Með greinargerðum skal land byggja? Konráð S. Guðjónsson skrifar 14. febrúar 2026 08:33 Fyrir skömmu skrifaði undirritaður grein þar sem færð voru rök fyrir því að frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á greiðslum almannatrygginga væru skaðlegar og myndu óhjákvæmlega enda úti í skurði. Enda bar greinin titilinn Út í skurð með bæði augun opin. Allir virðast skilja frumvarpið á sama hátt - að það feli í sér að lífeyrir hækki umfram laun til lengdar, sem er alltof kostnaðarsamt fyrir ríkissjóð og samfélagið í heild. Breytingin á lögunum er einföld - aðeins einu orði er breytt og málið virðist augljóst. Blaðagrein til að skýra greinargerð Á þessu er allavega ein undantekning því að félags- og húsnæðismálaráðherra skrifaði í gær að þetta væri allt saman misskilningur og að fræðimennirnir Axel Hall og Gylfi Zoega og allir hinir hefðu einfaldlega rangt fyrir sér. Í greinargerð frumvarpsins væri að finna vörn gegn því að lífeyrir hækki mun hraðar en laun sem fælist í eftirfarandi orðum: Til þess að koma í veg fyrir það er í frumvarpinu lagt til að miðað sé við upphafspunkt í júní 2025 þannig að leiðrétting miðist við mældar vísitölur launa og neysluverðs sem Hagstofa Íslands birtir til júnímánaðar yfirstandandi árs. Þannig mun uppsöfnuð hækkun greiðslna almannatrygginga aldrei verða minni en hækkun framangreindra vísitalna frá júní 2025. Greinargerð á skjön við frumvarpið Nú telur undirritaður sig með sæmilegan lesskilning en fær ekki séð hvernig þetta kemur í veg fyrir að lífeyrir hækki of mikið, enda segir að hækkanir megi ekki vera of litlar - „aldrei verða minni“. Eðli máls samkvæmt kemur greinargerðin þá ekki í veg fyrir það sem frumvarpið sjálft felur í sér - að greiðslur aðmannatrygginga geti hækkað meira en hækkun launavísitölu og verðlags. Túlkun ráðherra á þessum óskýru orðum er engu að síður sú að hækkun almannatrygginga muni yfir tíma fylgja þeirri vísitölu sem hefur hækkað meira frá upphafspunktinum í júní 2025. Þessu má líkja við tvær lestar sem fara frá sama stað á sama tíma og sú sem er á undan ræður um vegferðina í þessu tilfelli þróun lífeyris. Ef vísitala neysluverðs er á undan ræður hún en þegar launavísitalan er á undan ræður hún. Snyrtileg leið til að koma í veg fyrir hinn svokallaða tvöfalda lás. Sá galli er á gjöf Njarðar að vísitala launa fer almennt miklu hraðar en hin og stingur hana af fljótlega. Þó vísitala neysluverðs taki einstaka hraðakipp nær hún líklega aldrei hinni eftir smá tíma. Eina verðbólgutryggingin væri að kaupmátturgólf er sett miðað við júní 2025. Verðbólguskot fást því ekki bætt og launavísitalan ræður öllu án tillits til verðbólgu sem stangast á við greinina sem greinargerðin á að skýra. Samkvæmt frumvarpinu á 62. grein laga um almannatryggina að hljóma svona. Greiðslur almannatrygginga, svo og greiðslur skv. 42. gr. og fjárhæð skv. 28. gr., skulu breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skal taka mið af launavísitölu, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. Hingað til hefur verið miðað við hækkanir ár frá ári en ekkert í sjálfu frumvarpinu segir að það skuli breytast. Í versta falli er ósamræmi og í besta falli óljóst hvort að sjálft frumvarpið sé í takt við skilaboð ráðherrans. Ekki þarf djúpstæða lögfræðiþekkingu til að sjá að þar trompa lögin