sigurjón Knattspyrnusamband Íslands tók í vikunni ákvörðun um að draga úr veigamiklum verðhækkunum skráningargjalda neðri deildar liða í kjölfar harðra viðbragða félaganna sem hækkunin hafði áhrif á. Framkvæmdastjóri sambandsins staðfestir að dregið hafi verið verulega úr téðum hækkunum en sambandið vilji eiga frekara samtal um hlutverk þess er kemur að neðstu deildum landsins.
Þátttökugjöld fyrir lið í neðstu deildum KSÍ voru hækkuð umtalsvert fyrir komandi tímabil. Þær hækkanir vöktu hörð viðbrögð frá félögunum sem urðu fyrir áhrifum hækkananna en Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ, sagði í útvarpsþætti Fótbolti.net í gær að dregið hafi verið úr hækkunum sambandsins. „Varðandi neðstu deildirnar tvær, fimmta deild og utandeildin, þá áttum við góð samtöl þar og var tekin ákvörðun í fjárhagsnefnd í vikunni og samþykkt af stjórninni að endurskoða það og lækka þau gjöld. Það er búið að draga úr því. Það var sent á félögin í gær,“ sagði Eysteinn í samtali við þá Elvar Geir Magnússon og Tómas Þór Þórðarson í Útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í gær. Eystein segir ársgjöldin höfðu verið hækkuð úr um 120 þúsund krónum upp í 500 þúsund krónur á hvert lið fyrir breytingar vikunnar. Lið í 5. deild borgi þess í stað 325 þúsund og í utandeild 265 þúsund krónur. Eysteinn bendir á að lengi vel hafi dómarakostnaður í neðstu deildum ekki verið á forræði KSÍ og taka þurfi frekara samtal um kostnaðinn sem sambandið ber af áhugamannadeildum. „Áður var utandeild á forræði félaga sem höfðu það sem fjáröflun. Gjöldin í 2. Flokki karla eru til dæmis 550 þúsund en það voru fáir sem sögðu neitt við því. Sem dæmi. Ég hef skilning á þessu, fótboltinn er alltaf að stækka og stækka,“ „Þetta er ört stækkandi hópur en spurningin er hvar Knattspyrnusambandið draga línuna, þegar þetta er alltaf að stækka, og að borga alltaf með þessum liðum? Það er spurning sem þarf að ræða,“ segir Eysteinn. Nánar er rætt um málið í þættinum sem má nálgast í spilaranum. Umræðan um verðhækkanir KSÍ hefjast þegar um 40 mínútur eru liðnar á þáttinn.
KSÍ Fótbolti Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira