Ósammála um að það sé kostur að vera formaður utan þings Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 12. febrúar 2026 22:00 Frambjóðendur til formanns Framsóknarflokksins, Ingibjörg Ólöf Isaksen, Lilja Alfreðsdóttir. Getur næsti formaður Framsóknarflokksins verið utan þings? Um þetta var deilt í Pallborðsþætti í dag þegar formannsefnin Lilja Dögg Alfreðsdóttir varaformaður Framsóknar og Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknar mættust í kappræðum.
Um næstu helgi hefst 38. flokksþing Framsóknar sem fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og Framsóknarmenn velja sér nýja forystu. Það kemur síðan í ljós á sunnudag hvort það verður Lilja eða Ingibjörg sem ber sigur úr býtum og leiðir Framsókn inn í framtíðina. Það er ekkert launungarmál að það verður á brattann að sækja fyrir þá sem verður valin formaður því flokkurinn hefur ekki verið að mælast með mikið fylgi. Í síðustu Maskínukönnun mældist flokkurinn með 7,1% en í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup mældist flokkurinn með 5,4% fylgi. Staða Lilju var mikið rædd í Pallborðsþættinum en hún náði ekki inn á þing í síðustu Alþingiskosningum árið 2024 og yrði hún því formaður utan þings ef flokksmenn Framsóknar velja hana sem leiðtoga næsta sunnudag. Ingibjörg sagði að það væri stór hluti af starfi formanns að taka þátt í málstofu Alþingis og fjalla um stóru málin í samfélaginu. „Ég veit að Lilja þekkir störf Alþingis mjög vel og ef hún er sannfærð um það að – eins og hún segir – að það sé hreinlega betra að formaður stjórnmálaflokks sem vill láta taka sig alvarlega og ná röddu og trausti almennings út á við að það sé betra að vera formaður utan þings þá held ég að hún sé að tala gegn betri vitund. Allt þinghaldið byggist á því að formaður stjórnmálaflokks sé á Alþingi og taki þátt í umræðunni og þegar kemur að því að því að rækta grasrótina að þá er það viðvarandi verkefni en ekki eitthvað sem þú byrjar á korter í kosningar.“ Lilja var ósammála þessu og sagði að í ljósi þess að flokkurinn væri í erfiðri stöðu væri nauðsynlegt að hugsa út fyrir kassann. „Ég sagði að það gæti verið kostur í þessari stöðu að talsmaður Framsóknarflokksins gæti verið nokkuð frjáls í því að sinna grasrótinni betur af því að það þarf að endurræsa flokkinn og þú verður að gera það með öllu hjartanu og öllu sem þú átt til þess að ná þessari viðspyrnu.“ Hægt er að horfa á Pallborðsþáttinn í heild í spilaranum hér að neðan.
Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Alþingi Tengdar fréttir Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. 12. febrúar 2026 16:50 Íhugar að bjóða fram til varaformanns Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. 12. febrúar 2026 16:09 Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. 12. febrúar 2026 12:54 Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Fleiri fréttir Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Sjá meira
Ingibjörg fljót að rífa upp boxhanskana Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar. 12. febrúar 2026 16:50
Íhugar að bjóða fram til varaformanns Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns. 12. febrúar 2026 16:09
Baráttan um formannsembætti Framsóknar Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns. 12. febrúar 2026 12:54