greinargerðina.Hér rekst hvað á annað í vandræðagangi. Öngstræti Þegar frumvarp er gallað og greinargerðin nær ekki að stoppa í götin svo það kallar til viðbótar á skrif í fjölmiðlum er rétt að staldra við og taka af allan vafa: Breyta lögunum sjálfum í takt við raunverulegan vilja stjórnvalda í stað þess að eiga á hættu að baka ríkinu stórfellda skaðabótaskyldu vegna verðbólgu sem ekki fékkst bætt. Forsætisráðherra virðist síðan hafa reynt að nota aðra leið til að snúa ríkisstjórninni frá eigin öngstræti í hlaðvarpinu Ein pæling: Að þegar upp er staðið muni fjárveitingarvaldið ráða hversu miklar hækkanirnar verða. Fróðlegt væri að fá lögfræðilegt álit á því hvort að ríkið myndi þá skapa sér skaðabótaskyldu með því að fara þannig gegn lögum um réttindi fólks. Eftir stendur að slæmt mál er ennþá slæmt þó það væri skárra ef búið væri raunverulega um hnútana eins og ráðherra lýsir, því útfærslan hér reynist skammgóður vermir. Ef fyrirætlan ráðherra væri skýrt útfærð bæði í frumvarpi og greinargerð væri engu að síður mjög líklegt að launavísitalan hækki hraðar en raunveruleg laun landsmanna sem þýðir einfaldlega að ríkisfjármálasprengjan tifar hægar en ef hinn svokallaði „tvöfaldi lás“ væri lögfestur með 62. gr. laganna sem nú ganga gegn greinargerðinni. Stundum eru færð rök fyrir því að þetta sé til að vinda ofan af einhverskonar kjaragliðnun, sem lítið fer fyrir greiningum á. Það virðist enda vera fullkomlega á skjön við staðreyndir málsins eins og áður hefur verið rakið og tvær myndir hér að neðan sýna nokkuð glögglega. Eflaust má finna dæmi þar sem hefur myndast einhverskonar kjaragliðnun en það er ekki rök fyrir að hækka greiðslur allra og ekki einu sinni víst að það leysi vandamálið. Ákvörðun um að önnur ríkisútgjöld mæti afgangi Ef lendingin verður eins og flestir nema ríkisstjórnin skilja og lögfest verður að lífeyrir hækki hraðar en laun er ljóst að það er meðvituð ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að forgangsraða því framar en öðrum brýnum verkefnum sem fagna má að hún hafi, allavega í orði, sett á oddinn, t.d. aukin innviðauppbygging og sókn í heilbrigðiskerfinu. Grein áðurnefndra Axels Hall og Gylfa Zoega dregur þetta skýrt fram. Ef frumvarpið nær fram að ganga og staðið væri í reynd við markmið stöðugleikareglu opinberra fjármála, sem lögfest var á síðasta ári, ætti að lækka 2% hámarks raunvöxt ríkisútgjalda svo hún virki eins og til er ætlast. Með öðrum orðum þarf að taka tillit til þess í stöðugleikareglunni að það verður minna svigrúm til hækkunar annarra ríkisútgjalda en ella. Ósjálfbærum hækkunum almannatryggingakerfis er að óbreyttu einfaldlega hleypt í gegn um regluna sem verðhækkanir án þess að hún veiti viðnám. Betur heima setið Allt rekst á hvers annars horn í þessu máli. Það er lágmarkskrafa að stjórnarfrumvörp séu í samræmi við vilja stjórnvalda og að stjórnvöld horfi til framtíðar við lagasetningu þannig að lögin skapi framtíðarkynslóðum ekki veruleg vandræði. Frumvarp stjórnvalda virðist uppfylla hvorugt og því er niðurstaðan eftir sem áður sú sama: Alþingi á að segja nei. Með lögum skal land byggja, ekki greinargerðum og greinarskrifum. Höfundur er eigandi Kontext. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Konráð S. Guðjónsson Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun